Fréttablaðið - 30.11.2012, Blaðsíða 64
30. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36
BAKÞANKAR
Magnús Þorláks
Lúðvíkssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. getraun, 6. frá, 8. skil, 9. vætla, 11.
tveir eins, 12. sjávarspendýr, 14. bátur,
16. pot, 17. drulla, 18. fát, 20. skst.,
21. traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. korn, 3. í röð, 4. reina, 5. mjög, 7.
viðriðinn, 10. keyra, 13. impra, 15.
krass, 16. margsinnis, 19. svörð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáta, 6. af, 8. bil, 9. íla, 11.
ll, 12. sækýr, 14. kajak, 16. ot, 17. aur,
18. fum, 20. no, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. maís, 3. áb, 4. tilraun, 5.
all, 7. flæktur, 10. aka, 13. ýja, 15. krot,
16. oft, 19. mó.
Þarna náðir
þú henni!
Þúsund
þakkir!
Það var
lítið!
Pssst! Pierce! Ég
ég festi dálítið
undir sætið.
Gaur! Ég
líka!
Hvað festirðu
undir sætið,
slæmi strákur?
Stóra tygg jó-
klessu!
En þú?
Príusinn hans aðstoðar-
skólastjóra.
Ertu enn að hitta
þennan jarðar-
fararstjóra?
Já, hann
segist vera
líklega hrifinn
af mér.
Ég veit ekki
hvað ég á
að vera á
öskudaginn.
Ekki ég
heldur.
Hmmm... Þið gætuð verið tveir
gsm-símar.
Já! það
væri
sætt!
Ég vil ekki
vera sætur.
Ég vil vera
hræðilegur!
Þið gætuð verið
símreikningurinn.
Um miðjan tíunda áratuginn var eng-inn maður með mönnum á skólalóð-
inni án þess að eiga safn af Pox-spjöldum.
Þessi litríku, kringlóttu spjöld lagði maður
undir í keppni við aðra sem snerist um að
kasta svokölluðum sleggjum á spjöldin með
það fyrir augum að snúa þeim við, en þar
með eignaðist maður þau. Vildi maður tefla
virkilega djarft lagði maður sleggjurnar
undir. Minnist ég þess að hafa eitt skiptið
hlaupið grátandi heim eftir að hafa tapað
flottustu sleggjunni minni. Hún var úr stáli,
sjáið þið til. Poxið var reyndar ekki lengi
að detta úr tísku en við dóum ekki ráða-
lausir. Við snerum okkur einfaldlega að
harki með tíköllum eða þá Drakkó-köll-
um, svo önnur tískubóla æskuáranna sé
nefnd. Skólalóð Melaskóla var nefni-
lega ekkert annað en spilavíti.
NÚ Á loks að binda enda á þennan
ósóma. Innanríkisráðherra vill setja
á fót nýja ríkisstofnun sem sinna
á eftirliti með veðmálastarfsemi
innanlands. Þá á að banna Íslend-
ingum að notfæra sér erlendar
veðmálavefsíður. Af hverju? Það
er reyndar vandséð þar sem ekki
er gert ráð fyrir að spilakassar,
bingóið í Vinabæ, happdrætti eða
tippið verði bönnuð. Það virðist
nefnilega heldur vera á forsend-
um efnahagslegrar verndarstefnu
sem ráðherra vill setja slíkt bann.
Þannig hefur hann lagt áherslu á að
veðmálafé fari úr landi og jafnframt sagst
opinn fyrir því að innlendum fyrirtækjum
verði gert kleift að bjóða upp á netspil. Þá
vaknar spurningin af hverju að láta staðar
numið þarna, af hverju bönnum við ekki
bara líka til dæmis innflutning erlendra
kvikmynda eða jafnvel húsgagna?
ÞAR koma væntanlega til hin rök ráðherra
fyrir ráðgerðum lagabreytingum, sem snúa
að því að veðmálafíkn sé vaxandi vandamál
á Íslandi. Hér verður ekki gert lítið úr þeim
vanda sem veðmálafíkn getur valdið ein-
staklingum og fjölskyldum þótt slík fíkn sé
reyndar mjög sjaldgæf (minna en 1% fólks
á við slíka fíkn að stríða samkvæmt flest-
um rannsóknum). En það má heldur ekki
gera lítið úr rétti fólks til að ráðstafa eigin
eignum að vild. Takmarkanir á þeim rétti
verða að vera studdar með sterkum rökum.
Tilfinning ráðherra um umfang veðmála-
fíknar (í samtali við Morgunblaðið sagðist
hann ekki hafa tölfræðilegar upplýsingar til
að styðja fyrrnefnda fullyrðingu) uppfyllir
ekki það skilyrði.
ÞÁ ER raunar erfitt að sjá að vandi mjög
fámenns hóps réttlæti yfirhöfuð takmark-
anir á hegðun allra í tilviki sem þessu.
Það er nefnilega ekki svo einfalt að gera
skýran greinarmun á „hættulegri“ fíkn
og „eðlilegri“ afþreyingu. Lítill hópur
Íslendinga þjáist af netfíkn en það er varla
nægjanleg ástæða til að banna netnotkun á
Íslandi, eða hvað?
Spilavítinu Melaskóla lokað
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
I0
4
3
2
5
9
fim. 22/11 kl. 20 UPPSELT
fös 23/11 kl. 20 örfá sæti
lau. 24/11 kl. 1 9 örfá sæti
fös. 30/11 kl. 20 örfá sæti
lau. 1/12 kl. 1 9 örfá sæti
sun. 2/12 kl. 20 örfá sæti
sun. 30/12 kl. 20 örfá sæti
Rómantískur gamanleikur
í leikstjórn Sigga Sigurjóns og Bjarna Hauks