Fréttablaðið - 26.09.2012, Síða 39

Fréttablaðið - 26.09.2012, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 26. september 2012 19 Tónlist ★★★ ★★ Tíbrá Salurinn, Kópavogi 23. september John Humphreys og Allan Schiller spiluðu fjórhent Skemmtileg (óþolandi) tónlist Að spila fjórhent á píanó er góð skemmtun. Ef maður er lítill og mjór. Plássið fyrir tvo við sama hljómborðið er ekki stórt. Sumir dúettar enda jafnvel með handalögmálum. Ég man ekki eftir að hafa séð tvo feita píanóleikara spila fjórhent. John Humphreys og Allan Schiller eru líka sæmilega nettir menn. Enda reyndu þeir ekki að bíta hvor annan á barkann á tónleikum í Salnum í Kópavogi á sunnudaginn var. Efnisskráin var fjölbreytt, allt frá léttum og vinsælum ungverskum dönsum eftir Brahms yfir í sónötu eftir Hindemith. Humphreys baðst reyndar afsökunar á því verki. Hann sagði að sónötuna væri mun skemmtilegra að spila en að hlusta á. Konan hans þyldi hana ekki. Hindemith er vissulega ekki tónlist sem maður setur á fóninn í partíi. Að minnsta kosti ekki ef maður vill vera sæmilega vinsæll. En leikgleðin á tónleikunum var slík að það var ekki annað hægt en að hrífast með. Tæknin var frábær, hröð hlaup stórglæsileg, samspilið nákvæmt og fágað. Fágun var einmitt einkennismerki spilamennskunnar. Hún kom ekki síst fram í fyrstu tónsmíðinni á dagskránni. Það var sjötti Branderburgar- konsert Bachs í umritun Max Reger. Hver einasti hljómur var mótaður af aðdáunarverðri smekkvísi, allar hendingarnar voru fagurlega mótaðar. Svipaða sögu er að segja um flest annað á tónleikunum, Fantasíu KV 594 eftir Mozart, Gæsamömmu eftir Ravel, mars eftir Schubert og fimm ungverska dansa eftir Brahms. Leikurinn var fagmannlegur, lifandi, öruggur og spennuþrunginn. Auðvitað voru einhverjir hnökrar greinanlegir. Á tónleikum er ekki við öðru að búast. Humphreys gretti sig alltaf þegar hann sló feilnótu, sem var dálítið skrítið. Ég er fákunnandi í almannatengslum, en það getur varla verið gott að auglýsa það sérstaklega ef maður gerir mistök! Fyrir utan þetta mátti helst finna að fantasíunni í f-moll eftir Schubert. Hún er bæði angurvær og dramatísk, enda samin rétt fyrir dauða tón- skáldsins. Drunginn skilaði sér ekki á tónleikunum. Þvert á móti var einhver undarlegur „hæ diddelí dú“ bragur yfir túlkuninni. Spilamennskan var of hröð, það var óþolinmæði í henni sem gerði að verkum að tónlistin komst aldrei á flug. Að öðru leyti voru þetta skemmtilegir tónleikar sem lofa góðu um veturinn fram undan í Salnum. Jónas Sen Niðurstaða: Pottþétt samspil, oftast sannfærandi túlkun; leikur beggja píanóleikara var fágaður en hefði mátt vera rólegri í einu verkinu. í kvöld 26. september kl. 20:00- 21:30 Eru jöklarnir að hverfa? HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 26. september ➜ Hátíðir 16.00 Boðið verður upp á dagskrá í hátíðarsal Háskóla Íslands, í tilefni af Evrópska tungumáladeginum. Það er Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem stendur fyrir viðburðinum. ➜ Tónlist 12.15 Kammertríó Kópavogs flytur létta klassík á tónleikaröðinni Líttu inn. Tónleikaröðin er haldin í Salnum, Kópa- vogi og er miðaverð kr. 1.000. 21.00 Hljómsveitin Vigri heldur kveðju- tónleika á Café Rosenberg. ➜ Fyrirlestrar 12.00 David Miliband, fyrrum utanrík- isráðherra og fyrrum umhverfisráðherra Breta flytur fyrirlestur undir yfirskriftinni The Future of Europe - Economics, Poli- tics and Identity. Fyrirlesturinn fer fram á ensku í Hátíðarsal Háskóla Íslands. ➜ Umræður 20.00 Jón Björnsson hefur umsjón með bókakaffi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Spjallað verður á léttu nót- unum um bækur af ýmsu tagi. Yfirskrift kvöldsins er Bækur og tré. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.