Fréttablaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 30
21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR popp@frettabladid.is LATE SHOW Hér eru samstarfskonurnar Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir og Beth Orton á veitingastaðnum Luciens í New York eftir Late Show með David Letterman. MYND/MICHAEL NEVIN Söngkonan Beth Orton fékk tvíeykið Árna & Kinski og Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur til að vinna tónlistarmynd- band fyrir sig á dögunum. Leikstjóratvíeykið Árni & Kinski leikstýrði fyrir skömmu nýju myndbandi ensku indí-söngkon- unnar Beth Orton. Hún er þekkt fyrir rafskotna þjóðlagatónlist. Tónlistarmyndbandið er við lagið Magpie sem er væntanlegt á nýrri breiðskífu hennar Sug- aring Season í byrjun október og fóru tökur fram í Colorado í Bandaríkjunum. Með þeim vann stílistinn Hrafnhildur Hólm- geirsdóttir. „Stewart, umboðs- maður Beth, hringdi í okkur fyrir tveimur mánuðum,“ segir Stefán Árni sem leikstýrði ásamt Sigga Kinski. Þeir hafa gert fjölda tón- listarmyndbanda, þar á meðal fyrir Snow Patrol, Placebo, Ólöfu Arnalds og Sigur Rós. Beth þekkti til vinnu þeirra og Hrafnhildar og bað sérstak- lega um samstarf. „Ég held satt best að segja að þetta hafi komið frá henni. Það er langbest þegar listamaðurinn velur samstarfs- menn sína. Það byggir upp ákveð- ið traust og gerir allt auðveldara,“ segir Stefán en Beth hefur list- ræna stjórn yfir vinnu sinni. Myndbandið var tekið upp á ótrúlega sjónrænum stað. „Við vorum uppi á The Great Sand Dunes en þar eru risastórar sand- öldur.“ Hrafnhildur bætir við að aðstæður hafi verið frekar erfið- ar; mikil hæð yfir sjávarmáli og hiti í það minnsta fjörutíu gráður. Hún sá einnig um klæðnað fyrir komu Beth í þáttinn Late Show með David Letterman en hann var sýndur vestra 15. ágúst. Þar klæddist hún kjól frá Aftur, hönnun Báru Hólmgeirsdóttur, og bar hálsmen frá Kríu, skart- gripahönnun Jóhönnu Methúsa- lemsdóttir. Ekki nægðu þessi íslensku tengsl heldur farðaði Andrea Helgadóttir og Tinna Empera Arlexdóttir annaðist hár. „Í myndbandinu er hún líka í kjól frá Aftur og með hátt í hundrað metra handhnýtt bönd sem mynda sviðsmynd sem ég gerði,“ segir Hrafnhildur og lýsir umstang- inu í kringum þáttinn. „Þetta var algjört ævintýri. Svo var fyndið að hafa Lionel Richie í næsta her- bergi. Skemmtilegast var þó að vinna fyrir Beth því hún er ynd- isleg manneskja,“ segir hún og lýsir henni sem ókrýndri drottn- ingu þjóðlagatónlistar. hallfridur@frettabladid.is Bað um íslenska listamenn ÁRA ER LEIKKONAN KIM CATTRALL Í DAG. Hún er hvað frægust fyrir að fara með hlutverk hinnar frökku Samönthu í sjónvarpsþáttunum Beðmál í borginni. 56 Frá 1957 Elsta starfandi fasteignasala landsins S í m i : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • w w w . e i g n a m i d l u n . i s Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali Laugavegur 63 íbúð 0202- endurn. Glæsileg 2ja herbergja 51 fm íbúð á 2.hæð í mjög góðu velstaðsettu fjölbýli í miðborginni. Stórar (ca 45 fm) svalir út af stofu. Íbúðin var endurnýjuð má segja frá grunni 2001 m.a. eldhús, bað, gólfefni, innréttingar, skápar, lagnir og fl. Góð lofthæð. Falleg lýsing fylgir og gardínur. Laus fljótlega. Mjög góð sameign. OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:30 - 18:00 V. 18,9 M. 1868 Kleppsvegur 118 0802 - Frábært úts. Falleg 2ja herbergja 64,3 fm íbúð í lyftuhúsi á 8. hæð. Nýleg gólfefni, rúmgóðar svalir til suðurs, björt stofa og rúmgott svefnherbergi. OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:15 - 18:00. V. 16,9 M. 1887 Hvassaleiti 21 - miðjuraðhús Gott samtals 258,1 fm miðjuraðhús við Hvassaleiti. Stór verönd. Yfirbyggðar svalir. Innbyggður bílskúr. Fjögur svefnherbergi. Stórar stofur. Gegnheilt parket. OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:00 - 18:00 V. 47,0 M. 1420 Laufásvegur 25 - sérhæð - laus strax Falleg og mikið uppgerð miðbæjar íbúð með sér inngangi í virðulegu steinhúsi sem stendur á milli Laufásvegar og Þingholtsstrætis. Gengið er inn frá Þingholtsstræti. Laus strax. OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:15 - 18:00. V. 29,9 M. 1731 Miðbraut 6 Seltjarnarnesi - parhús Um er að ræða 164,9 fm tveggja hæða parhús og bílskúr á frábærum stað. Húsið skiptist í forstofu, þvottahús, gestasalerni, eldhús, rúmgóða stofu, fjögur herbergi og baðherbergi. Eignin þarfnast standsetningar . OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:15 - 18:00 V. 39 M. 1851 Laugavegur 86-94 - þrjár nýl. íbúðir. Sýnum í opnu húsi á þriðjudag þrjár nýlegar fallegar 2ja herbergja ca 75 - 92 fm íbúðir á 2. og 3.hæð í nýlegu vönduðu lyftuhúsi á fínum stað í miðborginni á Stjörnubíósreitnum. Vandaðar innréttingar, parket. Sérþvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla við hlið íbúðar. UM ER AÐ RÆÐA ÍBÚÐIR 201, 92,4 FM VERÐ 26,5 M. ÍB. 209 FM V. OG ÍB. 0306, 81,9 FM V. 24,9 M. OPIÐ HÚS Í DAG ÞRIÐJUDAG FRÁ KL. 17:15 - 18:00 1007 OP IÐ HÚ S OP IÐ HÚ S OP IÐ HÚ S OP IÐ HÚ S OP IÐ HÚ S OP IÐ HÚ S Nicki Minaj hefur þjáðst vegna særinda í hálsi að undanförnu. Læknar sögðu henni að hvíla röddina í hið minnsta tvær vikur. Hún lét það ekki stoppa sig og kom fram í The Today Show fyrr í vikunni. Það kemur nú niður á tónleikahaldi því hún neydd- ist til að aflýsa flutningi sínum á bresku tónleikahá- tíðinni V Festival um helgina til að hvíla raddbönd- in. Minaj hvílir raddböndin NICKI MINAJ Söngkonan aflýsti tón- leikum á V Festival um helgina. Madonna hefur verið kærð af níu aðgerðasinnum í Rússlandi. Þeir krefjast þess að hún greiði 10,5 milljónir dollara fyrir að hafa lýst yfir stuðningi sínum við réttindi samkynhneigðra á tónleikum í Sankti Pétursborg í Rússlandi á dögunum. Í Rússlandi voru lög sam- þykkt í febrúar sem banna fólki að auglýsa samkynhneigð fyrir fólki undir lögaldri en á tón- leikunum voru börn frá tólf ára aldri. Bleikum armböndum var dreift á tónleikunum og var fólk látið lyfta höndum með þeim í sameiningu fyrir réttindum samkynhneigðra. Alexander Pochuyev, lög- fræðingur hópsins, gaf út til- kynningu til varnar skjólstæð- ingum sínum. „Það er enginn að brenna neinn á báli eða að framkvæma nákvæma rann- sókn. Nútíma þjóðfélög krefjast umburðarlyndis og virðingar fyrir ólíkum gildum.“ Kærð fyrir að styðja samkynhneigða BARÁTTUKONA Madonna hefur verið kærð fyrir að auglýsa samkynhneigð fyrir fólki undir lögaldri. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.