Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 38
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR18 BAKÞANKAR Svavar Hávarðsson 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Eigum við að sleppa litla höfð- ingjanum lausum? Ha? Viltu reyna að ná eineygða ræningj- anum? Með Þrútni frændinn vill koma í feluleik! Kíkirinn er uppi! Hamarinn sækir högg! Gítarinn þarfnast stillingar! Jói ... hvað er eiginlega í gangi? Klaufin er opin og páfinn kíkir út!Jólasvein- inn vill komast inn í hitann! Töfra-flautan ... Minna kaffi rétt fyrir svefninn herra! Góða nótt Jói! Rakel Lísa Anna, Svanhildur og Soffía SKO!! Við eyðum endalausum tíma í að mála okkur og þeir þekkja okkur ekki einu sinni á andlitunum! Er ég í vand- ræðum? Hebbi, þú ert bara stór og feitur fíll! Ég efast um að þú sért með skjaldkirtilssjúkdóm. Það verður nú að segjast að stafræn ljósmyndun er ansi mögnuð. HA!HA! Ég náði annarri mynd af nösunum á pabba! Send- um hana til ömmu! Með einu tæknilegu stökki hafa vísindi umbreytt heimaljósmyndun úr því að vera kostnaðarsöm og yfir í að vera pirrandi. Brostu! Klikk! Já. Brostu! Brostu! Brostu! Klikk! Klikk! Klikk! hverj- um? LÁRÉTT 2. hljóðfæri, 6. eftir hádegi, 8. vefnaðarvara, 9. hvíld, 11. gjaldmiðill, 12. þvílíkt, 14. rabb, 16. drykkur, 17. fiskur, 18. hrópa, 20. í röð, 21. fugl. LÓÐRÉTT 1. loðfeldur, 3. stefna, 4. baknaga, 5. drulla, 7. holdýr, 10. tæfa, 13. knæpa, 15. svikull, 16. gegnsær, 19. strit. LAUSN LÁRÉTT: 2. túba, 6. eh, 8. tau, 9. lot, 11. kr, 12. slíkt, 14. skraf, 16. te, 17. áll, 18. æpa, 20. aá, 21. rita. LÓÐRÉTT: 1. pels, 3. út, 4. baktala, 5. aur, 7. holsepi, 10. tík, 13. krá, 15. flár, 16. tær, 19. at. Þetta var einhvern tímann stuttu eftir að ég byrjaði nám í háskóla. Ég leigði litla kjallarakompu í vesturbænum ásamt vini. Eins og lög gera ráð fyrir var lítið sem ekk- ert lesið en því meira var lífsblómið vökvað. Kjallarakompan góða var oft lokapunktur- inn á svallinu. Einn morguninn vaknaði ég svo við að ákveðið var knúið dyra og reynd- ist það vera nágranni minn að biðja mig um að ganga varlegar um gleðinnar dyr næst þegar ég fengi gesti. Þessu lofaði ég mann- inum, sem var hinn vinalegasti. ÖLLUM þessum árum síðar sé ég hins vegar enn eftir því að hafa ekki gert það sama og þessi maður, eða láta mig varða hans framferði. Ég skammast mín reyndar fyrir að hafa ekki komið konunni hans og börnunum þremur til hjálpar með þeim einfalda hætti að banka upp á eða hringja þegar hann gekk berserksgang þarna fyrir ofan mig. Ég veit að hann braut allt sem hægt var að brjóta, en ekki hvort hann lagði hendur á konuna eða börnin. Hræðsluveinin í þeim fjórum áttu bara að duga til þess að ég tæki af skarið. Eftir á séð vissi ég einfaldlega ekki hvernig ég átti að snúa mér í þessu og gerði þess vegna ekkert. SVO núna um daginn fékk ég skýrslu í hendurnar um heimilisofbeldi. Tölurn- ar voru hrikalegar; lögregla er boðuð að heimili fólks hvern einasta dag ársins vegna ósættis af einhverjum toga. Frétta- skrif sem tengdust þessu leiddu mig að ungri konu sem hefur annast tilrauna- verkefni á vegum Barnaverndarstofu, en það snýst einfaldlega um að hún fer með lögreglu inn á heimili þar sem ofbeldi er beitt og börn eru fyrir. Hún sér um sál- gæslu barnanna á meðan lögregla sinnir fullorðna fólkinu. Hún hefur á rúmu ári orðið vitni að því að útlimir eru brotn- ir, andlit skorin og í verstu tilfellum að fórnarlömb ofbeldisins eru borin út af eigin heimili á milli heims og helju. For- stjóri Barnaverndarstofu sagði mér að hann ætti sér þann draum að þetta starf yrði fest í sessi. Ekki bara á höfuðborgar- svæðinu heldur um allt land. Hins vegar ætti eftir að finna peningana, þó á honum mætti skilja að það yrði leyst. Einhvern veginn. HA? Snýst þetta ekki um að hjálpa börn- um sem eru að upplifa helvíti á jörð? ÞAÐ eru kannski fleiri en ég sem eiga að skammast sín fyrir aðgerðaleysi? Ég hefði átt að taka upp tólið og slá inn þrjár tölur. Þetta viðurkenni ég fúslega. En ég fer þá fram á að þeir sem einhverju ráða líti á þær tölur sem að þeim snúa. Helvíti á jörð Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Forsala í fullum gangi! Frumsýning 28. september fös. 28/9 kl. 20 UPPSELT lau. 29/9 kl. 20 örfá sæti lau. 6/10 kl. 19 örfá sæti lau. 6/10 kl. 22 örfá sæti sun. 7/10 kl. 20 örfá sæti fös. 12/10 kl. 19 UPPSELT lau. 13/10 kl. 19 örfá sæti lau. 20/10 kl. 19 UPPSELT Sýningar í Hofi á Akureyri fös. 01/11 kl. 19 | lau. 02/11 kl. 19 Miðasala í síma 450 1000 og á menningarhus.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.