Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 23

Fréttablaðið - 26.09.2012, Side 23
KYNNING − AUGLÝSING Svanurinn, fyrir umhverfið & heilsuna26. SEPTEMBER 2012 MIÐVIKUDAGUR 3 Ræstingasvið ISS Íslands fékk norrænu umhverfisvottunina Svaninn árið 2009. ISS Ísland, sem er í eigu ISS/AS, varð fyrst fyrirtækja innan samsteypunn- ar til að fá slíka vottun en ISS/AS er alþjóð- legt fyrirtæki með starfsemi í yfir fimmtíu löndum. Guðmundur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri ISS Íslands, segir að þrátt fyrir Svansvottunina árið 2009 eigi fyrir- tækið sér langa sögu þegar kemur að um- hverfismálum. „Við höfum starfað á þessum markaði hérlendis í þrjátíu ár og höfum allt- af verið mjög meðvituð um umhverfismál. Við vorum fyrsta fyrirtækið innan sam- steypunnar til að hljóta Svaninn en ISS/AS er líka mjög meðvitað um umhverfisvernd.“ Hann nefnir sem dæmi að frá og með haust- inu sé verið að keyra sérstakt átak hjá öllum fyrirtækjum samsteypunnar undir nafninu ISS Global Environmental Campaign 2012. „Þar verður lögð áhersla á þrjá meginþætti. Í fyrsta lagi er hugað að orkunýtingu. Í öðru lagi að affalli og sorpi og hvernig hægt er að meðhöndla það rétt og flokka en fyrst og fremst þó að minnka það. Í þriðja lagi snýr átakið að betri nýtingu vatns og hvernig fyrir tækin geta farið sparlega með þessa takmörkuðu auðlind.“ Minna magn efnis Guðmundur segir mjög margt hafa breyst til betri vegar á síðustu þrjátíu árum í rekstri fyrirtækisins. „Í dag notum við til dæmis um 15% af þeim efnum sem áður voru notuð á hverja unna klukkustund. Ef við tökum bara það efnismagn sem við höfum spar- að á síðustu 20-25 árum erum við að tala um jafn mikið magn og gæti fyllt hitaveitu- tankana á Grafarholti. Þessi efni hefðu að öðrum kosti farið út í umhverfið. Við höfum því náð miklum árangri og Svansvottunin var því nokkurs konar punktur yfir i-ið hjá okkur. Þrátt fyrir það hefur ýmislegt breyst í rekstri okkar með tilkomu Svansvottun- arinnar, þá sérstaklega varðandi skráning- ar, eftirfylgni og eftirlit. Þannig má segja að með viðtöku Svansins hafi allt smollið betur saman í formlegra kerfi hjá okkur, sérstak- lega það sem snýr að samanburði, og eftir- fylgnin varð mun markvissari.“ Vatnsnotkun minnkað mikið Vegna umhverfisstefnu ISS og Svansvott- unar er ISS Ísland farið að nota allt önnur efni við þrif og ræstingar en í árdaga fyrir- tækisins. „Við gerum skýran greinarmun á hreingerningarefnum og ræstingarefnum. Ræstingarefni eru mildari, vinna með og vernda yfirborðsflötinn en hreingerningar- efnin eru virkari efni, geta brotið niður flöt- inn og vinna hratt á stuttum tíma.“ Stærsta breytingin er þó að sögn Guðmundar að vatnsnotkun hefur minnkað. „Áður fyrr var verið að blautþvo allt. Núna erum við hætt að vera með vatn í vögnum heldur fær starfs- fólk okkar moppur með réttu rakastigi sem duga á ákveðinn fermetrafjölda. Svo er náð í nýja moppu með réttu rakastigi og mild- um hreinsilegi. Það þýðir að starfsmenn okkar eru hættir að burðast með vatn og ná í nýtt vatn o.s.frv. Fyrir utan að tæki og tól og áhöld eru miklu notendavænni en þau voru hér áður fyrr.“ Að sama skapi hafa viðskipti við birgja breyst. „Í dag höfum við færri og stærri birgja og þeir hafa auðvitað þurft að svara kröfum okkar. Það er ánægjulegt að segja frá því að þeir hafa staðið sig mjög vel í þess- um málum. Stærsti birgirinn okkar í dag er Tandur sem hefur staðið sig mjög vel enda mikil fagþekking á þeim bænum.“ Svanurinn var punkturinn yfir i-ið ISS Ísland var fjórða fyrirtækið á Íslandi til að hljóta umhverfisvottunina Svaninn og um leið fyrsta fyrirtækið innan ISS/AS samsteypunnar. Umhverfismál hafa verið stór þáttur í rekstri fyrirtækisins í 30 ár. Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri ISS, en fyrirtækið hefur umhverfisvottun Svansins. MYND/GVA Með allt á hreinu Ræstingarsvið ISS er Svansvottað sem tryggir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum gæðaþjónustu, sem er vistvænni í framkvæmd. Með því að velja umhverfisvottaða þjónustu stuðla viðskiptavinir okkar að sjálfbærri þróun samfélagsins þar sem komandi kynslóðir hafa jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Vertu í hópi öruggra og ánægðra viðskiptavina. Láttu okkur leysa málin - www.iss.is ”Ég leysi málin með umhverfið í huga” Ég þekki þarfir viðskiptavinarins í mínu fyrirtæki A World of Service Í dag notum við um 15% af þeim efnum sem áður voru notuð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.