Fréttablaðið - 21.08.2012, Blaðsíða 12
21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
ER GENGISSKRÁNING íslensku
krónunnar. Gengi krónunnar hefur
styrkst um 9,3% frá 1. maí.
207,0
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Ertu með
í fjörið?
15.700 kr.*
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð, valdar dagsetningar og valin flug.
Köben / London / Berlín frá:
590 0100 | www.expressferdir.is
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum,
gisting í þrjár nætur á Holiday inn Express Berlin City Centre***
Gerðu betri
kaup í Berlín!
Verð á mann í tvíbýli frá:
14.–17. september 2012
64.900 kr.
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐBÓKAÐU NÚNA!
Tekjur Hörpu, án framlags eig-
enda, á rekstrarárinu 2012 eru
255,9 milljónum króna lægri en
lagt var upp með. Þá er kostnað-
ur við rekstur Hörpu 233,9 millj-
ónum króna hærri. Því munar
alls um 489,8 milljónum króna á
því sem lagt var upp með í nýj-
ustu áætlunum fyrir árið 2012.
Til viðbótar leggja eigendur
Hörpu, íslenska ríkið og Reykja-
víkurborg, Hörpu til 983 milljón-
ir króna í ár. Það fé fer í greiðslu
fjármagnskostnaðar.
Þetta kemur fram við saman-
burð á rekstraráætlun Portus-
samstæðunnar, sem á Hörpu,
fyrir árin 2011-2014 og úttekt
sem KPMG gerði á rekstri og
skipulagi Hörpu og skilað var
nú í lok maí. Fréttablaðið hefur
rekstraráætlunina undir höndum.
Í KPMG-úttektinni kom fram að
rekstrartap Hörpu yrði 407 millj-
ónir króna í ár.
Fyrri rekstraráætlunin var
kynnt fyrir stjórn Austurhafn-
ar-TR, eignarhaldsfélags í eigu
íslenska ríkisins og Reykjavíkur-
borgar sem á allt hlutafé í Portus-
samstæðunni, í byrjun febrúar
2011, eða sextán mánuðum áður
en KPMG skilaði úttekt sinni.
Ljóst er að fátt hefur staðist
í þeirri áætlun sem upphaflega
var lögð fram. Samkvæmt henni
áttu tekjur af ráðstefnuhaldi til að
mynda að vera 216,4 milljónir króna
í ár. Í úttekt KPMG segir að þær
verði líkast til 130,7 milljónir króna.
Samkvæmt áætluninni sem lögð
var fram í fyrra voru forsvars-
menn Hörpunnar afar bjartsýnir
á þessa tekjuöflunarleið. Þar segir
meðal annars að „fyrstu árin mun
Harpa ekki vera með hótel, sem
takmarkar möguleika hússins á
að vinna markaðshlutdeild þó að
það séu hótel í nágrenninu. Hér
verður því gert ráð fyrir að Harpa
nái 45% markaðshlutdeild árið
2012 eða rúmlega 52.000 manns.
Gert er ráð fyrir að markaðshlut-
deild Hörpu aukist úr 45% í 52%
á þremur árum um leið og mark-
aðurinn stækkar vegna fjölgunar
ferðamanna og þar sem ráð-
Munar um hálfum
milljarði á áætlunum
Í rekstraráætlun Hörpu sem lögð var fram í fyrra kemur fram að húsið ætlaði
sér strax 45 prósenta markaðshlutdeild á ráðstefnumarkaði. Nánast allar tekjur
lægri og gjöld hærri en lagt var upp með. Munurinn er um hálfur milljarður.
HARPA Tekjur hússins hafa verið mun lægri en rekstraráætlun gerði ráð fyrir og kostnaður meiri. Hinn aukni kostnaður er þó að
langmestu leyti vegna hærri fasteignagjalda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
stefnum vegna fagfélaga fjölg-
ar. […] Reiknað er með að hótel-
ið verði komið í notkun síðla árs
2013.“ Nú er talið að hótelið muni
taka til starfa árið 2015.
Þá var talið að framlag frá
eignar haldsfélaginu Stæðum,
sem sér um rekstur bílastæða-
húss Hörpu, yrði 133,2 milljónir
króna. Í raun varð það 37 millj-
ónir króna.
Eini tekjuliðurinn, fyrir utan
fasta leigutaka, sem virðist hafa
staðist er vegna tekna af listvið-
burðum. Í áætluninni segir að
gert hafi verið ráð fyrir 196 þús-
und gestum á tónlistarviðburði
á árinu 2012 og að 2,5 prósenta
aukning verði á milli ára. Við
það mat var miðað við „þekktar
aðsóknartölur fastra notenda
Hörpu á síðasta ári, s.s. SÍ, ÍÓ,
Listahátíð, Airwaves og aðrar tón-
leikaraðir og hátíðir sem hafa hug
á að hafa starfsár sitt í Hörpu.
Gert er ráð fyrir 20% aukningu
á tölurnar vegna flutnings þess-
ara aðila í betri og stærri húsa-
kynni í Hörpu.“ Auk þess var gert
ráð fyrir sextíu prósenta nýtingu
á sölunum í hvert skipti sem tón-
leikar færu þar fram.
Gert var ráð fyrir því að um
55 þúsund manns kæmu sérstak-
lega í veislur á borð við brúð-
kaup, árshátíðir og erfisdrykkjur
í Hörpu á hverju ári. Í áætluninni
segir: „Um getur verið að ræða
erlenda gesti sem eru hér á landi
á ráðstefnum og njóta kvöldverð-
ar í sölum hússins, innlenda gesti
sem koma á árshátíðir fyrirtækja
í húsinu og/eða einkasamkvæmi
sem haldin eru í húsinu. Það er
gert ráð fyrir að tekjuaukning í
salaleigu vegna veislugesta verði
10% milli áranna 2012 og 2013 en
aukist svo upp í 15% milli áranna
2013 og 2014.“ Í lok síðasta árs
var tilkynnt að hætt væri að bóka
árshátíðir í Hörpu þar sem slíkur
gleðskapur var ekki talinn fara
saman við aðra starfsemi í húsinu.
thordur@frettabladid.is
(upphæðir í milljónum króna)
Tekjur:
Leigutekjur Sinfónía 111,5 122,8
Leigutekjur Ísl. óperan 40,5 48,6
Listviðburðir 113,3 144,6
Ráðstefnur 216,4 130,7
Rekstrarleyfissamningar 143,4 122,7
Samstarfsverkefni 67,5 3,4
Miðasöluþóknanir - 92,8
Framlag frá Stæðum 133,2 37
Aðrar tekjur 65,8 20,3
Rekstrartekjur samtals 978,8 722,9
Gjöld:
Laun og launatengd gjöld 231,4 309
Bruna- og viðlagatrygging - 22,6
Fasteignaskattar og gjöld 99 336,9
Húsnæðiskostnaður 181 162,6
Viðhald 106,2 56,1
Samstarfsverkefni 40,5 1
Markaðskostnaður 61,4 52,1
Annar rekstrarkostnaður 155,3 80,9
Kostnaður við miðasölu - 60,9
Kostnaður vegna útleigu - 47
Rekstrarkostnaður samtals 895,6 1.129,5
Rekstraráætlun Portusar fyrir árið 2012
Áætlun kynnt í
febrúar 2011
Áætlun í úttekt
KPMG í maí 2012