Fréttablaðið - 26.09.2012, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 26. september 2012 19
Tónlist ★★★ ★★
Tíbrá
Salurinn, Kópavogi 23. september
John Humphreys og Allan Schiller spiluðu fjórhent
Skemmtileg (óþolandi) tónlist
Að spila fjórhent á píanó er góð skemmtun. Ef maður er lítill og mjór.
Plássið fyrir tvo við sama hljómborðið er ekki stórt. Sumir dúettar enda
jafnvel með handalögmálum. Ég man ekki eftir að hafa séð tvo feita
píanóleikara spila fjórhent.
John Humphreys og
Allan Schiller eru líka
sæmilega nettir menn.
Enda reyndu þeir ekki að
bíta hvor annan á barkann
á tónleikum í Salnum í
Kópavogi á sunnudaginn
var.
Efnisskráin var fjölbreytt,
allt frá léttum og vinsælum
ungverskum dönsum eftir
Brahms yfir í sónötu eftir
Hindemith. Humphreys
baðst reyndar afsökunar
á því verki. Hann sagði
að sónötuna væri mun
skemmtilegra að spila en
að hlusta á. Konan hans
þyldi hana ekki. Hindemith
er vissulega ekki tónlist
sem maður setur á fóninn
í partíi. Að minnsta kosti
ekki ef maður vill vera
sæmilega vinsæll. En
leikgleðin á tónleikunum
var slík að það var ekki annað hægt en að hrífast með. Tæknin var frábær,
hröð hlaup stórglæsileg, samspilið nákvæmt og fágað.
Fágun var einmitt einkennismerki spilamennskunnar. Hún kom ekki
síst fram í fyrstu tónsmíðinni á dagskránni. Það var sjötti Branderburgar-
konsert Bachs í umritun Max Reger. Hver einasti hljómur var mótaður af
aðdáunarverðri smekkvísi, allar hendingarnar voru fagurlega mótaðar.
Svipaða sögu er að segja um flest annað á tónleikunum, Fantasíu KV
594 eftir Mozart, Gæsamömmu eftir Ravel, mars eftir Schubert og fimm
ungverska dansa eftir Brahms. Leikurinn var fagmannlegur, lifandi, öruggur
og spennuþrunginn.
Auðvitað voru einhverjir hnökrar greinanlegir. Á tónleikum er ekki við
öðru að búast. Humphreys gretti sig alltaf þegar hann sló feilnótu, sem
var dálítið skrítið. Ég er fákunnandi í almannatengslum, en það getur varla
verið gott að auglýsa það sérstaklega ef maður gerir mistök!
Fyrir utan þetta mátti helst finna að fantasíunni í f-moll eftir Schubert.
Hún er bæði angurvær og dramatísk, enda samin rétt fyrir dauða tón-
skáldsins. Drunginn skilaði sér ekki á tónleikunum. Þvert á móti var
einhver undarlegur „hæ diddelí dú“ bragur yfir túlkuninni. Spilamennskan
var of hröð, það var óþolinmæði í henni sem gerði að verkum að tónlistin
komst aldrei á flug.
Að öðru leyti voru þetta skemmtilegir tónleikar sem lofa góðu um
veturinn fram undan í Salnum. Jónas Sen
Niðurstaða: Pottþétt samspil, oftast sannfærandi túlkun; leikur beggja
píanóleikara var fágaður en hefði mátt vera rólegri í einu verkinu.
í kvöld 26. september kl. 20:00- 21:30
Eru jöklarnir að hverfa?
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 26. september
➜ Hátíðir
16.00 Boðið verður upp á dagskrá
í hátíðarsal Háskóla Íslands, í tilefni
af Evrópska tungumáladeginum. Það
er Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum sem stendur
fyrir viðburðinum.
➜ Tónlist
12.15 Kammertríó Kópavogs flytur
létta klassík á tónleikaröðinni Líttu inn.
Tónleikaröðin er haldin í Salnum, Kópa-
vogi og er miðaverð kr. 1.000.
21.00 Hljómsveitin Vigri heldur kveðju-
tónleika á Café Rosenberg.
➜ Fyrirlestrar
12.00 David Miliband, fyrrum utanrík-
isráðherra og fyrrum umhverfisráðherra
Breta flytur fyrirlestur undir yfirskriftinni
The Future of Europe - Economics, Poli-
tics and Identity. Fyrirlesturinn fer fram
á ensku í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
➜ Umræður
20.00 Jón Björnsson hefur umsjón
með bókakaffi í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi. Spjallað verður á léttu nót-
unum um bækur af ýmsu tagi. Yfirskrift
kvöldsins er Bækur og tré.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is