Fréttablaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 4
7. janúar 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SAMGÖNGUR Strætó bs. hefur tekið upp akstur á Norður- og Norð- austur landi. Aksturinn hófst á mið- vikudag og er hægt að velja um þrjár leiðir, frá Siglufirði til Akur- eyrar, frá Egilsstöðum til Akur- eyrar og frá Þórshöfn í gegnum Húsavík til Akureyrar. Panta þarf sérstaklega ferðir til Ásbyrgis, Kópaskers, Raufarhafnar og Þórs- hafnar með minnst fjögurra tíma fyrirvara. Á vef fyrirtækisins, www.straeto. is, er hægt að kynna sér tíma- áætlanir og hve mörg gjaldsvæði eru á milli staða. Þar er einnig að finna reiknivél til að reikna út verð á milli staða. Hagkvæmast er að kaupa farið á straeto.is en utan höfuðborgar- svæðisins er hægt að borga með debet- eða kreditkorti. Farmiðar verða seldir á völdum stöðum í þétt- býliskjörnum á svæðinu. Fargjaldið miðast við fjölda gjaldsvæða sem farið er yfir í hverri ferð. Staðgreiðsluverð er 350 krónur fyrir hvert gjaldsvæði. Ef greitt er með farmiðum þarf að nota jafn marga miða og fjöldi gjaldsvæða segir til um. Ef greitt er með farmiðum þarf að nota sex far- miða og þá kostar ferðin 2.000 kr. fyrir fullorðna (750 kr. fyrir ung- menni, 330 kr. fyrir börn og 690 kr. fyrir öryrkja og aldraða). Í upphafi verður akstri um Norður- og Norðausturland sinnt með langferðabílum frá Hópferða- bílum Akureyrar og verður þráð- laust net um borð í öllum vögnum. - sv Strætó bs. og Hópferðabílar Akureyrar sinna nýjum samgöngumáta á Norður- og Norðausturlandi: Í strætó frá Egilsstöðum til Akureyrar ALLIR MEÐ STRÆTÓ Strætó bs. hefur aukið umtalsvert við þjónustu sína á síðustu mánuðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jafnar sig á lungnabólgu 1SUÐUR-AFRÍKA Fyrrverandi forseti Suður-Afríku, Nelson Mandela, er á batavegi eftir veikindi undanfarnar vikur. Mandela var lagður inn á spítala í byrjun síðasta mánaðar en hann var þá með lungnabólgu. Að sögn Jacobs Zuma, forseta Suður-Afríku, verður Mandela hjúkrað heima þar til hann nær fullum bata. Líkti kjöti við bleikt slím 2 BRETLAND Sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver hefur verið kærður fyrir að hafa vinnuna af kjötiðnaðarmanninum Bruce Smith. Sá krefst sem svarar 8,8 milljónum króna í bætur. Smith starfaði áður hjá fyrirtækinu Beef Products en missti vinn- una í niðurskurði í kjölfar þess að Jamie Oliver fór í þætti sínum hörðum orðum um notkun kjötlíms í kjötiðnaði. Meðal annars kallaði hann efnið „bleikt slím“. Smith segir yfirvöld hafa samþykkt notkun á kjötlíminu og því hafi Oliver ekki mátt tala svona illa um það. Fórust í snjóflóði 3ÍTALÍA Tveir ítalskir skíðamenn fundust látnir eftir að snjóflóð féll í ítölsku Ölpunum í gær. Sex Rússar biðu bana á sama stað í fyrradag þegar snjóbíll þeirra hrapaði í fjallshlíð í Val di Fiemme. Skíðamennirnir voru að vinna við lögregluþjálfun þegar þeir urðu fyrir flóðinu. Einn látinn eftir skotárás 4 PAKISTAN Einn pakistanskur hermaður er látinn og annar alvarlega særður eftir að upp úr sauð á milli herja Pakistans og Indlands í Kashmir- héraði. Samkvæmt pakistönskum yfirvöldum hóf indverski herinn skothríð sem Pakistanar brugðust við en talsmaður indverska hersins segir pakistanska herinn hafa sýnt ógnandi tilburði. Indverski herinn skildi eftir vopn sín er hann hörfaði til baka. Kashmir-héraðið er í umsjón Pakistan þó að báðar þjóðir hafi viljað eigna sér það og erjur hafa staðið milli landanna í 60 ár. SÝRLAND, AP Sýrlandsforsetinn Bashar Assad var harðlega gagn- rýndur víða í gær eftir sjónvarps- ræðu sem hann hélt í Damaskus í gær. Assad hefur ekki talað opin- berlega um ástandið í landinu síðan í sumar. Assad hélt rúmlega klukku- stundar langa ræðu þar sem hann sagðist ekki ætla að segja af sér. Hann væri hins vegar reiðubúinn til viðræðna en aðeins við þá sem ekki hefðu „svikið Sýrland“. Hann sagði morðóða glæpamenn og öfgamenn standa á bak við upp- reisnina gegn honum. Assad sagðist reiðubúinn að halda sáttaráðstefnu, kosningar og láta semja nýja stjórnarskrá en krafðist þess að fyrst myndu önnur ríki hætta að styrkja upp- reisnarmenn. Að því loknu myndi stjórnar herinn hætta aðgerðum og hægt væri að ráðast í hinar aðgerðirnar. Hann sagðist aldrei hafa hafnað viðræðum og póli- tískri lausn. „En við hvern eigum við að tala? Við þá sem hafa öfga- kennda hugmyndafræði að leiðar- ljósi, sem aðeins skilja tungumál hryðjuverka? Eða eigum við að tala við strengjabrúður sem Vestur lönd komu með?,“ sagði hann. Þá sagði Assad Sýrlendinga berjast við utanaðkomandi öfl sem væru hættuleg. „Þetta er stríð milli þjóðarinnar og óvina hennar, milli fólksins og morð- óðu glæpamannanna,“ sagði hann. „Þetta er frábært frumkvæði en það vantar eitt grundvallar- atriði, afsögn hans,“ sagði Kamal Labwani, meðlimur Bandalags sýrlenskra stjórnarandstæðinga. „Allt sem hann leggur til mun gerast sjálfkrafa, en bara eftir að hann fer frá völdum.“ Þá sögðust stjórnarandstæð- ingar frá upphafi hafa lagt áherslu á pólitíska lausn á ástandinu. Nú væru sextíu þúsund manns fallnir og þær fórnir væru ekki til þess gerðar að styrkja for- setann í sessi. William Hague, utanríkis- ráðherra Bretlands, gagnrýndi ræðu Assads einnig. Hann sagði ræðuna „ótrúlega hræsnisfulla“ og að innantóm loforð um breyt- ingar blekktu engan. Utanríkis- ráðherrar Tyrklands og Þýska- lands tóku í sama streng. Yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu, Catherine Ashton, sagði ræðuna engu breyta um þá afstöðu sambandsins að Assad ætti að víkja. thorunn@frettabladid.is Hafna innantómum loforðum í Sýrlandi Uppreisnarmenn í Sýrlandi hafna sáttatillögum sem Bashar Assad, forseti landsins, lagði fram í gær. Utanríkisráðherrar Breta, Þjóðverja og Tyrkja tóku í sama streng. Assad sagðist ekki ætla að segja af sér og ekki ræða sátt við hryðjuverkamenn. ÁKVEÐINN Bashar Assad hélt ræðuna fyrir framan fullan sal af stuðningsmönnum sínum í óperuhúsinu í miðborg Damaskus í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 232,1886 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 129,33 129,95 207,32 208,32 168,27 169,21 22,558 22,690 23,066 23,202 19,723 19,839 1,4651 1,4737 197,20 198,38 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 04.01.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 1 2 3 Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Miðvikudagur Fremur hægur vindur en vaxandi um kvöldið V-lands. RIGNING gengur inn yfir suðvestanvert landið í kvöld og á morgun má búast við rigningu eða slyddu víða um land en snjókomu inn til landsins. Síðdegis á morgun léttir aftur til um tíma en á miðvikudagskvöld lítur út fyrir meiri úrkomu. 1° 3 m/s 1° 7 m/s 3° 6 m/s 6° 4 m/s Á morgun Strekkingur sums staðar um tíma. Gildistími korta er um hádegi 3° 0° 0° 0° -1° Alicante Aþena Basel 16° 10° 9° Berlín Billund Frankfurt 6° 5° 10° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 8° 4° 4° Las Palmas London Mallorca 21° 10° 17° New York Orlando Ósló 5° 21° 1° París San Francisco Stokkhólmur 9° 14° 0° 3° 2 m/s 5° 3 m/s 3° 5 m/s 2° 3 m/s 1° 1 m/s 1° 2 m/s -2° 5 m/s 3° 1° 5° 3° 2° 4

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.