Fréttablaðið - 29.08.2012, Side 28

Fréttablaðið - 29.08.2012, Side 28
KYNNING − AUGLÝSINGHeilsa MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 20128 HEILKORN STUÐLA AÐ JAFNVÆGI Í ÞYNGD Rétt fæðuval er mikilvægara en hlutfallsleg skipting orkuefnanna – kolvetna, fitu og próteina – hvað varðar holdafar. Samkvæmt niðurstöðum úr kerfisbundnu yfirliti um matar æði og þyngdar- breytingar sem birtar voru í tímaritinu Food and Nutrition Research nýlega eru minni líkur á þyngdaraukningu eða aukningu mittismáls ef fæðuvalið einkenn- ist af ríflegri ávaxta- og grænmet- isneyslu, neyslu heilkornaafurða, fisks og mjólkur. Rífleg neysla á kjöti, fínunnum kornvörum, sætindum og orkuþéttum mat ýtti hins vegar undir þyngdar- aukningu eða aukið mittismál. Sagt er frá rannsókninni á vef landlæknisembættisins en Ingi- björg Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, er einn höfunda greinarinnar sem birtist í Food and Nutrition Research. Á síðunni er einnig að finna hlekk á greinina. www.landlaeknir.is HEILAFÓÐUR HOLLT OG GOTT Nú hafa skólar hafið göngu sína á ný og flestir námsmenn hafa metnaðarfullar áætlanir fyrir veturinn. Matur hefur ótrúlega mikil áhrif á frammistöðu í námi. Hér eru nokkur dæmi um heil- næmt heilafóður: Ferskvatnsfiskur er uppfullur af Omega-3 fitusýrum sem er uppáhaldsmatur heilans, en þær eru líka í hnetum og hörfræjum. Annað sem er í eftirlæti er matur sem inniheldur soja, litríkir ávextir, ber, blómkál og radísur. Karrý kemur sterkt inn því það inniheldur túrmerik sem verndar heilann. Kornmeti gefur heilanum orku og svo eykur súkkulaði bæði gleði og gáfur. Hugsum vel um heilann í haust! KÖNGULÓ, VÍSAÐU MÉR Á BERJAMÓ Nú fer hver að verða síðastur að krækja sér í nýtínd ber þar sem næturfrost er farið að gera vart við sig. Hollusta berja er óumdeild enda eru þau auðug af vítamínum, steinefnum, trefjaefnum og öðrum hollustuefnum. Sérstaklega eru þau rík af C-vítamíni auk þess sem bláber geyma mikið E-vítamín í sér. C- og E-vítamín eru andoxunarefni sem hægja á hrörnun og hindra myndun skaðlegra sindurefna í líkamsfrumum okkar. Litarefnið anthocyanin sem er í bláberjum er einnig talið vera ástæðan fyrir sérstöðu þeirra hvað varðar magn andoxunarefna. Í krækiberjum er meira af járni en í bláberjum. Sé fólk að hugsa um línurnar ættu ber að vera ofarlega á matseðlinum. Í 100 grömmum af berjum eru ekki nema á bilinu 27-60 hitaeiningar, minnst í krækiberjum en mest í bláberjum. Sama magn bláberja gefur 38 mg af C-vítamíni eða um tvo þriðjunga af ráðlögðum dagskammti og fimmtung af ráðlögðum dagskammti fyrir E-vít- amín. www.lydheilsustod.is Við getum allar verið heilbrigðar & hamingjusamar. Með KK-Eðaláskrift hefurðu aðgang að því sem til þarf fyrir aðeins 7.990* á mánuði. Með þátttöku í KK klúbbnum kemstu jafnt í opna sem LOKAÐA tíma. KK klúbburinn er klárlega hagstæðasta leiðin. Allt þetta er innifalið í Baðhúsinu fyrir aðeins kr. 7.990* á mánuði; - Afró. - Zumba. - FondaFitness. - Hot jóga. - Heitt JógaTóning. - Salsa. - 80´s diskóveisla. - CxWorX. - Sálarspinning. - Heilsuátak. - Krossþjálfun. - Tabata (Trx, Bosu, ketilbjöllur). - Les Mills tímar. - Óperuspinning. - Stórátak. - Tækjakennsla. - FlexiFit. - Hot Balance. - o. m. fl. Auk þessa fylgja eftirfarandi fríðindi að verðmæti kr. 87.340; - Árskort í Sundlaugar Reykjavíkur (ÍTR). - 2 tímar hjá einkaþjálfara. - Vikukort fyrir vinkonu. - 5 stykkja booztkort. - Handklæði við hverja komu. Og auðvitað hefurðu líka aðgang að heitri laug, vatnsgufu, sauna og notalegu hvíldarhreiðri. Komdu í Baðhúsið - og náðu markmiðum þínum. Við getum það allar. Nánari upplýsingar á www.badhusid.is/kk 7.990* á mánuði í KK áskriftarklúbbnum, Eðaláskrift, lágmarkstími 12 mánuðir. **Flugvallarskattar eru ekki innifaldir og greiðast sérstaklega. Valdar dags. í boði. Lj ós m yn da ri K ja rt an M ár Heilbrigđ &hamingjusöm Aðrar áskriftarleiðir einnig í boði frá kr. 5.490 á mánuði. Skráðu þig í KK-Eðaláskrift dagana 20. -30. ágúst og við gefum þér flugmiða til London!með Iceland Express**Verðmæti um 40.000 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.