Fréttablaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 07.01.2013, Blaðsíða 13
LÍFGAÐ UPP Á UMHVERFIÐ Nú þegar jólaskreytingar hafa verið teknar niður verður heimilið svolítið líflaust fyrst í stað. Þá er upplagt að fá sér afskorin blóm í vasa eða orkídeur til að lífga upp á umhverfið. Það minnir á að sólin hækkar á lofti og hægt er að hlakka til vorsins. VERKEFNASTJÓRAR Þær Unnur S. Gröndal og Ásdís Birgisdóttir halda utan um sam- vinnusýningu fagfélaga hönnuða á Hönnunar- Mars 2013. MYND/STEFÁN Katarina Siltavuori, verkefnastjóri World Design Capital Helsinki 2012 og eigandi Galleria Norsu í Finnlandi, verður listrænn stjórn- andi þverfaglegrar samvinnusýningar á Hönnunarmars 2013 sem fram fer dagana 14. til 17 mars. Unnur S. Gröndal keramikhönnuður og Ásdís Birgisdóttir textílhönnuður eru verkefnastjórar sýningarinnar en kveikjan að henni var samvinnusýningin Flétta sem Textíl- félagið og Leirlistafélagið stóðu fyrir á síðasta Hönnunarmars, þegar tólf verk- efni voru sýnd í Hafnarhúsinu. Tilgangur samvinnusýningarinnar er að opna ís- lenskt hönnunarsamfélag, segja verk- efnastjórar. „Flétta átti upphaflega að vera sam- vinnusýning þessara tveggja félaga en þegar leið á verkefnið var það opnað fleiri félögum. Í ár var ákveðið að opna sýninguna öllum fagfélögunum sem standa að Hönnunarmiðstöðinni, í þeim tilgangi að fá hönnuði til að vinna saman þverfaglega og kynnast,“ útskýrir Unnur. Hún segir feng að því að fá Katarinu til að velja verk inn á sýninguna því glöggt sé gests augað. „Katarina er reyndur sýningarstjóri og hefur yfirsýn yfir það sem er að gerast í hönnunarheiminum. Íslenskt hönnunar- samfélag hefur gott af því að fá einhvern utanaðkomandi aðila með þjálfað auga til að velja inn á sýningu,“ segir Unnur. Þátttakendur þurfa að vera skráðir í eitt af fagfélögunum níu sem eiga Hönn- unarmiðstöð Íslands og er skilyrði að tveir eða fleiri hönnuðir vinni saman að verkefni sem tengist þema Hönnunar- mars í ár, en það er töfrar eða galdrar. „Hönnuðir úr sama fagfélagi geta auð- vitað parað sig saman en við leggjum upp með að fólk kynnist þvert á fög,“ segir Unnur. Þeir hönnuðir sem hafa hug á að taka þátt þurfa að tilkynna um þátttöku fyrir 11. janúar næstkomandi og hinn 31. janúar á að skila inn verkefnum. Nánari upplýsingar er að finna á vef Hönnunar- miðstöðvar Íslands og á Facebook- síðunni Samvinnusýning hönnuða á Hönnunarmars. ■heida@365.is OPNA Á SAMSTARF MILLI HÖNNUÐA SAMVINNA Einn af viðburðum á HönnunarMars í vor verður samvinnusýning fagfélaga hönnuða. Tilgangurinn er að opna íslenskt hönnunarsamfélag. Verkefnastjóri World Design Capital Helsinki 2012 velur verkin.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.