Fréttablaðið - 29.08.2012, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING Heilsa29. ÁGÚST 2012 MIÐVIKUDAGUR 5
Ceridal er mild húðhirðu-lína fyrir þá sem vilja huga sérstaklega að húðinni alla
daga. Afurðirnar í línunni eru laus-
ar við ilmefni, paraben, litarefni,
lanólín, f leytiefni og önnur óþörf
aukaefni. Öll innihaldsefni eru
sérstaklega valin þannig að Ceri-
dal henti bæði þeim sem eru með
venjulega húð og þeim sem hafa
viðkvæma húð eða húðsjúkdóm.
Ceridal hentar fyrir vikið vel fyrir
alla fjölskylduna.
Helstu vörurnar í línunni eru
fitukrem, húðolía, andlitskrem og
baðolía.
Fitukrem
Þegar haustar að, hvessir og kólnar
í veðri er þurr húð algengt vanda-
mál hjá mörgum. Þá er mikilvægt
að verja húðina vel. Ceridal-fitu-
krem minnkar hættuna á húð-
skemmdum af völdum kulda því
fitukremið inniheldur ekki vatn og
húðin andar því eðlilega.
Kremið myndar hlífðarlag á yf-
irborði húðarinnar og kemst með-
fram frumum í ysta lagi hennar.
Fituefnin haldast lengi í húðinni og
varna því að hún þorni upp, jafnvel
þótt hún sé í snertingu við vatn, svo
sem við handþvott eða í sundlaug.
Auk þess hjálpar f ituk rem-
ið húðinni að græða sár. Ef húðin
er þurr getur tekið langan tíma
fyrir sár að gróa en fitukremið
varð veitir raka umhverfis sárin.
Kremið gagnast einnig vel á þurr-
ar og sprungnar varir.
Húðolía
Ef húðin er þeim mun viðkvæmari
gæti Ceridal-húðolían verið betri
lausn. Fljótandi fituefni henta vel
á þurra og viðkvæma húð. Olían
inniheldur þrjár tegundir af olíu
og ekkert annað. Hún er þunn-
f ljótandi, tær fituolía, sem ver
húðina gegn þurrki og kemur í veg
fyrir að hún glati eðlilegum raka
sínum. Olían er í fljótandi formi og
því auðvelt að dreifa henni. Húð-
olíunni er sprautað beint á húðina
og hún hentar mjög vel á þurra staði
þar sem ekki er ráðlegt að nudda of
mikið. Fyrst í stað virðist húðin vera
fitug en að örfáum mínútum liðnum
hefur hún drukkið í sig olíuna og
húðin verður mjúk. Ceridal-húðolía
hentar mjög vel á sumrin á þurra fót-
leggi og þurra húð almennt. Líkt og
við á um Ceridal-fitukrem gagnast
húðolían einnig vel á sár.
Krem og andlitskrem
Ceridal-krem og andlitskrem eru
frábær vörn fyrir viðkvæma húð
og hafa einnig góð áhrif á exem og
ofnæmi. Kremin innihalda jurta-
olíur, sem minna talsvert á olíurnar
sem eru í húðinni frá náttúrunnar
hendi. Vörnin sem kremin veita
líkist því vörn húðarinnar sjálfrar.
Geta húðarinnar til að endurnýja sig
eykst þar af leiðandi og fyrr en varir
verður húðin mjúk.
Ceridal-krem er fyrir daglega um-
hirðu líkamans. Sérstaklega gott á
hendur, olnboga og hné. Andlits-
kremið er ætlað fyrir daglega um-
hirðu á andliti og hálsi.
Baðolía
Ceridal-baðolía er mild baðolía sem
gerir húðina mjúka og slétta, án þess
að hún verði fitug.
Baðolían er gerð úr olíum á borð
við parafínolíu og vínberjakjarna-
olíu, ásamt mildum hreinsiefnum.
Ólíkt öðrum baðolíum safnast
Ceridal-baðolía ekki í lag á yfir-
borðinu, heldur dreifist hún jafnt í
baðvatninu og kemst þannig í beina
snertingu við húðina. Þegar olían
blandast baðvatninu verður það
mjólkurhvítt að lit.
Mildar húðvörur
fyrir alla fjölskylduna
Ceridal-húðvörulínan er mild og hentar bæði fólki með venjulega húð og viðkvæma. Vörurnar verja
húðina fyrir kulda og þurrki og hjálpa húðinni að græða sár. Vörurnar eru mildar og henta því börnum og
fullorðnum jafnvel. Ceridal er heilsusamleg húðhirðulína fyrir alla fjölskylduna, laus við öll óþarfa
aukaefni. Hægt er að nálgast hana í næsta apóteki.
Barnvænar vörur
Allar vörurnar í
Ceridal-húðhirðu-
línunni eru algerlega
lausar við ilmefni,
paraben, litarefni,
lanólín, fleytiefni og
önnur óþörf aukaefni.
Vörurnar henta því vel
fyrir börn og ungbörn
með viðkvæma húð.
Börnum sem nota snuð
er hætt við ertingu í
kringum munninn, en
til að koma í veg fyrir
útbrot má bera þunnt
lag af Ceridal-fitukremi
í kringum munninn.
Ef barnið er með þurra
húð er mikilvægt að
bera reglulega á húð-
ina til að forðast það
að þurrkurinn breytist
í exem. Oft vilja börn
ekki láta bera á sig.
Ceridal-húðolía getur
gert þetta auðveldara
þar sem þunnfljótandi
olíunni er sprautað á
húðina, sem dregur
olíuna fljótt í sig án
sviða. Olían gagnast
enn fremur vel á
rauðan bossa og
bleyjuútbrot.
Baðolían hentar einnig
vel fyrir börn því hún
er mjög mild.
Ceridal- vörurnar fást
í apótekum og þar er
jafnframt hægt að fá
ráðleggingar um val
á Ceridal-vörum sem
henta hverjum og
einum.
KREM OG
ANDLITSKREM
FITUKREM
HÚÐOLÍA
BAÐOLÍA