Fréttablaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 28
21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR24
Ástarsamband karls og
konu er umfjöllunarefni
leikritsins 52 sem verður
frumsýnt annað kvöld. Upp-
bygging verksins er óvenju-
leg en tilviljun ræður í
hvaða röð senur verksins
eru fluttar.
„Leikritið 52 er samansett úr 52
senum sem spanna allt samband
söguhetjanna tveggja, frá því
að þau kynnast og þar til að tvö
ár eru liðin frá skilnaði þeirra,“
segir Hannes Óli Ágústsson, annar
tveggja leikara verksins 52 sem
frumsýnt verður í Gym & Tonic
salnum á Kexi annað kvöld. Auk
Hannesar Óla standa að verkinu
þau Melkora Óskarsdóttir sem fer
með kvenhlutverk verksins og þýðir
það að auki og Vignir Rafn Valþórs-
son sem leikstýrir verkinu.
Uppbygging verksins er ekki
hefðbundin og hún veldur því að
engar tvær sýningar verða eins.
„Í upphafi leikritsins köstum við
spilastokk á loft, á hvert spil er
ritað nafn atriðis úr verkinu og
atriðin eru leikin í þeirri röð sem
við drögum spilin upp af gólfinu.
Það er þannig tilviljunum háð í
hvaða röð þau eru leikin. Áhorfend-
ur fylgjast þannig með sambandi
söguhetjanna í brotakenndri röð,
sem er mjög áhugavert og rímar
við minningar fólks, þær eru ekki
endilega í tímaröð með skipulögðu
upphafi og endi,“ segir Hannes Óli
sem segir krefjandi og þroskandi að
leika í verkinu. „Og verkið er mjög
skemmtilegt. Áhorfendur tengja
örugglega vel við senurnar í verk-
inu sem spanna allt frá vandræða-
legum fyrstu kynnum, rifrildum
pars um ekki neitt, símtöl og eftir-
mála sambandsins.“
Hannes Óli og Melkorka eru
gamlir vinir og höfðu lengi leitað að
verki til að setja upp saman. „Mel-
korka frétti svo af þessu leikriti sem
er kanadískt verðlaunaverk eftir T.
J. Dawe og Ritu Bozi. Við settum
okkur í samband við höfundana sem
tóku okkur vel,“ segir Hannes Óli.
„Við fengum svo Vigni Rafn til liðs
við okkur en hann leikstýrir verk-
inu, við erum gamlir vinir og höfum
áður unnið saman.“
Tvær sýningar eru áætlaðar á 52.
Sú fyrri er á morgun klukkan sex
í Gym & Tonic-salnum á Kexi sem
fyrr sagði og hin síðari er á föstudag
á sama tíma. sigridur@frettabladid.is
24
menning@frettabladid.is
SETJA UPP VERK UM SAMBAND KARLS OG KONU Hannes Óli, Vignir og Melkorka eru
aðstandendur sýningarinnar 52 sem frumsýnd er annað kvöld.
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
Z
20
12J
A Z
REYKJAV ÍK 21. ÁGÚST
www.reykjavikjazz.is
norra na husid e
-
-
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Að morgni afmælisdags Reykja-
víkurborgar, þann 18. ágúst, undir-
rituðu Jón Gnarr borgarstjóri og
Kristín Steinsdóttir, formaður Rit-
höfundasambands Íslands, gjafaaf-
sal þar sem Reykjavíkurborg gefur
Rithöfundasambandi Íslands Gunn-
arshús að Dyngjuvegi 8 í Reykjavík
í tilefni af því að Reykjavík er orðin
ein af Bókmenntaborgum UNESCO.
Við sama tækifæri gaf Gunnar
Björn Gunnarsson, fulltrúi fjöl-
skyldunnar og stjórnarformaður
Gunnarsstofnunar, Rithöfundasam-
bandinu ljósmyndir úr einkasafni af
heimili Gunnars Gunnarssonar og
Franziscu Antoniu Josephine Jörg-
ensen, konu hans.
Við lyklaskiptin las Pétur Gunn-
arsson rithöfundur ljóð Hannesar
Péturssonar, Í húsi við Dyngjuveg,
og Sigurður Pálsson rithöfundur
sagði söguna um fræið bak við tréð,
eða tilurð þess að borgin keypti
húsið á sínum tíma.
Gunnarshús eftir Hannes Kr.
Davíðsson arkitekt var byggt á
árunum 1950-52 sem heimili Gunn-
ars Gunnarssonar rithöfundar og
Franziscu konu hans. Reykjavík-
urborg keypti húsið árið 1991 og
árið 1997 var gengið frá samningi
milli Reykjavíkurborgar og Rithöf-
undasambandsins um ótímabund-
in afnot sambandsins af húsinu, í
því skyni að þar verði miðstöð og
félagsaðstaða íslenskra rithöfunda
og að með því sé heiðruð sérstak-
lega minning skáldsins Gunnars
Gunnars sonar.
Gunnarshús er nú miðstöð rúm-
lega 400 meðlima sambandsins og
jafnframt hefur húsið orðið að lif-
andi minningu um Gunnar Gunn-
arsson, með fjölda viðburða sem
varða skáldið og verk hans.
Rithöfundar fá lykil-
inn að Gunnarshúsi
LYKLASKIPTI Jón Gnarr borgarstjóri afhendir Kristínu Steinsdóttur, formanni Rithöf-
undasambands Íslands, lyklana að Gunnarshúsi. MYND/HÖFUÐBORGARSTOFA
Spilastokk hent á loft og
dregið um röð atriðanna
TÓNLEIKAR Í LISTASAFNI SIGURJÓNS Ítalskur andblær verður ráðandi á tónleikum Listasafns
Sigurjóns í Laugarnesi í kvöld þegar klarínettuleikarinn Einar Jóhannesson og ítalski píanóleikarinn Alessandra
Pompili leika verk eftir Nino Rota, Franz Liszt, Þorkel Sigurbjörnsson, Sergio Calligaris og Paul Jean-Jean.
Þriðjudagur 21. ágúst 2012
➜ Tónlist
20.30 Einar Jóhannesson klarinettuleik-
ari og Alessandra Pompili píanóleikari
koma fram á sumartónleikum Listasafns
Sigurjóns. Miðaverð er kr. 2.000.
21.00 Kvartett franska bandoneon-
leikarans Olivier Manoury kemur fram á
djasstónleikaröð KEX Hostels, Skúlagötu
28. Hljóðfæri Oliviers, bandoneon,
er argentínsk harmóníka. Aðgangur
ókeypis.
21.00 Janis Carol Nielsson og landslið
íslenskra djassleikara halda tónleika á
Café Rosenberg.
21.00 Trompetleikarinn Ari Bragi
Kárason kemur fram á Græna hattinum
ásamt djasshljómsveit sinni frá New
York, Melismetiq. Aðgangseyrir er kr.
2000.
22.00 Guðmundur Pétursson og
hljómsveit halda tónleika á Jazzhátíð
Reykjavíkur á Faktorý. Þeir munu meðal
annars leika tónlist af plötunni Elabórat.
Miðaverð er kr. 2.000.
➜ Útivist
19.30 Guðný Aradóttir býður áhuga-
sömum að mæta í stafagöngukennslu
í Viðey en hún er einn fremsti leið-
beinandi landsins í íþróttinni. Þátttaka
er ókeypis en gjald í Viðeyjarferju er
kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir
börn 7-15 ára.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Áhorfendur fylgjast
þannig með sam-
bandi söguhetjanna í brota-
kenndri röð.
HANNES ÓLI ÁGÚSTSSON
LEIKARI