Fréttablaðið - 14.11.2012, Síða 30

Fréttablaðið - 14.11.2012, Síða 30
14. nóvember 2012 MIÐVIKUDAGUR26 26 popp@frettabladid.is ÁR FYLLIR LEIKARINN Josh Duhamel í dag en hann fagnar þessum tímamótum eflaust ærlega með eigin- konu sinni, Fergie úr hljómsveitinni The Black Eyed Peas. 40 Bíó ★★★ ★★ Wreck-It Ralph Leikstjórn: Rich Moore. Leikarar: John C. Reilly, Sarah Silverman, Jack McBrayer, Jane Lynch, Alan Tudyk. Í spilasal herra Litwaks láta tölvuleikjapersónurnar að stjórn spilaranna á opnunartíma, en eftir lokun sinna þær einka lífinu. Sumar fara á fund í stuðnings- grúppunni sinni og aðrar fara á barinn. Wreck-It Ralph starfar sem illmenni í leiknum Fix-It Felix, Jr. en í lok vinnudagsins er hann enn þá litinn hornauga af öðrum persónum leiksins. Þrátt fyrir starfið er hann góð hjartaður en býr aleinn á ruslahaug og á enga vini. Að lokum fær hann nóg og ákveður að stinga af úr tölvu- leiknum, og koma ekki aftur fyrr en hann hefur sannað ágæti sitt. Það fer að verða óþarfi að taka það fram hversu tæknilega vel gerðar tölvuteiknimyndir Disney eru. Wreck-It Ralph er engin undan tekning og það er hrein unun að gleyma sér í lita- dýrðinni og öllum glæsilegu smá atriðunum sem tæknideildin hefur nostrað við. Nær helmingur myndarinnar gerist í tölvuleik að nafni Sugar Rush, eins konar stafrænu sælgætislandi þar sem hina barnungu Vanellope von Schweetz dreymir um að keppa í kappakstri, og hætt er við að nammigrísir á borð við undirrit- aðan eigi eftir að sitja með slef- tauminn hangandi úr skoltinum allan tímann. Og ekki vantar hressleikann. Við fáum góðan skerf af húmor, æsilegan kappakstur og fullt af sígildum tölvuleikjapersónum í feluhlutverkum. En það vantar einhvern neista. Ekki er við leik- arana að sakast. John C. Reilly og Sarah Silverman skila sínu og gott betur. Mig grunar að vandamálið sé að finna í hand- ritinu. Hugmyndin er frábær en framkvæmdin aðeins of dæmi- gerð. Þá er takturinn misjafn og myndin langdregin á köflum. En skemmtana gildið er til staðar og ég mæli sterklega með því að sæl- gæti sé haft í seilingarfjarlægð. Annars munt þú líklega brjálast. Niðurstaða: Skemmtileg en helst til dæmigerð. Gemmér nammi! Augu slúðurpressunnar voru á rauða dreglinum í Los Angeles á mánudagskvöldið þegar lokamyndin í Twilight- seríunni, The Twilight Saga: Breaking Dawn Part 2, var frumsýnd. Ástæðan var sú að aðalleikararnir Kristen Stew- art og Robert Pattinson voru í fyrsta sinn saman opinberlega síðan leikkonan viðurkenndi framhjáhald sitt í sumar. Allt lék í lyndi á rauða dreglinum þar sem allir leikarar myndarinnar flögguðu sínu fegursta frá toppi til táar. SAMEINUÐ Á FRUMSÝNINGU SKRÍTINN SKÓBÚNAÐUR Elle Fanning vakti athygli í fölbleikum kjól og sérkennilegum skóm. GRÁR Taylor Lautner var í gráum jakkafötum við gráa skyrtu. GALAKJÓLL Ashley Greene mætti í drag- síðum galakjól. BROSMILD Nikki Reed og Paul McDonald létu sig ekki vanta á rauða dregilinn. NORDICPHOTOS/GETTY SÁTT Kristen Stewart og Robert Pattinson stilltu sér glöð upp saman fyrir mynda- vélarnar. Hún vakti athygli í gegnsæjum blúndukjól en hann var í grænum jakkafötum. SÆT Leikkonan Mackenzie Foy leikur dóttur Stewart og Pattinson í myndinni. Leikkonan Anne Hathaway var lengi að jafna sig eftir hlut- verk sitt í Les Misérables, eða Vesalingunum. Þar leikur Hath- away vændiskonuna Fantine en hún opnar sig í viðtali við nýjasta tölu- blað bandaríska Vogue. „Ég missti alls ellefu kíló og varð að vera mjög ströng við mig. Þegar ég lít til baka sé ég ekki eftir þessu en þetta var óneitanlega skrítin lífsreynsla,“ segir Hathaway sem borðaði ekkert nema litla skammta af hafragraut í tvær vikur. „Ég var alveg tóm í lokin, bæði líkamlega og tilfinn- ingalega. Það tók margar vikur að jafna sig og verða eðli legur á ný.“ Les Misérables er beðið með nokkurri eftirvæntingu en hún er ein af jólamyndunum í ár. Var mjög ströng TÓK Á Anne Hathaway léttist um ellefu kíló er hún bjó sig undir hlutverk vændis- konunnar Fantine í Les Misérables. Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau þúsundir heimila og fyrirtækja. Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á skátavefnum: www.skatar.is Frábærir eiginleikar: -eðaltré ár eftir ár! Sígræna jólatréð 10 ára ábyrgð 12 stærðir (90-500 cm) Stálfótur fylgir Ekkert barr að ryksuga Veldur ekki ofnæmi Eldtraust Þarf ekki að vökva Íslenskar leiðbeiningar Útgáfu nýrrar skáldsögu Þórarins Eldjárns, Hér liggur skáld, verður fagnað í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, miðvikudaginn 14. nóvember kl. 17–19. Léttar veitingar í boði og hljómsveitin Unnar kjötvörur leikur af fingrum fram. Höfundur les úr bók sinni, áritar hana og segir frá henni og fleiri bókum sem hann er með á sínum snærum í aðdraganda jóla. Verið velkomin! ÚTGÁFU- FAGNAÐUR Söguleg skáldsaga í sérflokki

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.