Fréttablaðið - 14.11.2012, Side 35

Fréttablaðið - 14.11.2012, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 14. nóvember 2012 31 FYRSTU HUNDRAÐ GESTIRNIR FÁ FRÍAN DRYKK HÖFUNDAR FORLAGSINS KYNNA BÆKUR SÍNAR MIÐVIKUDAGINN 14. NÓVEMBER KL. 20 HANDBOLTI Hrafnhildur Ósk Skúla- dóttir, fyrirliði Vals og íslenska kvennalandsliðsins, fer fyrir sínu liði jafnt innan sem utan vallar. Hrafnhildur og félagar hennar í landsliðinu eru að fara að keppa á sínu þriðja stórmóti í röð í næsta mánuði en það þurfti einka- framtak frá henni sjálfri til að útvega nýja skó á allar landsliðs- stelpurnar. Fréttablaðið heyrði í Hrafnhildi og fékk að heyra söguna á bak við það þegar hún komst í tengsl við forsvarsmann Mizuno-umboðsins. „Alexander Petersson er á skó- samningi hjá Mizuno og hann reddaði mér Ólympíuskóm,“ sagði Hrafnhildur en Mizuno fram- leiddi sérlínu fyrir Ólympíuleik- ana í London. „Svo fer ég út og hitti þennan Mizuno-mann ásamt konunni hans Alex (Eivor Pála Blöndal) sem er ein besta vinkona mín. Þar lendi ég bara á spjalli við hann og enda á því að koma út með skósamning. Þetta var mjög fyndið og svolítil tilviljun,“ rifjar Hrafn- hildur upp. „Ég er búin að glíma við hásin- avandamál og þarf að skipta um skó svo oft. Ég þarf helst að skipta á fjögurra til fimm mánaða fresti og það er því dýrt að þurfa að fara kaupa sér skó á 30 þúsund krónur á fjögurra mánaða fresti,“ segir Hrafnhildur sem reddaði ekki bara skóm fyrir sjálfa sig. „Ég var síðan í meira sambandi við hann og þá spyr hann hvort að það væru ekki einhverjar stelpur í landsliðinu sem vildu prófa nýju skólínuna þeirra. Út frá því hafði ég sam band við landsliðs- stelpurnar og reddaði þeim fullt af skóm,“ segir Hrafnhildur. Stelp- urnar fá ekki mörg fríðindi fyrir að halda Íslendingum meðal bestu handboltaþjóða heims. „Það er síðan bara grín hvernig þetta er í kringum okkur. Stelp- urnar í 16 ára lands liði kvenna í Danmörku koma drekkhlaðnar af alls konar búningum, vörum og göllum. Þær eru að fá haug gefins fyrir að komast í einhver unglingalandslið en unglinga- landsliðin okkar borga sjálf far- gjaldið út þegar þau eru að fara að spila,“ segir Hrafnhildur en hún er ekki reið út í handbolta- sambandið. „Maður gerir sér alveg grein fyrir því að HSÍ getur ekki gert neitt. Þeir eru að fá sitt hjá ein- hverjum fyrirtækjum og það er gríðarlega erfitt fyrir þá að ná sér í þessa peninga. Þeir geta ekki verið að borga leikmönnum eða kaupa hitt eða þetta. Það er bara skandall að ríkið skuli ekki styrkja íþróttastarf í landinu,“ segir Hrafnhildur. „Ég held bara að við þurfum að fara að skófla einhverju íþróttaliði inn á þing. Það er í alvörunni eina lausnin til að það verði eitthvað gert. Íþróttastarf er langbesta forvörnin gegn öllu og það skiptir ótrúlega miklu máli að börn finni sér einhverja íþrótt,“ segir Hrafnhildur. „Ég held að sjötíu prósent af þeirra fjármagni sé komið inn fá styrktaraðilum sem er bara grín. Þeir þurfa að finna fyrirtæki úti í bæ til að reka landsliðið. Þetta er sorglegt,“ segir Hrafnhildur og hver veit nema að hún skelli sér í stjórnmálin þegar handbolta- skórnir eru komnir upp á hillu. - óój Landsliðsfyrirliðinn Hrafnhildur Ósk Skúladóttir lætur til sín taka utan vallar: Reddaði skóm á allt landsliðið FIMMTI LEIKURINN Á TÍU DÖGUM Hrafnhildur Ósk Skúladóttir í leik með Val í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN N1 deild kvenna í handb. HK - Valur 21-44 (10-19) Mörk HK: Heiðrún Björk Helgadóttir 6, Guðrún Erla Bjarnadóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Gerður Arinbjarnar 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Emma Havin Sardarsdóttir 1, Tinna Rögnvaldsdóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1. Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 9, Íris Ásta Pétursdóttir 7, Aðalheiður Hreinsdóttir 6, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Þorgerður Anna Atladóttir 5, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 4, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3, Kolbrún Franklín 2, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Karólína Lárudóttir 1. STAÐAN Í DEILDINNI: Valur 8 8 0 0 285-150 16 Fram 8 8 0 0 238-144 16 ÍBV 9 7 1 1 246-189 15 FH 9 6 0 3 224-221 12 HK 9 5 0 4 225-234 10 Stjarnan 9 5 0 4 232-211 10 Grótta 9 3 1 5 192-216 7 Haukar 9 3 0 6 199-232 6 Selfoss 9 2 0 7 188-221 4 Fylkir 9 1 0 8 160-264 2 Afturelding 10 0 0 10 173-280 0 Þýski handboltinn: Flensburg-Magdeburg 30-24 (17-13) Arnór Atlason var með tvö mörk og átta stoðsendingar fyrir Flensburg í leiknum auk þess að spila vel í hinn sterku 6:0 vörn liðsins. Hann átti meðal annars fjórar stoðsendingar á danska hornamanninn Anders Eggert í fyrri hálfleik en Eggert var markahæstur í leiknum með átta mörk. ÚRSLITIN Í HANDBOLTANUM Í GÆR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.