Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 2
26. september 2012 MIÐVIKUDAGUR2
PILATES
NÝTT
Í HEILSUBORG!
Markmið Pilates er að lengja og styrkja líkamann með
kerfisbundnum æfingum. Hver æfing er hvetjandi, virkjar
kviðvöðvana og heldur iðkendum við efnið.
Kolbrún þjálfari segir fólk koma afslappað út úr
tímunum en jafnframt fullt af orku.
• Hefst 9. október
• 4 vikur
• Kennari er Kolbrún Jónsdóttir
• Þri og fim kl. 17:30-18:30
• Verð kr. 12.900
ÖRYGGISMÁL Sundlaugagestum
landsins ber nú skylda til að hlýða
fyrirmælum starfsmanna sund-
staða og er laugarverði heimilt
að vísa gesti úr laug sé það talið
nauðsynlegt til að tryggja öryggi
á sundstaðnum. Þetta er meðal
þess sem kveðið er á um í nýrri
reglugerð um öryggi á sundstöð-
um, sem öðlaðist gildi í gær.
Auknar kröfur eru gerðar til
innra eftirlits sundstaða í reglu-
gerðinni. Þá hafa þær breytingar
einnig verið gerðar að aldurs-
takmörk sem kveða á um að börn
þurfi að vera tíu ára til að fara
ein í sund miðast nú við 1. júní
árið sem börnin verða tíu ára, en
ekki afmælisdag líkt og áður. - sv
Ný reglugerð um sundlaugar:
Gestir eiga að
hlýða vörðum
KJARAMÁL „Þessar greiðslur eru
algerlega úr takti við íslenskan
veruleika, og það er vel skiljan-
legt að íslenskir kröfuhafar séu
óánægðir með þær,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon atvinnuvega-
ráðherra um háan launakostnað
slitastjórnar Glitnis.
Hann bendir á að kostnaður
íslenska ríkisins sé enginn vegna
þessa. Einungis kröfuhafar í
þrotabú Glitnis beri kostnaðinn
af greiðslunum.
Mikil óánægja er hjá stjórnum
lífeyrissjóðanna Gildis og Líf-
eyrissjóðs verzlunarmanna með
háar launagreiðslur. Lífeyrissjóð-
irnir eiga báðir kröfur í þrotabú
Glitnis. - bþh
Steingrímur J. Sigfússon:
Úr tengslum
við veruleika
Margrét, gengur þetta iÐi yfir?
Nei, en hins vegar verður maður
iÐislegur með iPhone 5.
Fyrsta sending af nýjum iPhone 5 klárað-
ist hjá Nova á fyrsta degi. Margrét Björk
Tryggvadóttir, yfirmaður markaðssviðs,
segir að á milli 300 og 400 viðskipta-
vinir hafi komið í búðina til að kaupa og
skoða gripinn.
TÆKNI Miklar umræður spunnust á samfélags-
miðlinum Facebook í gær um að einkaskila-
boð úr pósthólfum notenda væru að birtast á
veggjum vina þeirra. Fjölmargir Íslendingar
ákváðu í kjölfarið að loka reikningum sínum.
Fregnir af meintum galla í öryggiskerfi
Facebook birtust fyrst í frönskum fjölmiðl-
um um helgina. Frakkar höfðu tilkynnt að
skilaboð frá tímabilinu 2008 og 2009 væru
nú aðgengileg öllum, eins og umræðan hér á
landi snerist um í gær. Forsvarsmenn miðils-
ins gáfu strax út yfirlýsingu að um væri að
ræða gömul skilaboð sem vinir hefðu skrifað
á veggi.
Í yfirlýsingunni segir að tæknilið Face book
hafi skoðað málið nákvæmlega og ekki sé um
að ræða skilaboð úr innhólfum eða spjalli
notenda, heldur einungis gamlar færslur.
Hvorki sé um að ræða galla í öryggiskerfi né
aðgerðir óprúttinna aðila sem hafi hakkað sig
inn í kerfið.
Blaðamaður Guardian velti upp þeirri hug-
mynd vegna fregnanna, að viðmót Face book
hafi breyst mikið síðan árið 2009 og að not-
endur átti sig ekki því á að þeir hafi þá látið
fleiri athugasemdir falla fyrir allra augum
en þeir gera í dag.
„Þetta snýr frekar að sálfræði en friðhelgi
einkalífs – við höfum gleymt hversu mikið
reynsla okkar af Facebook hefur breyst á
þessum stutta tíma,“ segir í frétt Guardian.
- sv
Facebook segir engar brotalamir vera í öryggiskerfi síðunnar vegna fregna af einkaskilaboðum notenda:
Hættu á Facebook vegna skilaboða á veggjum
Facebook er vinsælasta
vefsíða heims, ef marka
má nýjustu fregnir
erlendra fjölmiðla. Svo
virðist sem samfélags-
miðillinn sé því kominn
fram úr internet risanum
Google, sem hefur trónað
á toppnum sem vinsælasta síða heims síðustu
ár. Myndbandasíðan Youtube er í þriðja sæti,
Yahoo í fjórða og Baidu.com, kínversk leitarvél,
í því fimmta.
Vinsælust í heimi
MENNTUN „Þetta hefur gengið ljóm-
andi vel. Nemendurnir eru dug-
legir og sitja og læra og rétta upp
bækurnar til kennarans,“ segir
Nanna Sjöfn Pétursdóttir, skóla-
stjóri Grunnskóla Vesturbyggðar.
Brugðið hefur verið á það ráð að
bjóða upp á fjarkennslu fyrir börn
vegna fjarlægðar og fámennis.
Fjarkennslan hófst nú í haust.
Grunnskóli Vesturbyggðar sam-
anstendur af Patreksskóla á Pat-
reksfirði, Bíldudalsskóla á Bíldu-
dal og Birkimelsskóla á Birkimel
á Barðaströnd. Aðeins níu nem-
endur eru í Birkimelsskóla og
tuttugu í Bíldudalsskóla. „Okkur
vantaði fólk til þess að kenna,
það er einn kennari í Birkimels-
skóla,“ segir Nanna Sjöfn. Því
varð úr að tveir kennarar á Bíldu-
dal kenna nú börnunum á Barða-
strönd í gegnum tölvur. „Það er
kennd enska, danska og sam-
félagsfræði. Kennararnir sitja
við tölvu og hafa þennan sérút-
búnað og myndavél og þessu er
varpað á stórt tjald í Birkimels-
skóla svo allir sjái kennarann vel.
Svo bara læra þau. Þetta er sam-
kennsla og oft eru þau frá fjórða
og upp í níunda bekk öll saman.“ Á
meðan á þessum kennslustundum
stendur fylgist kennarinn í Birki-
melsskóla með eða gerir eitthvað
annað.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti
sem grunnskólinn prófar fjar-
kennslu. „Við tókum á sínum
tíma þátt í mjög stóru verkefni
sem hét dreifmenntaverkefnið,
sem byggði á þessu. Það var til-
raunaverkefni með fjarkennslu í
grunnskólum sem snerist um að
nýta fagkennara. Þá prófuðum
við ýmsar útfærslur og nokkrum
mánuðum seinna kenndum við
héðan úr Vesturbyggð yfir á Snæ-
fellsnes. Við kenndum dönsku og
eðlisfræði því þá vantaði kennara
þar. Þetta snýst um að nýta fag-
kennara og nú nýti ég mjög góða
kennara á Bíldudal yfir á Birki-
mel. Þetta hefur gefist mjög vel
og getur verið góð lausn þegar
vantar kennara í þessum litlu
skólum.“ thorunn@frettabladid.is
Börnin á Barðaströnd
í kennslu frá Bíldudal
Vegna smæðar og fjarlægðar var ákveðið að prófa fjarkennslu í Grunnskóla
Vesturbyggðar. Nemendur á Barðaströnd sitja nú dönsku-, ensku- og samfélags-
fræðitíma á Birkimel en kennararnir kenna þeim í gegnum tölvur frá Bíldudal.
FJARKENNSLA Lilja Rut Rúnarsdóttir, sem kennir ensku og dönsku, leiðbeinir hér nokkrum nemendum Birkimelsskóla og getur
haft auga með þeim á tölvuskjánum. Arnar Þór Arnarsson kennir svo börnunum samfélagsfræði. AÐSEND MYND
FLOGINN Á BURT Schmid flaug með
eintak sitt af Fréttablaðinu í gær.
MYND/ISAVIA
FLUG Svissneski flugkappinn Carlo
Schmid sem lenti á Reykjavíkur-
flugvelli á mánudagskvöldið flaug
af landi brott rétt fyrir hádegið
í gær. Hann á nú aðeins nokkra
daga eftir af flugi sínu umhverfis
jörðina.
Schmid er ekki nema tuttugu
og tveggja ára gamall og hyggst
verða yngstur allra til að fljúga
einn umhverfis jörðina á eins-
hreyfilsflugvél. Ferðin á að taka
áttatíu daga.
Starfsmenn Isavia færðu
Schmid eintak af Fréttablaðinu í
gær. Mynd af honum prýddi for-
síðu blaðsins. - bþh
Flugkappinn Carlo Schmid:
Hélt hringflug-
inu áfram
ALÞINGI Sigríður Ingvarsdóttir, formaður rann-
sóknarnefndar Alþingis um sparisjóðakerfið,
hefur beðist lausnar í kjölfar ágreinings við
hina tvo nefndarmennina. Þetta kom fram í
fréttum RÚV í gær.
Sigríður, sem er héraðsdómari, var skipuð
formaður nefndarinnar í fyrra. Hún fékk árs-
leyfi frá störfum við Héraðsdóm Reykjavíkur
til að sinna nefndarstarfinu, en vinnan hefur
tafist mjög og Sigríður fékk ekki framleng-
ingu á leyfinu.
Í samtali við RÚV í gær sagði hún að auk
þess hefði „óeining og vantraust“ verið á
milli nefndarmanna og hún hafi klofnað
í ágreiningi um hvernig skyldi halda
áfram rannsókninni.
Sigríður sagði við RÚV að eng-
inn ágreiningur hefði verið í nefnd-
inni þangað til lögfræðin fór að spila
stærra hlutverk í rannsókninni og
við greiningu á því að hvaða niður-
stöðu skyldi komast, samkvæmt
lögum um nefndina.
„Í lögunum um rannsóknarnefndir
segir bara að meirihlutinn ráði því
hvernig framkvæma skuli rannsókn-
ina, verði ágreiningur um það, og
meðnefndarmenn mínir mynduðu
meirihluta gegn mér, og þar með var
ég orðinn gagnslaus stjórnandi í þess-
ari nefnd,“ sagði Sigríður.
Rannsóknarnefndin heyrir undir
forseta Alþingis en Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir þingforseti vildi
ekki tjá sig um ósættið við RÚV
í gær en sagði nýjan formann
verða valinn í dag. Forsætis-
nefnd þingsins heldur auka-
fund í dag. - sh
Rannsóknarnefnd um sparisjóði klofnaði og formaðurinn hætti:
Nefndarformaðurinn varð gagnslaus
FORSETI ALÞINGIS Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir segir að
nýr formaður verði skipaður yfir
nefndina í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vill efsta sæti í Kraganum
Árni Páll Árnason,
þingmaður Sam-
fylkingarinnar, sækist
eftir fyrsta sæti á lista
flokksins í Suðvestur-
kjördæmi fyrir næstu
Alþingiskosningar.
Hann er núverandi 1. þingmaður kjör-
dæmisins.
Guðlaugur vill annað sæti
Guðlaugur Þór
Þórðarson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins,
vill leiða lista flokksins
í öðru hvoru Reykja-
víkurkjördæminu í
komandi þingkosning-
um. Guðlaugur sækist eftir öðru sæti í
prófkjöri flokksins í Reykjavík.
Vill leiða Framsókn í borginni
Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræð-
ingur, sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri
Framsóknarflokksins í Reykjavík. Frosti
er stjórnarmaður í Heimsýn.
Arndís ætlar sér fyrsta sæti
Arndís Soffía Sigurðardóttir, varaþing-
maður Vinstri græns í Suðurkjördæmi,
sækist eftir fyrsta sæti flokkins í Suður-
kjördæmi fyrir þingkosningar.
PRÓFKJÖR
SPURNING DAGSINS