Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 58
KYNNING − AUGLÝSINGMyndavélar LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s.512-5432
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Á vefnum pho.to er hægt að setja inn mynd af sér eða öðrum og
breyta henni með alls kyns frábærum effektum. Þú getur sett
andlitsmynd af þér inn á mynd með frægu fólki eða látið and-
lit þitt hreyfast á ýmsa vegu, sett sjálfan þig eða aðra inn í fynd-
ið umhverfi eða gert þig að forsíðuefni á frægu tímariti. Möguleik-
arnir eru óteljandi og vel hægt að gleyma sér á þessum vef. Síðan
getur þú skellt myndinni inn á Facebook, vinum þínum til undr-
unar, eða notað sem skjámynd á tölvunni.
Einnig er hægt að setja jólasveinahúfu á þann sem skreyt-
ir myndina og útbúa síðan jólakort til viðkomandi. Nú eða setja
hann í líkama kattar, ljóns eða annarra dýra. Einnig getur þú sett
sjálfan þig inn í rómantískt baðstrandarlíf á framandi eyju.
Hægt er að setja sig á mynd með frægum persónum eins og
Justin Bieber, Tom Cruise, Brad Pitt, Lady Gaga, Rolling Stones,
Bítlunum og mörgum öðrum. Það er sannarlega hægt að koma
vinum sínum á óvart í gegnum þennan vef með hinum ýmsu
brellum.
Á meðfylgjandi mynd hefur verið útbúin skemmtileg útfærsla af
sex ára stúlku, Júlíönu Þorsteinsdóttur, með Justin Bieber, enda
mun hann vera í uppáhaldi hjá henni. Eina sem þarf er mynd af
aðdáandanum sem sótt er í eigin myndsafn í tölvunni og sett inn í
þartilgerðan ramma. Þá birtist nýja útgáfan með hinum fræga.
Með frægum á mynd
Samfélagsmiðill-inn Pinterest er einn sá vinsæl-
asti í heiminum í dag og
sá sem vex hvað hrað-
ast ef miðað er við not-
endafjölda. Líkja má
Pinterest við myndræn-
ar tilkynningartöf lur
eða korktöflur á netinu
þar sem hver tafla inni-
heldur ákveðið þema
en notendur vefsins
setja inn ljósmyndir eða
myndbönd á hverja töflu
sem tengjast því þema.
Þannig geta töflurnar innihald-
ið efni sem tengist öllum mögu-
legum hlutum, til dæmis tísku,
matargerð, ferðalögum, brúðkaup-
um eða hönnun.
Þóranna K. Jónsdóttir, mark-
aðseinkaþjálfari og -ráðgjafi hjá
Markaðsmálum á mannamáli,
hefur skipulagt námskeið í notk-
un Pinterest fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. Hún segir mikil tæki-
færi felast í notkun samfélags-
miðilsins enda sýni rannsóknir
að notendur hans eyði meiri tíma
þar en á öðrum samfélagsmiðlum.
„Í dag eru notendur um 22,4 millj-
ónir og miðillinn vex hratt eða um
4-5000% milli áranna 2011-2012.
Notendur dvelja þar
mun lengur en á öðrum
samfélagsmiðlum enda
hafa aðrir samfélags-
miðlar einblínt meira á
texta á meðan Pinterest
gengur að nær öllu leyti
út á myndir og mynd-
bönd.“
Konur enn í meirihluta
Notendu r Pi nterest
fylgja eftir öðrum not-
endum vefsins, annað
hvort einstaka töf lum
eða öllum töflum þeirra.
„Almennt eru notendur að fylgja
eftir ýmsum töflum annarra not-
enda, allt eftir áhugasviði hvers
og eins. Ef viðkomandi hefur til
dæmis áhuga á mat og uppskrift-
um þá fylgir hann eftir ýmsum
spennandi aðilum sem eru að
setja inn girnilegar uppskriftir eða
fróðleik um mat. Um leið eru flest-
ir með eigin töflur þar sem þeir
hengja inn myndir og myndbönd
sem eiga við, hvort sem það tengist
mat, tísku, íþróttum, gæludýr eða
hverju sem er. Í dag er til dæmis
sérstaklega mikil gróska í kring-
um hannyrðir, hönnun, tísku, upp-
skriftir, ferðalög og ýmislegt hand-
verk á Pinterest.“ Í dag eru flestir
notendur Pinterest konur en karl-
mönnum fjölgar hratt. „Heimild-
um ber ekki saman um hlutfall
kynja en konur eru á bilinu 65-
95% notenda vefsins. Karlmenn
eru þó að taka við sér og þeim fjölg-
ar hratt.“
Fyrirtæki sjá tækifæri
Fyrirtæki hafa líka tekið hratt við
sér. Stærstur hluti notenda vefsins
er konur og stærstur hluti kaup-
ákvarðana í heiminum er tekinn af
konum. Þóranna segir mörg fyrir-
tæki því hafa stokkið fljótt af stað
og sérstaklega þau sem selja vörur
sem tengjast vinsælustu töflum
Pinterest. „Þau fyrirtæki sem stíla
inn á þennan markhóp hafa rokið
þarna inn. Í raun er það þannig að
ef fyrirtækið þitt selur vörur eða
þjónustu sem er mjög myndræn,
áttu mikla möguleika með Pint-
erest en mörg fyrirtæki eru líka að
koma þjónustu á framfæri á mjög
áhugaverðan hátt. Vefurinn virk-
ar líka þannig að ef einhver not-
andi hefur smellt mynd af vörunni
þinni inn, þá eru góðar líkur á því
að aðrir endurbirti sömu myndir á
sínum töflum. Þessar myndbirt-
ingar virka líka þannig að ef birt er
mynd beint frá verslun eða sölu-
aðila þá getur sá sem skoðar mynd-
ina hoppað beint inn á viðkomandi
vefverslun. Það er auðvitað mjög
eftirsóknarverður eiginleiki fyrir
þau fyrirtæki sem selja vörur og
þjónustu. Ef notandi Pinterest vill
kynnast vörunni eða þjónustunni
betur og kaupa hana getur hann
klárað viðskiptin strax.“
Myndir tengja saman heiminn
Sá samfélagsmiðill sem vex hraðast í dag er Pinterest sem gengur út á miðlun ljósmynda og myndbanda. Konur eru í dag helstu
notendur vefsins en körlum fjölgar hratt. Mörg fyrirtæki sjá spennandi tækifæri með notkun Pinterest við markaðssetningu sína.
Þóranna K. Jónsdóttir,
markaðseinkaþjálfari og
-ráðgjafi hjá Markaðs-
málum á mannamáli.
MYND/ÚR EINKASAFNI
25% afsláttur í Skemmtigarðinum Smáralind á sunnudögum.
NÝTT OG ÖFLUGRA
FRÍÐINDAKERFI
sjálfvirkur afsláttur frá samstarfsaðilum
beint í vasa áskrifenda
25%
afsláttur
Virkjaðu kreditkortið þitt og annarra fjölskyldumeðlima á mínar síður
á www.stod2.is. Ört vaxandi hópur samstarfsaðila. Fylgstu með!