Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 24
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 24 Hvað ef landnámsmenn- irnir forðum daga hefuðu snúið við og sagt „Þetta er bara vesen. Hættum við að leita á vit nýrrar fram- tíðar“? Hvað ef Leifur, Þorfinn- ur, Guðríður og co. hefðu hætt við förina til Amer- íku og aldrei fundið hina nýju álfu? Hvað ef bandamenn í seinni heimstyrjöldinni hefðu sagt „Við skulum ekkert vera að skipta okkur af þessum málum. Látum þetta bara eiga sig“? Hvað ef Lúther hefði ekki þorað að negla greinarnar 95 á dyr hallar kirkjunnar í Wittenberg og við værum enn föst í viðjum þröngsýni og afturhalds? Hvað ef við hefðum ekki þorað að færa út landhelgina í 12 mílur, 50 mílur, 200 mílur? Hvað ef Vestmannaeyingar hefðu ekki nennt upp á land í gos- inu? Hvað ef þeir hefðu hætt við að dæla köldum sjó á hraunið? Hvað ef Guðlaugur hefði snúið aftur til skipsflaksins í stað þess að synda í land? Hvað ef við hefðum ekki þorað að taka á hruninu? Og svo framvegis og fram- vegis. Eða erum við kannski í þeim sporum að þora ekki að taka á hruninu? Nú hrópar úrtölu- fólk hátt á málþingum og í fjölmiðlum og vill snúa þjóðinni til baka, þjóðinni sem er á ferð á vit nýrrar framtíðar. Hættum við, segja þau, förum varlega, skoðum þetta betur, snúum við, hættum við ferðina til fyrirheitna lands- ins, höfum þetta bara eins og það hefur verið, spillt, rotið, grugg- ugt, óskýrt, óréttlátt, ósanngjarnt, ójafnt – ó, ó, ó! Já, svei, segi ég nú bara. Höldum för okkar áfram Það tók fámennan hóp 116 daga að setja saman bandarísku stjórnar- skrána árið 1787 sem margar stjórnarskrár frjálsra landa hafa síðan verið byggðar á. Hún var samþykkt með naumum meiri- hluta í mörgum ríkjum en náði þó í gegn. Það tók stjórnlaga- ráð 115 daga að ljúka gerð nýrr- ar stjórnarskrá fyrir Ísland árið 2011, stjórnarskrá sem fær flotta dóma þeirra erlendu sérfræðinga sem búa yfir alvöru þekkingu og kunna að lesa hana í samhengi við aðrar stjórnarskrár heimsins. En hér heima á klakanum eru úrtölu- menn, einkum af félagsvísinda- og lögfræðisviðum háskólanna, orðnir hásir við að öskra á fólk um að snúa við, fara til baka. Mér koma til huga orð Salómons kon- ungs, þess vitra manns: „Eins og hundur sem snýr aftur til spýju sinnar, svo er heimskingi sem endurtekur fíflsku sína.“ Ætlum við að að vera þær gung- ur að snúa við? Ætlar þú, þjóð mín, að snúa aftur til spýjunnar? Hlustum ekki á úrtölufólkið, brýnum alþingismenn okkar til að sýna nú djörfung og dug og klára málið án þess að eyðileggja listaverkið sem stjórnarskrár- frumvarpið er. Höldum för okkar áfram, ferðinni til nýrrar fram- tíðar, fegurri veraldar, réttlátara samfélags. Úrtölufólkið og spýjan Því fylgir jafnan ein- kennileg blanda af kát- ínu, furðu og ónotum að lesa frásagnir af boðunar- samkomum langt leiddra hægrimanna. (Með því á ég bara við jaðar hópinn sem heldur fastar í ósýni- legu höndina en skynsemi sína.) Í Morgunblaðinu 20. nóvember sl. var við- tal við erlendan farand- predikara sem hélt stól- ræðu yfir innvígðum úr þessum hópi á dögunum. (Og blaðamanni Morgunblaðsins, ef gera ber einhvern skilsmun þar á.) Trú- eða te boðinn var Daniel nokkur Mitchell, bandarísk- ur starfsmaður Cato Institute í Washington DC, USA, og pípa nú kannski strax reykskynjarar hjá mörgum en látum gott heita og höldum áfram. Doktor í hagfræði, doktor í hagfræði, doktor í hagfræði Til að tryggja eftirtekt lesenda og kannski eitthvað meira taldi blaðamaður Morgunblaðsins augsýnilega nauðsynlegt að til- taka ekki bara einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar sinnum að Mitchell væri með doktorsgráðu í hagfræði. Sjálf umfjöllunin var svo á kósí-kunnuglegum slóðum. „Meira frelsi og velmegun ef umsvif ríkisins eru lítil.“ Og: „Við viljum hagvöxt því þá hefur fólk það betra.“ Og: „Flatir skattar eru æskilegir samkvæmt hagfræði og siðfræði“. Gott og vel – það er trúfrelsi á Íslandi. Hápunkturinn var hins vegar ekki þarna heldur undir myndinni með viðtalinu. Einn útúrdúr fyrst: Fram kom í viðtalinu hverjir safnaðar- meðlima höfðu veg og vanda af komu Mitchell hingað. Þar voru tvö hátimbruð nöfn, annars vegar Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt en hins vegar Sam- tök skattgreiðenda. Ég veit ekki með hið fyrrnefnda en af gramsi á netinu virðist hið síðara vera nafn á bloggsíðu Skafta Harðar- sonar. Og ekki mikið meira. Ef til vill er þó eitthvað fleira í skúffu þessa félags, ég veit það ekki, en manni fyrirgefst vonandi að verða hugsað til gamanmála Flosa heit- ins Ólafssonar um Berg og Stóra- Aðalberg. Ein-tök? Sam-eind? Óháð því má velta nánar fyrir sér þeirri tilhneigingu hjá sumum að koma á fót í kringum sjálfa sig, en kannski ekki svo marga aðra, ein- hverjum nostursamlega skírðum „samtökum“. Koma svo þaðan í frá helst ekki fram sem maður sjálfur held- ur sem holdgerð Samtök- in. Maður hefði kannski hneigst til að heimfæra þetta undir metnaðar- fulla og e.t.v. dálítið mis- skilda félagshyggju. Það er þó víst ekki nokkuð sem maður myndi kenna Skafta Harðarsyni eða ýmsum öðrum sem þetta stunda. Hvað þá? Ef gengið er á hold- og höfuð- gervinga svona samtaka og þeir spurðir hverjir eða hversu marg- ir aðrir séu undir skikkjunni og memm í klúbbnum er svo oftar en ekki viðkvæðið að fara undan í flæmingi eða jafnvel neita blákalt að gefa nokkuð upp um það. Úr verður eitthvað í ætt við ævintýrið um hina keisaralegu nekt. Nema hvað barnið bend- ir ekki á bera kallinn og hrópar heldur er nógu kurteist og tillits- samt (eða meðvirkt) til að spyrja hann fyrst í hálfum hljóðum eins- lega hvort hann sé nú alveg örugg- lega viss um að vera í öllum föt- unum. Og keisarinn, á fremur efnisrýrum þveng einum klæða (í víðlesnu og virðulegu blaði er rétt að gæta lágmarksvelsæmis í myndgervingum), svarar með nokkrum þjósti að hann geti nú ekki tjáð sig neitt um það en hinu megi fólk treysta að sjálfum líði honum líkt og kappklæddum. Endalok heimspekinnar? En ég var að tala um guðspjallið samkvæmt Daniel Mitchell sem Morgunblaðið miðlaði lesend- um sínum fyrir skömmu. Ógetið var um hápunktinn úr helgihald- inu. Og þar dugir ekkert minna en að vitna beint til endursagnar myndatextasmiðs Morgunblaðs- ins á egghvössu innsæi dr. Daniel Mitchell: „Hann nefnir að það sé mun fýsilegra að búa í ríku landi, líkt og Íslandi, en fátæku, eins og Ind- landi.“ Nú eru skattalækkanir góðar og blessaðar þar sem við á. Öll viljum við fá sem mest í vasana og skattana eins lága og unnt er hverju sinni. En hér er annað og meira undir. Aldrei áður í heims- sögunni (kannski gat Churchill betur fullyrt svona en ég) hefur jafnsnyrtilega, í jafnfáum orðum og á jafnbarnslega blá eygan hátt verið smættuð niður sjálf lífs- gátan. Dömur mínar og herrar í heimspekideildunum, þið getið pakkað niður doðröntunum og tekið ofan flöskubotnana, kannski bara drifið ykkur loksins í leiser en því næst heim og hallað ykkur og svo strax í fyrramálið fengið ykkur alminlega vinnu: Daniel Mitchell og Mogginn eru búnir að þessu fyrir ykkur. Vöxtur með vorinu Eða ekki. Ég veit ekki með aðra en við lestur þessa viðtals í Morgun- blaðinu varð mér einkum hugs- að til eins, og það var ekki hvað ég gæti loksins grætt og grillað mikið ef ég fengi allt þetta frelsi sem boðað var, heldur var það Peter Sellers sem Chance úr kvik- myndinni Being There, klæddur í kjól og hvítt og með Mónulísu- bros, segjandi undirfurðulegum rómi við bergnuminn hóp fyrir- menna: „There will be growth in the spring.“ Alveg hreinskilnislega í þetta sinn held ég að sjaldan í heims- sögunni hafi jafnsnyrtilega, í jafnfáum orðum og á jafnbarns- lega bláeygan hátt verið rifin niður hin brenglaða sjálfsmynd hagfræðinnar, sem sumir kyndil- berar eða sjálfskipaðir stafnbúar hennar þreytast ekki á að troða upp á hana beint eða óbeint, nefni- lega að hún sé innst inni raunvís- indi en ekki félagsvísindi. (Eins og hið síðara sé annars eitthvað til að skammast sín fyrir!) Von- andi er að þessi eðlisáttunarvandi rjátlist sem fyrst af þeim sem við hann stríða. Vonandi er að þeir leyfi hagfræðinni að vera það sem hún í raun er og hvorki meira né minna en það: samnefnari fyrir misjafnlega viðeigandi tilgátur, stundum kenningar, um manninn og samfélagið en ekki – alls ekki! – fyrir nein járnhörð náttúru- lögmál um hið sama. Frelsið mun gjöra yður sanna ÞJÓÐFÉLAGSMÁL Sr. Örn Bárður Jónsson sóknarprestur í Neskirkju ➜ Ætlum við að að vera þær gungur að snúa við? Ætlar þú, þjóð mín, að snúa aftur til spýjunnar? STJÓRNMÁL Finnur Þór Vilhjálmsson lögfræðingur ➜ Nú eru skattalækkanir góðar og blessaðar þar sem við á. Öll viljum við fá sem mest í vasana og skattana eins lága og unnt er hverju sinni. En hér er annað og meira undir. Aldrei áður í heimssögunni (kannski gat Churchill betur fullyrt svona en ég) hefur jafn snyrtilega, í jafnfáum orðum og á jafn- barnslega bláeygan hátt verið smættuð niður sjálf lífsgátan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.