Fréttablaðið - 29.08.2012, Page 26
KYNNING − AUGLÝSING MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2012
Hlaupaíþróttin er ein vin-sælasta íþróttin hér lendis og hefur verið í mörg ár.
Fjöldi Íslendinga stundar hlaup,
ýmist einir eða í skipulögðum
hlaupahópum. Það kostar ekki
mikla fjármuni að stunda hlaup
utan þess að fjárfesta þarf í bæri-
legum hlaupaskóm. Margir ný-
liðar fara þó of geyst af stað þegar
þeir byrja að stunda hlaup og
hætta jafnvel fyrir vikið. Gunnar
Páll Jóakimsson, íþróttafræð ingur
og hlaupaþjálfari, segir mikil-
vægt fyrir byrjendur að meta eigin
stöðu og getu í upphafi í stað þess
að fara of geyst af stað. „ Stundum
er í góðu lagi að byrja á því að
ganga ef menn eru ekki í of góðu
formi. Gott er að blanda saman
léttum hlaupum og göngu í upp-
hafi í því hlutfalli sem hver og einn
treystir sér til. Flestir ættu að ráða
við hlaup og labb í 20-30 mínútur
til að byrja með.“ Hann mælir
einnig með því að sama leiðin sé
farin að minnsta kosti einu sinni
í viku svo hægt sé að fylgjast með
framförum.
Góðir skór skipta máli
Eitt mikilvægasta atriði sem þarf
að hafa í huga er að vera í góðum
skóm. „Slæmir skór geta hreinlega
valdið meiðslum og því er nauðsyn-
legt að vera í góðum skóm. Þeir sem
eru að hefja hlaup ættu líka að vera
óhræddir við að leita aðstoðar hjá
starfsmönnum verslana því ekki
er sama hvaða skór eru valdir. Kári
Steinn hleypur til dæmis í mjög
léttum skóm sem henta ekki endi-
lega byrjendum á miðjum aldri svo
dæmi sé tekið.“ Hægt er að hlaupa
úti nær allt árið hérlendis og þá
þarf að hlaupa í viðeigandi fatnaði.
Gunnar Páll hefur þjálfað hlaupa-
hópa yfir veturinn og segir nóg
að vera í léttum fatnaði sem tekur
vindinn vel. Undir honum er gott
að klæðast hlýjum fatnaði og hafa
húfu og vettlinga.
Hlaupahópar veita aðhald
Margir nýliðar kjósa að hlaupa
með hlaupahópum. Gunnar segir
það auðvitað einstaklingsbundið
hvað henti hverjum og einum en
slíkir hópar séu góðir til að veita
stuðning og aðhald í upphafi. „Í
mörgum tilfellum er aðhaldið
lykillinn. Ég hef þjálfað hlaupa-
hópa með einstaklingum sem
voru alltaf að byrja og hætta en
fundu sér farveg í slíkum hópum.
Það eru fjölmargir hlaupa hópar
starfandi á höfuðborgar svæðinu
og um allt land. Flestir ættu að
geta fundið hóp nálægt heimili
sínu eða vinnustað. Ég hvet ný-
liða til að skoða vel þann mögu-
leika að hlaupa með hlaupahópi
í upphafi.“
Algengustu mistökin
Gunnar segir algeng mistök hjá
nýliðum að taka of vel á öllum
æfingum þannig að allar æfingar
séu erfiðar. „Margir fara of geyst
af stað og ætla sér of mikið á
skömmum tíma. Það þýðir lítið
að vera óþolinmóður í upphafi.
Það tekur oft margar vikur, jafn-
vel þrjá mánuði, að sjá verulegar
framfarir. Þótt hlauparinn við
hliðina á þér sýni meiri framfarir
getur verið að hann hafi allt annan
grunn en þú sjálfur. Það þýðir því
ekkert að gefast upp þótt þetta sé
pínulítið erfitt fyrstu vikurnar.“
Hann bendir aftur á hlaupahópa
í því sambandi sem gott aðhald
fyrstu vikurnar. Ef vel sé hugað
að upphafinu, góðum styrktar-
og teygjuæfingum og auðvitað
góðum hlaupaskóm geti f lestir
hlaupið langt fram eftir aldri.
„Ég veit um marga 70-80 ára sem
hlaupa enn þá þótt þeir séu farnir
að blanda annarri hreyfingu inn í,
svo sem sundi, göngu, styrktaræf-
ingum og hjólaferðum.“
Ekki fara of geyst af stað
Fjölmargir Íslendingar stunda hlaup. Mikilvægt er fyrir nýliða að fara rólega
af stað og sýna þolinmæði. Góðir hlaupaskór skipta líka miklu máli.
„Margir fara of geyst af stað og ætla sér of mikið á skömmum tíma,“ segir Gunnar Páll Jóakimsson, íþróttafræðingur og hlaupaþjálfari.
MYND/GVA
Flaggskipið okkar í lífrænum drykkjum í dag er
vörumerkið Lima,“ segir Þóra Dagfinnsdóttir,
framkvæmdastjóri Arka.
„Lima er belgískt fyrirtæki sem starfað hefur í
sextíu ár en Lima var fyrst til að koma með hrís-
mjólk og hrískökur á markað í Evrópu. Við hjá Arka
höfum boðið upp á vörur frá Lima í níu ár. Þær hafa
reynst vel og hægt er að treysta gæðum þeirra full-
komlega. Við fáum mikið af fyrirspurnum frá fólki
með ýmiss konar ofnæmi eða óþol en hrísmjólk-
in frá Lima er án laktósa og glútens, án viðbætts
sykurs og án kólesteróls. Hún er því tilvalin fyrir þá
sem eru með laktósa- eða glútenóþol og fyrir alla
sem vilja huga að heilsunni,“ segir Þóra.
„Hrísmjólkin frá Lima er notuð alveg eins og
önnur mjólk, til drykkjar, út á morgun kornið, í
bakstur og í morgunþeytinga. Hún er unnin úr
hýðishrísgrjónum og er ekki bara næringarrík
heldur líka hvít og falleg og mjög lystug. Við seljum
einnig mikið af haframjólk og sojamjólk frá Lima
og þá eru sjökorna hrískökurnar og maís kökur
einnig mjög vinsælar frá þeim enda lífrænar og
glútenlausar.“
Vörurnar frá Arka er að finna í flestum matvöru-
verslunum allt land og í öllum heilsubúðum.
Nánar á www.arka.is
Engin aukaefni
Arka heilsuvörur bjóða lífrænar matvörur frá Lima. Vörurnar innihalda engin
aukaefni og flestar henta þeim sem eiga við laktósa- eða glútenóþol að stríða.
Lífrænir epla- og
appelsínusafar frá
Healthy People eru
án viðbætts sykurs. Trönuberjasafinn frá
Healthy People er
án viðbætts sykurs
og einstaklega
bragðgóður.
Ólöf og Þóra Björg Dagfinnsdætur, eigendur Arka. MYND/GVA