Fréttablaðið - 30.11.2012, Blaðsíða 78
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
Það hafði vafist fyrir foreldrum Ellyjar að
finna dóttur sinni nafn og þegar það var
loksins fundið átti fólk það til að hvá þegar
hún kynnti sig.
Eldey þótti sérkennilegt nafn á lítilli
stúlku og oftar en ekki þurfti hún að segja tvisvar eða jafnvel þrisvar
til nafns. Henni féll þetta illa, fólk með sæmilega heyrn átti að geta
skilið hvað hún sagði. Á Laugarvatni þutu brandararnir um Eldey Vil-
hjálmsdóttur og hina þverhníptu nöfnu hennar eins og eldur í sinu um
skólann. Steininn tók úr, í orðsins fyllstu merkingu, í byrjun desember
1950 þegar Morgunblaðið greindi frá því að sjómenn teldu að hrunið
hefði úr klettinum Eldey að austanverðu. „Mönnum ber þó ekki saman
um, hversu mikið hrunið sje, en tök hafa ekki verið á að kanna það
sjerstaklega vegna dimmviðris,“ sagði í blaðinu.
Skólafélögunum var skemmt. Spurningakassi málfundafélagsins
fylltist af meinlegum athugasemdum og spurningin „Hvað hrundi úr
Eldey?“ glumdi í eyrum hennar hvert sem hún fór. Þetta kom illa við
hana og í annað sinn á fjórtán árum var fundað um nafnið hennar.
Hún settist niður með vinkonum sínum sem allar voru sammála um að
aðgerða væri þörf. Eldey varð að víkja en nýja nafnið mátti ekki vera
of ólíkt. Þær brutu heilann og ræddu ýmsar hugmyndir og loks kom
svarið – Elly Vilhjálmsdóttir.
Henni var létt, nýja nafnið festist við hana, glósur skólasystkinanna
hljóðnuðu. Gunnar Stefánsson gat þó ekki stillt sig þegar hann skrifaði
til skólasystur sinnar að skilnaði vorið 1952:
„Ég þakka þér kærlega fyrir samveruna og ágæta viðkynningu. Ég
get ekki séð að það hafi hrunið nokkuð úr Eldey í vetur. Þakka söng-
skemmtanirnar í Nýja skólanum. Bjarta framtíð. Gunnar.“
●●●
Hverful er gæfan
Elly var sannkallaður morgunhani. Henni fannst gott að fara snemma
á fætur og flesta morgna vaknaði hún syngjandi glöð og reiðubúin
til að takast á við verkefni komandi dags. Þriðjudagsmorgunninn 28.
mars 1978 var engin undantekning. Það var vor í lofti, Elly hafði sett
plötu á fóninn og var að hella upp á könnuna þegar síminn hringdi.
Hún svaraði, grunlaus um hvert erindið væri. Á hinum enda línunn-
ar var blaðamaður Dagblaðsins sem kynnti sig og spurði svo hvort
það gæti verið að Vilhjálmur bróðir hennar væri látinn. Lögreglunni í
Hafnarfirði hafði borist símskeyti á frönsku þar sem greint var frá því
að íslenskur flugmaður hefði látist í bílslysi um nóttina. Grunur léki á
að hinn látni væri Vilhjálmur en það hefði ekki fengist staðfest.
Um leið og blaðamaðurinn bar upp spurninguna vissi hann að honum
höfðu orðið á skelfileg mistök. Elly hafði ekkert heyrt af slysinu og því
síður af andláti bróður síns. Hún reyndi að spyrja blaðamanninn nánar
út í fregnina, hann hikaði en sagði henni svo hvað hefði gerst. Því næst
kvaddi hann í skyndi og Elly sat eftir skelfingu lostin. Þetta gat ekki
verið satt. Skömmu síðar fékk hún fréttina staðfesta. Andlát Vilhjálms
var henni mikið áfall og hún fyrirgaf blaðamanninum aldrei það sem
hún kallaði síðar ómanneskjulega frekju.
Blaðamaðurinn var einnig miður sín, hann hafði aldrei lent í öðru
eins. Þessi atburður er enn ljóslifandi í huga hans og hann hefur
aldrei getað fyrirgefið sjálfum sér það að taka upp símtólið og
hringja í Elly þennan örlagaríka dag.
Ár áfalla
Árið 1978 reyndist ár áfalla í lífi Ellyjar. Vilhjálmur lést í
mars og um miðjan nóvember bárust fréttir af öðru slysi
sem hún tók mjög nærri sér. Þota Flugleiða, sem var í píla-
grímaflugi í Asíu, brotlenti á flugvelli við Colombo á Srí
Lanka. Alls fórust 179 manns í þessu slysi, þar af átta
Íslendingar. Einn þeirra var Ólafur Axelsson, deildar-
stjóri í flugdeild Flugleiða og tengdafaðir Atla, sonar Ellyj-
ar. Ólafur hafði reynst Atla afar vel og Elly hafði miklar
mætur á tengdafjölskyldu sonar síns. Hún kannaðist líka
vel við báðar flugfreyjurnar sem fórust með vélinni. Önnur
þeirra, Sigurbjörg Sveinsdóttir, var gift Eyþóri, fyrsta eigin-
manni hennar, og hin, Erna Haraldsdóttir, var eiginkona Jóns
Páls [annars eiginmanns Ellyjar].
Nokkru upp úr áramótum þetta örlagaríka ár fór Hólmfríð-
ur, dóttir Ellyjar, að finna fyrir dofa í iljum. Hún ræddi þetta
við móður sína sem í fyrstu gaf því lítinn gaum. Hólmfríður var
aðeins sextán ára og Elly þótti óhugsandi að eitthvað alvarlegt
kynni að vera á seyði.
Hólmfríður hafði engar áhyggjur af þessu heldur, en í febrú-
ar dofnaði annar fóturinn svo að hún hrasaði þegar hún var
að hlaupa. Elly fór með hana til læknis sem kvað upp þann
úrskurð að hún þjáðist af æðaþrengslum. Henni var ráðlagt að
stunda böð, hlaupa og synda og það gerði hún. Allt kom fyrir
ekki og Hólmfríður fór að finna fyrir jafnvægis- og mátt-
leysi. Eitt sinn var hún rekin heim úr matreiðslutíma í skól-
anum eftir að hafa misst allt í gólfið og þegar hægri hand-
leggurinn og hluti af andlitinu var orðinn máttlaus hætti
fjölskyldunni að lítast á blikuna.
Elly fór með Hólmfríði á Slysavarðstofuna en þar virt-
ust öll taugasvör vera eðlileg. Næst lá leiðin á Grensás-
deild Borgarspítalans. Hólmfríður var þá að ljúka grunn-
skóla og að búa sig undir samræmdu prófin, og þó að hún
þvertæki fyrir það að hafa áhyggjur af náminu var álagi í
prófunum kennt um.
Hennar nánustu var hætt að lítast á blikuna og enn
var haldið fund taugalæknis. Þar fékk hún þá greiningu
að hún þjáðist af taugabólgum og henni ráðlagt að hafa
hægt um sig. Hún lá í viku, aftur fékk hún mátt í hönd-
ina en skömmu síðar fékk hún bæði sjón- og jafnvæg-
istruflanir. Þær ágerðust og um haustið tókst loksins
að greina hvað að amaði. Fríða var með MS-sjúkdóminn
og honum fylgdu ótaldar dvalir á sjúkrahúsum næstu árin.
Aðgerðir, lyfjameðferðir og uppskurðir, og 25 ára var Hólm-
fríður komin í hjólastól.
Eins og nærri má geta hafði Elly miklar áhyggjur af dóttur
sinni og framtíð hennar og gerði allt sem í hennar valdi stóð til
að reyna að létta henni lífið. Þær mæðgur voru ekki alltaf sam-
mála um hvað réttast væri að gera og þó að Elly dáðist í aðra
röndina að bjartsýni dóttur sinnar óttaðist hún oft að hún kynni sér
ekki hóf. „Hún stóð keik og kát upp aftur eftir hvert stórkastið sem
sjúkdómurinn olli,“ sagði Björg Rúnarsdóttir um vinkonu sína, „og
á Landspítalanum eignaðist hún æ fleiri vini og kunningja. Hverja
sjúkrahúslegu nýtti Fríða til að eignast nýja vini og kunningja í þeim
heilbrigðisstarfsmönnum sem önnuðust hana og sjúklingum sem með
henni lágu. Ef leguna bar upp á sumartíma og Fríða var í færanlegu
standi, þá lét hún koma sér fyrir úti í sólinni, hélt þar uppi fjörinu
og kallaði spítalann „Costa del Lansa“. Þaðan útskrifaðist hún síðan
kaffibrún.“
HVAÐ
HRUNDI
ÚR ELDEY?
Margrét Blöndal hefur sent frá sér ævisögu Ellyjar
Vilhjálms, einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar.
Hér er gripið niður á tveimur stöðum í bókinni, sagt
frá námsmeynni Elly á Laugarvatni um miðja síðustu
öld og síðar þegar áföll dundu yfi r.
MÆÐGUR Elly og dóttir hennar, Hólmfríður Ásta. Vegna MS-sjúkdómsins var Hólm-
fríður komin í hjólastól 25 ára gömul.
Elly
Höfundur Margrét Blöndal
Útgáfa Sena
Fjöldi síðna 205
Nú er Létt Bylgjan jólastöðin þín
Ljúf og þægileg jólatónlist
alla daga til jóla
Á hinum enda
línunnar var blaða-
maður Dagblaðsins
sem kynnti sig og
spurði svo hvort það
gæti verið að Vil-
hjálmur bróðir henn-
ar væri látinn. ... Um
leið og blaðamaður-
inn bar upp spurn-
inguna vissi hann að
honum höfðu orðið á
skelfileg mistök. Elly
hafði ekkert heyrt af
slysinu og því síður
af andláti bróður
síns.
GLÆSILEG
Elly Vilhjálms í
kringum 1960. Í
upphafi ferils síns
saumaði söng-
konan kjólana sína
sjálf en leitaði síðar
til Sigríðar Jóns-
dóttur, saumakonu
á Hjarðarhaganum,
sem saumaði á
hana kjóla eftir
fyrirmyndum af hvíta
tjaldinu.
MYNDIR/ÚR EINKASAFNI