Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 32
FÓLK|
1. ÞRJÁR FLÉTTUR
Hárið er fléttað í þrjár
lausar fléttur.
2. TOGAÐ TIL
Þegar flétturnar eru
tilbúnar er togað í einn
þátt í hverri þeirra og
þær krumpaðar upp.
3. SNÚIÐ
Fléttunum er snúið í
hring og snúðar búnir til.
4. SNÚÐARNIR
TILBÚNIR
Snúðarnir eru festir
með ömmuspennum
sem eru faldar á bak við
snúðana.
5. FÍN OG FLOTT
Hér er komin greiðsla
sem hæfir fínustu
veislum en er að sama
skapi auðvelt að gera.
MYND/VALLI
■ SKÓR SKIPTA MIKLU MÁLI Í HUGA
MARGRA. FJÖLDI KVENNA SEGIST
VERA SKÓFÍKLAR OG FJÖLDI SKÓ-
PARA ÞEIRRA HLEYPUR Á TUGUM.
STAÐREYNDIR UM SKÓ
■ Fyrir fjögur þúsund árum voru fyrstu
skórnir búnir til úr skinni sem var vafið
um fótinn til varnar gegn meiðslum og
hita.
■ Sandalar eru upprunnir, eins og gefur
að skilja, í heitu umhverfi þar sem ilin
þarfnaðist varnar en það þurfti að lofta
um efri hluti fótarins.
■ Támjóir skór voru í tísku í Evrópu frá
elleftu allt fram til fimmtándu aldar.
Í Miðausturlöndum voru hælar settir
undir skó til að lyfta fótunum frá heitum
sandinum.
■ Á sextándu og sautjándu öld voru
hælar á skóm Evrópubúa alltaf rauðir á
litinn.
■ Um allan heim voru skór beggja fóta
alveg eins þar til á nítjándu öld þegar
sérstakir hægri og vinstri fótar skór voru
búnir til í Fíladelfíu.
■ Í Evrópu voru kvenskór alveg eins og
skór karlmanna allt fram á átjándu öld.
■ Stígvél voru fyrst notuð á köldum
fjallasvæðum og í heitum eyðimörkum
þar sem fólk notaði hesta. Hælar stígvél-
anna hjálpuðu til við að halda fótunum í
ístöðunum.
■ Strigaskór voru fyrst búnir til í
Ameríku árið 1916.
■ Fyrstu kvenstígvélin voru hönnuð fyrir
Viktoríu Bretadrottningu árið 1840.
SKÓR SEM TÁKN
■ Á biblíutímum voru skór gefnir sem
tákn um eiða sem fólk sór.
■ Á miðöldum var vald föður yfir dóttur
fært yfir til eiginmanns hennar á tákn-
rænan hátt með nokkurs konar skóat-
höfn. Þá rétti brúðguminn brúðinni skó í
brúðkaupinu sem hún fór í og sýndi með
því að hún var þá á hans valdi.
■ Í dag eru skór bundnir aftan á brúðar-
bíla í Bandaríkjunum. Það er til að minna
á þá daga þegar faðir brúðarinnar gaf
brúðgumanum annan skó dóttur sinnar
sem merki um að hún væri nú á framfæri
hans.
■ Í Kína er öðrum skó brúðar, sem eru
yfirleitt rauðir, kastað fram af þaki húss
brúðhjónunum til heilla.
■ Ungverskir brúðgumar drekka brúði
sinni skál úr brúðarskóm hennar.
SAGA TÍSKUNNAR
SKÓRNIR SKAPA MANNINN
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
5
1 2
3
4
NÝ SENDING!
Dömu og herraskór með mannbroddum
Stærðir: 37-47
Mismunandi útlit. Verð: 24.000 kr.
Stelpu og dömu kuldaskór
Stærðir: 27-40
Verð: 12.000-16.000 kr.
Sérsaumur þjóðbúninga
Allt efni og unnar vörur á sama stað
Þjóðbúningaleiga
Þjóðbúningar og fatagerð
NÁMSKEIÐ Í
ÞJÓÐBÚNINGASAUM
Sólveigar Guðmundsdóttur • 108 Reykjavík
sími 568-5606 • sollaveiga@simnet.is
Ge
ym
ið
a
ug
lýs
in
gu
na
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
365 miðlar treysta okkur fyrir
öruggri dreifingu á Fréttablaðinu
Við flytjum þér góðar fréttir
Breakbeat
laugardagskvöld kl. 22r skvöld l.
TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir