Fréttablaðið - 29.08.2012, Page 25

Fréttablaðið - 29.08.2012, Page 25
KYNNING − AUGLÝSING Heilsa29. ÁGÚST 2012 MIÐVIKUDAGUR 5 Ceridal er mild húðhirðu-lína fyrir þá sem vilja huga sérstaklega að húðinni alla daga. Afurðirnar í línunni eru laus- ar við ilmefni, paraben, litarefni, lanólín, f leytiefni og önnur óþörf aukaefni. Öll innihaldsefni eru sérstaklega valin þannig að Ceri- dal henti bæði þeim sem eru með venjulega húð og þeim sem hafa viðkvæma húð eða húðsjúkdóm. Ceridal hentar fyrir vikið vel fyrir alla fjölskylduna. Helstu vörurnar í línunni eru fitukrem, húðolía, andlitskrem og baðolía. Fitukrem Þegar haustar að, hvessir og kólnar í veðri er þurr húð algengt vanda- mál hjá mörgum. Þá er mikilvægt að verja húðina vel. Ceridal-fitu- krem minnkar hættuna á húð- skemmdum af völdum kulda því fitukremið inniheldur ekki vatn og húðin andar því eðlilega. Kremið myndar hlífðarlag á yf- irborði húðarinnar og kemst með- fram frumum í ysta lagi hennar. Fituefnin haldast lengi í húðinni og varna því að hún þorni upp, jafnvel þótt hún sé í snertingu við vatn, svo sem við handþvott eða í sundlaug. Auk þess hjálpar f ituk rem- ið húðinni að græða sár. Ef húðin er þurr getur tekið langan tíma fyrir sár að gróa en fitukremið varð veitir raka umhverfis sárin. Kremið gagnast einnig vel á þurr- ar og sprungnar varir. Húðolía Ef húðin er þeim mun viðkvæmari gæti Ceridal-húðolían verið betri lausn. Fljótandi fituefni henta vel á þurra og viðkvæma húð. Olían inniheldur þrjár tegundir af olíu og ekkert annað. Hún er þunn- f ljótandi, tær fituolía, sem ver húðina gegn þurrki og kemur í veg fyrir að hún glati eðlilegum raka sínum. Olían er í fljótandi formi og því auðvelt að dreifa henni. Húð- olíunni er sprautað beint á húðina og hún hentar mjög vel á þurra staði þar sem ekki er ráðlegt að nudda of mikið. Fyrst í stað virðist húðin vera fitug en að örfáum mínútum liðnum hefur hún drukkið í sig olíuna og húðin verður mjúk. Ceridal-húðolía hentar mjög vel á sumrin á þurra fót- leggi og þurra húð almennt. Líkt og við á um Ceridal-fitukrem gagnast húðolían einnig vel á sár. Krem og andlitskrem Ceridal-krem og andlitskrem eru frábær vörn fyrir viðkvæma húð og hafa einnig góð áhrif á exem og ofnæmi. Kremin innihalda jurta- olíur, sem minna talsvert á olíurnar sem eru í húðinni frá náttúrunnar hendi. Vörnin sem kremin veita líkist því vörn húðarinnar sjálfrar. Geta húðarinnar til að endurnýja sig eykst þar af leiðandi og fyrr en varir verður húðin mjúk. Ceridal-krem er fyrir daglega um- hirðu líkamans. Sérstaklega gott á hendur, olnboga og hné. Andlits- kremið er ætlað fyrir daglega um- hirðu á andliti og hálsi. Baðolía Ceridal-baðolía er mild baðolía sem gerir húðina mjúka og slétta, án þess að hún verði fitug. Baðolían er gerð úr olíum á borð við parafínolíu og vínberjakjarna- olíu, ásamt mildum hreinsiefnum. Ólíkt öðrum baðolíum safnast Ceridal-baðolía ekki í lag á yfir- borðinu, heldur dreifist hún jafnt í baðvatninu og kemst þannig í beina snertingu við húðina. Þegar olían blandast baðvatninu verður það mjólkurhvítt að lit. Mildar húðvörur fyrir alla fjölskylduna Ceridal-húðvörulínan er mild og hentar bæði fólki með venjulega húð og viðkvæma. Vörurnar verja húðina fyrir kulda og þurrki og hjálpa húðinni að græða sár. Vörurnar eru mildar og henta því börnum og fullorðnum jafnvel. Ceridal er heilsusamleg húðhirðulína fyrir alla fjölskylduna, laus við öll óþarfa aukaefni. Hægt er að nálgast hana í næsta apóteki. Barnvænar vörur Allar vörurnar í Ceridal-húðhirðu- línunni eru algerlega lausar við ilmefni, paraben, litarefni, lanólín, fleytiefni og önnur óþörf aukaefni. Vörurnar henta því vel fyrir börn og ungbörn með viðkvæma húð. Börnum sem nota snuð er hætt við ertingu í kringum munninn, en til að koma í veg fyrir útbrot má bera þunnt lag af Ceridal-fitukremi í kringum munninn. Ef barnið er með þurra húð er mikilvægt að bera reglulega á húð- ina til að forðast það að þurrkurinn breytist í exem. Oft vilja börn ekki láta bera á sig. Ceridal-húðolía getur gert þetta auðveldara þar sem þunnfljótandi olíunni er sprautað á húðina, sem dregur olíuna fljótt í sig án sviða. Olían gagnast enn fremur vel á rauðan bossa og bleyjuútbrot. Baðolían hentar einnig vel fyrir börn því hún er mjög mild. Ceridal- vörurnar fást í apótekum og þar er jafnframt hægt að fá ráðleggingar um val á Ceridal-vörum sem henta hverjum og einum. KREM OG ANDLITSKREM FITUKREM HÚÐOLÍA BAÐOLÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.