Fréttablaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 8
21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR8
1. Hvar er hæsta húsaleiguverðið á
höfuðborgarsvæðinu?
2. Hvað vill norska strandgæslan
fá í skaðabætur vegna Goðafoss?
3. Hvaða hlutverk fer leikkonan
Jóhanna Vigdís Arnardóttir með
í uppsetningu Borgarleikhússins í
vetur?
SVÖR:
1. Í Vesturbænum 2. 85 milljónir norskra
króna 3. Mary Poppins
ÁGÚSTTILBOÐ
50 stk. Verð áður 487 kr.
414 KR.
TILBOÐSVERÐ
TAKTU KAFFIÐ MEÐ ÞÉR!
Vnr. 83010208
LITAÐIR
PAPPABOLLAR
Stórhöfða 42, Reykjavík
Austursíðu 2, Akureyri
587 7788
papco.is
Góð þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Skoðaðu úrvalið í sýningarsal okkar að Askalind 1, Kópavogi.
Heimilisleg hjúkrunarrúm
Úrval hjúkrunarrúma með rafknúnum
stillingum, ásamt vönduðum náttborðum.
Þýsk gæðavara á hagstæðu verði.
STJÓRNSÝSLA Áfengis- og tóbaks-
verslun ríkisins telur sér óheimilt
að veita upplýsingar um sölu fyrir-
tækisins á áfengi án áfengisgjalds.
Þann 10. júlí síðastliðinn óskaði
Fréttablaðið eftir því við ÁTVR
að fá upplýsingar um heildarsölu
fyrir tækisins samkvæmt reglum
um aðila sem
rétt hafa á því
að kaupa áfengi
á kostnaðar-
verði . Spurt
var um tíma-
bilið 2005 til
2012 og beðið
um sundurliðun
eftir hverjum
og einum sem
heyrir undir
reglurnar.
„ÁTVR telur að það sé óheimilt
að veita upplýsingar sem snerta
viðskiptavini. Jafnframt er það
skoðun ÁTVR að upplýsingalögin
taki ekki til svona tilvika enda taki
þau til málefna viðkomandi stofn-
unar en ekki þriðja aðila,“ segir í
svari sem barst 16. júlí frá Sigrúnu
Ósk Sigurðardóttur, aðstoðarfor-
stjóra ÁTVR.
Nánar um málið segir í svari
ÁTVR að þótt starfsemi fyrirtæk-
isins sé í stórum þáttum stjórn-
sýslulegs eðlis sé fyrirtækið engu
að síður einkaaðili í skilningi upp-
lýsingalaga.
„Lögin taka aðeins til starfsemi
einkaaðila að því leyti sem þeim
hefur verið falið opinbert vald til
þess að taka ákvarðanir um rétt
eða skyldu manna,“ segir ÁTVR
sem kveður sölu áfengis, hvort sem
hún sé til einkaaðila eða opinberra
aðila eins og ráðuneyta, ekki falla
í þennan flokk. „Salan er hluti af
þjónustustarfsemi ÁTVR sem er
afdráttarlaust undanþegin skyldu
til afhendingar upplýsinga. Fyrir-
spurnin fellur þannig utan gildis-
sviðs laganna og er því hafnað.“
Í framhaldi af svari ÁTVR ósk-
aði Fréttablaðið þann 17. júlí eftir
upplýsingum um áfengisinnkaup
beint frá þeim aðilum sem falla
undir áðurgreindar reglur sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjórnar-
innar. Þetta eru embætti forseta
Íslands, Alþingi, ráðuneyti, emb-
ætti biskups Íslands auk sjálfs
fyrirtækisins ÁTVR. Aðeins hafa
borist upplýsingar frá forseta-
embættinu, sem svaraði 23. júlí og
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu sem svaraði 13. ágúst.
Aðrir ýmist hafa ekki svarað eða
vísa til tímaskorts vegna sumar-
leyfa.
Meðal þess sem kemur fram í
svörunum er að forsetaembætt-
ið keypti áfengi á kostnaðarverði
fyrir 1.858.916 krónur árið 2008 og
fyrir 1.887.410 krónur á árinu 2011.
Sömu tölur fyrir menntamálaráðu-
neytið eru 1.063.460 krónur árið
2008 og 797.494 krónur í fyrra.
Sala án áfengisgjalds
ekki upplýst af ÁTVR
ÁTVR neitar að upplýsa um sölu á áfengi á kostnaðarverði til ríkisstofnana.
Aðeins menntamálaráðuneytið og forsetaembættið hafa svarað Fréttablaðinu
um innkaupin frá því fyrirspurn var send viðkomandi aðilum um miðjan júlí.
SIGRÚN ÓSK
SIGURÐARDÓTTIR
ÁFENGISVERSLUN ÁTVR Lög mæla fyrir um að tilteknir aðilar sem ríkisstjórnin
ákveður og þeir sem njóta skattfrelsis á Íslandi samkvæmt alþjóðasamningum megi
kaupa áfengi af ÁTVR án þess að borga áfengisgjald. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÖGREGLUMÁL Ungur maður er mjög
lemstraður, skorinn og marinn í
andliti eftir að hafa í tvígang orðið
fyrir árás hóps manna aðfaranótt
sunnudags. Árásarmennirnir, sem
í fyrra skiptið voru þrír en hafði
fjölgað um einn í það seinna, voru
allir handteknir og yfirheyrðir.
Ástæða barsmíðanna, að sögn
Jóhannesar Jenssonar, yfirmanns
rannsóknardeildar lögreglunn-
ar á Suðurnesjum, var sú að einn
fjórmenninganna taldi að sá sem
fyrir ofbeldinu varð væri klæddur
í peysu eða jakka í sinni eigu.
Ekki liggur fyrir hvort það átti
við rök að styðjast en hann fann
sig alltént knúinn til að hefna þess
og freista þess að endurheimta
flíkina. Við það fékk hann aðstoð
félaga sinna, en í seinna skiptið
þurftu þeir einnig að halda aftur
af vinafólki fórnarlambsins, sem
reyndi að koma því til hjálpar. Alls
tóku sjö þátt í slagsmálunum þegar
mest lét. Málið er enn í rannsókn.
Á svipuðum tíma braust hálfþrí-
tugur maður inn í íbúðarhús í
bænum og gekk í skrokk á húsráð-
anda sem hafði vaknað við ólæt-
in þegar húsbrjóturinn mölvaði
rúðuna í útidyrunum. Svo virðist
sem hann hafi ætlað að gera upp
sakir við mann sem reyndist alls
ekki vera á staðnum. - sh
Fimm menn handteknir vegna líkamsárása í Reykjanesbæ um helgina:
Deila um flík leiddi til hópslagsmála
ANNASAMT Helgin var nokkuð annasöm
hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Save the Children á Íslandi
HJÁLPARSTARF Landssöfnun er hafin
fyrir Fjölskylduhjálp Íslands og
kjóla- og nytjamarkaður samtak-
anna í Eskihlíð í Reykjavík verður
opnaður aftur eftir breytingar 22.
ágúst næstkomandi.
Í tilkynningu frá Fjölskyldu-
hjálpinni segir að samtökin biðli
nú til landsmanna allra um fram-
lög, enda sé mikil þörf á aðstoð
til handa þeim sem standa höll-
um fæti í þjóðfélaginu. Í fyrra
afgreiddi Fjölskylduhjálpin 26.000
matargjafir til yfir fimm þúsund
fjölskyldna og einstaklinga. - sh
Fjölskylduhjálpin safnar:
Kjólamarkaður
opnar aftur
VEISTU SVARIÐ?
Salan er hluti af
þjónustustarfsemi
ÁTVR sem er afdráttarlaust
undanþegin skyldu til
afhendingar upplýsinga.
SIGRÚN ÓSK SIGURÐARDÓTTIR
AÐSTOÐARFORSTJÓRI ÁTVR