Fréttablaðið - 21.08.2012, Page 16

Fréttablaðið - 21.08.2012, Page 16
16 21. ágúst 2012 ÞRIÐJUDAGUR Við Íslendingar höfum verið svo lánsamir lengst af að búa við lítið atvinnuleysi. Undan- farin fimmtíu ár hafa þó komið nokkur atvinnuleysistímabil, t.d. í kjölfar síldarbrests á sjö- unda áratugnum, í efnahags- þrengingum upp úr 1990 og nú í kjölfar hrunsins. Þessi tíma- bil hafa þó verið tiltölulega stutt. Í hagfræðinni er ákveð- ið samband milli atvinnuleys- is og verðbólgu sem jafnan er kennt við Phillips. Samkvæmt því er sterk neikvæð fylgni milli verðbólgu og atvinnuleysis, þ.e. þegar atvinnuleysi er mikið er verðbólga lítil og öfugt. Þetta samband gildir þó ekki yfir löng tímabil, t.d. er viðvarandi verð- bólga engin trygging fyrir litlu atvinnuleysi. Mikil verðbólga í langan tíma veldur því að erfitt er að reka fyrirtæki með ásætt- anlegum hætti, þau verða undir í samkeppni og fólkið missir vinnuna. Lækning atvinnuleys- isvandans felst ekki í því að auka verðbólguna enn meira. Orsakir atvinnuleysis Í grunninn eru orsakir atvinnu- leysis af tvennum toga. Annars vegar er um að ræða eðlilegt eða náttúrulegt atvinnuleysi sem ekki er hægt að losna við, jafn- vel þótt aðstæður efnahagslífs- ins séu með besta móti. Þetta atvinnuleysi stafar af því að hluti fólks skiptir um vinnu og það er atvinnulaust meðan það finnur nýjan vinnustað og því að hluti vinnuaflsins hefur ekki mennt- un eða aðra hæfni til að þiggja þau störf sem eru í boði. Einnig hefur bóta- og skattkerfi áhrif á atvinnuleysi og á skilvirkni atvinnuleitar. Árstíðabund- ið atvinnuleysi þekkist vel hér á landi en því hefur m.a. verið mætt með því að nýta skólafólk til starfa á sumrin þegar mikil vinna er í ýmsum þjónustugrein- um. Jafnvel nokkur prósent vinnuaflsins geta verið án vinnu vegna grunn- og árstíðabundins atvinnuleysis. Stjórnvöld geta dregið úr atvinnuleysi af þessum toga með menntastefnu sem mið- ast við þarfir atvinnulífsins. Hin orsök atvinnuleysis leiðir beint af efnahagsástandi á hverjum tíma líkt og verið hefur frá hruni. Stjórnvöld geta dregið úr því með margvíslegum innspýting- araðgerðum. Á þessu sviði hafa íslensk stjórnvöld (bæði ríki og sveitarfélög) nær alla tíð staðið einkar illa að verki. Þau hafa nýtt uppsveiflur til enn meiri innspýt- ingar og magnað upp verðbólg- una. Í niðursveiflum hafa þau kippt að sér höndum og aukið á atvinnuleysisvandann. Verðbólgustefnan Íslendingar hafa lengstum valið þá leið að halda atvinnuleysi lágu sem hefur leitt af sér mikla verð- bólgu. Allur góður rekstur krefst þess að menn geri áætlanir um tekjur og gjöld og geti brugðist við ágjöf eða meðgjöf með góðum fyrirvara. Þegar verðbólga ríkir í hagkerfi er óhjákvæmilegt að gengi gjaldmiðils þess hagkerf- is falli, nema menn vilji og geti safnað skuldum. Gengisfallið leiðir svo til enn meiri verðbólgu og hagkerfið kemst í vítahring sem við Íslendingar þekkjum vel. Áætlanagerð verður marklaus og rekstur fyrirtækja erfiður. Sú spurning vaknar hvort þessi leið Íslendinga sé sú besta fyrir þjóðina. Er e.t.v. betra að sætta sig við lítils háttar atvinnuleysi en að hleypa verðbólgu á skrið? Það er óyggjandi að slík stefna myndi skila þjóðinni betri kjör- um en verðbólgustefnan þegar til lengdar lætur. Hægt er að líta á atvinnu sem hverja aðra vöru á markaði. Vörur á markaði sem ofgnótt er af missa virði sitt og virðing fyrir þeim þverr. Færa má rök fyrir því að slík hafi orðið raun- in um atvinnu á Íslandi. Hér á landi skipta menn oft um vinnu- stað, vinna mikla yfirvinnu og eru löngum stundum frá heim- ilum sínum vegna vinnunnar. Vinnuveitendur bera einnig sína ábyrgð, þeir ráða misjafnlega hæft fólk til starfa og láta vinna mikla eftirvinnu til þess að ná markmiðum vinnunnar. Smám saman verður hinn langi vinnu- dagur að lensku og framleiðni á hverja vinnustund verður lítil. Þetta skilar sér í lægri þjóðar- tekjum á mann og mun lengri vinnudegi en í nágrannalöndun- um. Íslendingar vinna 10-15% fleiri vinnustundir en aðrir Norðurlandabúar en hafa samt umtalsvert lægri landsfram- leiðslu á mann. Þegar horft er á landsframleiðslu á hverja unna vinnustund erum við fyrir neðan meðaltal OECD-landa og tals- vert langt frá meðaltali landa sem mynda evrusvæðið. Þau lönd evru svæðisins sem glíma við hvað mestan vanda, eins og Ítalía, Spánn og Írland, eru öll fyrir ofan okkur. Við bætum okkur upp litla framleiðni með löngum vinnudegi og höfum þannig náð að halda góðum efnislegum kjörum. Mikilvægi nýsköpunar Tæknibreytingar hafa leitt til þess að vélar leysa mannshöndina af hólmi við ýmis störf. Þetta veldur atvinnuleysi en einnig stóraukinni þjóðarframleiðslu á mann. Vél- væðingin leiðir til aukins hagnað- ar þeirra sem eiga vélarnar, hagn- aðar sem getur skapað atvinnu á öðrum sviðum þjóðfélagsins, t.d. á sviðum þjónustu og menningar. Þannig skapast ný störf sem koma í stað þeirra sem hurfu vegna nýrr- ar tækni. Þetta skilar umræðunni að mikilvægi nýsköpunar. Nýsköp- un á sem flestum sviðum er lykilat- riði til að vinna bug á atvinnuleysi sem verður til vegna nýrrar tækni. Á Íslandi er unnið gott nýsköpun- arstarf á menningarsviðinu sem halda verður áfram og efla en jafnframt verður að huga að und- irstöðunum sem eru menntun og nýsköpun í tækni og framleiðslu. Þannig er hægt að halda uppi góðu atvinnustigi en búa samt við lága verðbólgu. Hugleiðingar um virði vinnunnar Atvinnumál Svana Helen Björnsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins Er e.t.v. betra að sætta sig við lítils háttar atvinnuleysi en að hleypa verðbólgu á skrið? Sígilda Óskajógúrtin sem enginn verður leiður á. Óskajógúrt þjóðarinnar í 40 ár Í gegnum súrt og sætt hefur Óskajógúrt verið kærkominn kostur íslensku þjóðarinnar, hvort sem er í ferðalaginu, á róló, í vinnu, hjá dagmömmu, í vegasjoppunni eða sem morgunmatur heima við. Þín óskastund getur verið hvar sem er. Létta Óskajógúrtin án viðbætts sykurs.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.