Fréttablaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 54
18. desember 2012 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 46 Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is - Í öll anddyri - Hvaða stærð sem er - Afgreidd á 2 dögum • • FÓTBOLTI Óhætt er að segja að Aron Jóhannsson hafi slegið í gegn hjá AGF í dönsku úrvalsdeildinni á árinu sem senn er liðið. Deildar- mörk kappans urðu tuttugu saman- lagt en fjórtán þeirra hafa verið skoruð á yfirstandandi leiktíð. „Þetta er besta árið mitt, hingað til. Ég ætla að vona að ég sé ekki að toppa núna, 22 ára. Vonandi er eitthvað meira og betra eftir,“ segir Aron. Frammistaða Grafarvogs- piltsins er sérstaklega aðdáunar- verð í ljósi þess að hann hefur ekki gengið heill til skógar síðan í lok ágúst. „Í tvo mánuði æfði ég bara tvisv- ar í viku til þess að ég gæti náð leikjunum og þá spilað 60 eða 70 mínútur. Þegar ég var alveg meidd- ur var ég látinn æfa daginn fyrir leik til þess að geta komið inn á þegar hálftími var eftir af leik,“ segir Aron og grínast með að það hafi eyðilagt tölfræðina fyrir sér. Hann sé í raun og veru búinn að skora rúmlega mark að meðaltali í leik og hann sé fullur af sjálfs- trausti. „Alveg tvímælalaust. Ég finn líka þegar það hefur gengið svona vel marga leiki í röð fer maður inn á völlinn vitandi að maður mun skora. Ef maður skorar ekki á maður allavega góðan leik. Mér líður eins og ég viti það að ég sé að fara inn á og spila vel,“ segir Aron. Jürgen Klinsmann hringir Aron er alíslenskur en fæddur í Bandaríkjunum þar sem for- eldrar hans voru við nám. Hann er því gjaldgengur í bandaríska landsliðið. Aron sagði þó í viðtali við Fréttablaðið í byrjun októ- ber að umræða um að hann væri gjaldgengur í bandaríska landslið- ið hefði farið inn um annað eyrað og út um hitt. Jürgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrum stjörnuframherji þýska landsliðsins, hefði hringt í Aron en svar hans hefði verið að hann væri Íslendingur og myndi velja Ísland. Aron var valinn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Albaníu og Sviss í undankeppni HM í október og málið virtist úr sögunni. „Svo meiddist ég og komst ekki í landsliðs- ferðina þar sem ég hefði líklega spilað fyrstu landsleikina mína,“ segir Aron og þá hringdi Klins- mann á nýjan leik og minnti á möguleika hans vestan- hafs. Aron var ekki valinn í lands- liðshópinn fyrir æfingaleik gegn Andorra í nóvember og enn hringir Klinsmann. Nú býður hann Aroni til æfingabúða bandaríska lands- liðsins í Los Angeles og Arizona- ríki í janúar. „Þetta áttu að vera tvær vikur og tækifæri fyrir mig að sjá hvernig þeir vinna, hitta strákana, þjálfar- ana og hann (Klinsmann) sjálfan,“ segir Aron. „Ég eyk auðvitað verðgildið á sjálfum mér með því að vera val- inn í bandaríska landsliðið. Þótt ég hefði farið í þessa ferð hefði ég ekk- ert verið búinn að spila landsleik og gæti enn spilað fyrir Ísland. Ég leit meira á þessa ferð sem tækifæri fyrir sjálfan mig.“ Meiðsli Arons komu í veg fyrir að hann gæti mætt í æfingabúðirnar. Aron fer í aðgerð vegna kviðslits á miðvikudaginn og verður frá æfing- um næstu vikurnar. Að öllu eðlilegu verður hann kominn í gott stand þegar leik í dönsku úrvalsdeildinni verður framhaldið í mars. Samkeppnin meiri hjá Íslandi Knattspyrnukappinn Aron Jóhannsson hefur ekki gert upp hug sinn hvort hann kjósi að spila fyrir hönd Ís- lands eða Bandaríkjanna. Landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hringdi í Aron og lýsti yfi r áhuga sínum á honum. JUAN AGUDELO á ættir sínar að rekja til Kólumbíu. Sóknar- maðurinn tvítugi leikur með Chivas USA í atvinnumanna- deildinni vestanhafs, MLS- deildinni. Hann hefur skorað tvö mörk í 16 landsleikjum. HERCULEZ GOMEZ spilaði sinn fyrsta landsleik 25 ára en stendur nú á þrítugu. Gomez spilar með Santos Laguna í efstu deild í Mexíkó. Hann hefur skorað 5 mörk í 19 landsleikjum. TERRENCE BOYD er fæddur í Þýskalandi en á bandarískan föður sem hann hefur þó slitið á öll tengsl við. Boyd er 21 árs og spilar með Rapid í Vín í Austurríki. Hann á enn eftir að skora fyrir landslið Banda- ríkjanna eftir sjö tilraunir. JOZY ALTIDORE er fyrsti kostur í framlínu bandaríska liðsins í dag. Framherjinn 23 ára hefur skorað 13 mörk í 52 landsleikjum og verið iðinn við kolann hjá AZ Alkmaar í Hollandi. EDDIE JOHNSON hefur verið viðloðandi landsliðið frá 2004. Johnson, sem er 28 ára og spilar með Seattle Sounders í MLS-deildinni, hefur skorað 14 mörk í 44 landsleikjum. SAMKEPPNIN UM FRAMHERJASTÖÐUNA Í BANDARÍKJUNUM Fundaði með Heimi Hallgríms Aron skoraði fjögur mörk fyrir AGF í einum leik í dönsku úrvals- deildinni í lok ágúst. Daginn eftir var landsliðshópurinn fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undan keppni HM kynntur. Mikil framherjavandræði hrjáðu íslenska liðið en þó var ekkert pláss fyrir Aron. Lagerbäck var spurður að því hvort Aron gæti leyst framherjakrísuna. Lager- bäck sagði að samkvæmt sínum heimildum væri tími Arons ekki kominn og gæðamunur væri á honum og Birni Bergmann Sigurðar syni. Sá sænski hafði þó ekki séð Aron spila. „Mér fannst það auðvitað frek- ar svekkjandi því ég var búinn að standa mig vel allt árið í Dan- mörku fram að þeim tíma. Sér- staklega þar sem að enginn framherji gat spilað þá var hann ekkert búinn að tékka á mér,“ segir Aron. „Markmiðið hjá mér, þegar ég las þetta, var að standa mig það vel að hann gæti ekki litið framhjá mér. Ég vona að ég sé búinn að því núna,“ segir Aron sem var valinn í landsliðið í næsta verkefni eins og fjallað var um hér að ofan. „Ég hélt áfram að skora og standa mig vel. Ég ætlaði að fara í þessa landsliðsferð og fá mína fyrstu landsleiki. Ég var hins vegar meiddur í náranum og treysti mér ekki til að fara. Ef ég hefði farið væri þetta búið mál og enginn að pæla í þessu.“ Aron fundaði með Heimi Hall- grímssyni, aðstoðarmanni Lager- bäck, á föstudaginn. „Við töluðum lengi og vel saman,“ segir Aron. „Hann gerði mér ljóst að þeir vildu að ég spilaði fyrir Ísland. Auðvitað skil ég það. Ég var auðvitað ekki að ætlast til þess að hann myndi lofa mér einu né neinu í þessu spjalli. Hann gerði mér ljóst, eins og þeir gerðu um daginn þegar þeir völdu mig í landsliðið, að þeir væru auðvitað að velja mig til þess að ég myndi spila með þeim.“ Þrátt fyrir að hafa verið mikið í sviðsljósinu undanfarna daga og vikur hefur Aron húmor fyrir þessu öllu saman. „Ég gæti þurft að taka upp þátt eins og LeBron og nefna hann „Ákvörðunin“,“ segir Aron og hlær. NBA-stjarnan LeBron James vakti mikla athygli í sjónvarps- þættinum „The Decision“ þar sem fylgst var með ákvörðunarferlinu í aðdragandi þess að hann gekk til liðs við Miami Heat frá Cleveland Cavaliers. „Það er mikið að gera hjá mér núna. Fyrst ég er að standa mig svona vel sýna fullt af liðum áhuga. Það er aldrei að vita hvað gerist. Þegar næstu landsleikir koma vona ég að ég geti tekið ákvörðun sem ég er mjög ánægður með sjálfur,“ segir Aron. kolbeinntumi@365.is FÓTBOLTI Öllum liðsmönnum sænska knattspyrnuliðsins Sörskogens IF var vikið úr félaginu eftir að hafa gert sig seka um að ausa samkynhneigða andstæðinga sína svívirðingum. Liðið lék á dögunum við liðið Snipers frá Stokkhólmi, í sjö- undu deild þar í landi, en allir leikmenn Snipers eru sam- eða tvíkynhneigðir. Sörskogens fékk sekt frá knatt- spyrnusambandinu, en forsvars- menn liðsins bættu um betur og ráku alla liðsmennina. - seth Lið rekið fyrir hommahatur „Mér finnst framherjarnir í íslenska landsliðinu vera betri en þeir bandarísku,“ segir Aron, sem telur samkeppnina um stöðu framherja í íslenska landsliðinu meiri en í því bandaríska. Ekki minnki samkeppnin þegar landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck stilli miðjumönnunum Gylfa Sigurðssyni og Birki Bjarnasyni upp í framlínu landsliðsins. Því séu í raun fimm heimsklassa framherjar á undan Aroni í röðinni. „Bandaríkin eiga auðvitað fullt af leikmönnum líka,“ segir Aron. „Ég ætla ekki að byggja ákvörðunina á því að ég sé hræddur um að það séu einhverjir aðrir á undan mér. Ég verð að hafa trú á sjálfum mér að ég geti fengið að spila. Í því landsliði sem ég mun velja verð ég að sanna fyrir þjálfaranum að ég eigi að spila frekar en hinir,“ segir Aron, sem áttar sig á því að Bandaríkin séu nánast fastagestur á lokakeppnum heimsmeistaramóta. Færi hann á HM væri það mikilvægt fyrir sjálfan sig. „Auðvitað langar mig að spila fyrir Ísland. Það hefur verið draumurinn minn frá því ég var lítill. Hvort það sé betra fyrir ferilinn minn og sjálfan mig að spila fyrir Bandaríkin getur vel verið líka.“ Framherjar Íslands betri FÓTBOLTI Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Dönum í vin- áttuleik þann 20. júní á næsta ári og verður leikið í Danmörku. Leikurinn verður að öllum líkindum síð- asti leikur Íslands áður en úrslitakeppni Evrópumótsins hefst þann 10. júlí í Svíþjóð. Danir eru líkt og Íslendingar á meðal keppenda á EM. Danir eru í A-riðli ásamt Svíþjóð, Ítalíu og Finnlandi. Danmörk er í 13. sæti á styrkleikalista FIFA en Ísland er þar skammt á eftir eða í 15. sæti. Ísland og Danmörk hafa mæst sex sinnum áður og Ísland hefur aðeins einu sinni lagt Dani að velli. Það var á Algarve-mótinu árið 2011. Danir hafa unnið fimm leiki. Ísland mætir Skot- landi í vináttuleik á Laugardals- velli þann 1. júní og í mars verð- ur leikið í Algarve-bikarnum á Spáni þar sem mótherjar Íslands verða Bandaríkin, Svíþjóð og Kína. Stelpurnar mæta Dönum SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.