Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2013, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 07.01.2013, Qupperneq 6
7. janúar 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 HEILBRIGÐISMÁL Könnun á meðal íslenskra lækna sem starfa í útlöndum leiðir í ljós að rúmur helmingur þeirra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort eða hvenær hann snýr aftur heim til Íslands. Sextán prósent aðspurðra segjast hafa tekið ákvörðun um að snúa ekki aftur heim. „Könnunin var gerð í gegn- um Facebook- hóp íslenskra lækna sem í dag telur 729 manns,“ segir Davíð B. Þóris- son, læknir í Lundi í Svíþjóð. „Fjöldi íslenskra lækna í dag er um 1.500 en erfitt er að segja nákvæmlega þar sem sumir hafa klárað læknanámið erlendis. Það má gera ráð fyrir að í Facebook- hópnum séu yngri læknar og því stór hluti þeirra sem eru nú erlendis í sérnámi eða hafa nýlega klárað.“ Könnunina segist Davíð hafa sett af stað til að fá einhverja til- finningu fyrir því hversu margir hygðust flytja til baka til Íslands og þá af hverju eða af hverju ekki. „Á átta dögum svöruðu 147 manns sem verður að teljast góð svörun,“ segir hann og telur að gera megi ráð fyrir að meirihluti lækna í Facebook-hópnum sem búsettir eru erlendis hafi tekið þátt. Læknarnir sem þátt tóku eru langflestir starfandi í Svíþjóð, 96 eða 65 prósent heildarinnar. Tuttugu starfa í Bandaríkjunum, þrettán í Noregi, níu í Danmörku, fjórir í Bretlandi og fimm á öðrum stöðum víðs vegar um heiminn. Langflestir, eða 87 prósent, luku læknanámi sínu á Íslandi, hinir 19 erlendis. Þá eru næstum níu af hverjum tíu í hópnum fjölskyldu- fólk. „Niðurstöðurnar endurspegla það sem við höfum lengi haft á til- finningunni, það er að óhugnan- lega fáir eru á leið til baka á næstu árum miðað við þörfina,“ segir hann. Þannig muni þeir 16 læknar sem ætla að snúa aftur heim á næstu tveimur árum og 47 á næstu 10 árum engan veginn duga til að standa undir endur- nýjun vegna þeirra sem hætta á sama tíma. „Þetta eru færri en ég hefði giskað á sjálfur og vísar á enn meiri læknaskort á næstu árum en er í dag. Á sama tíma lifir þjóðin lengur og lifir af sjúk- dóma með flóknum aðgerðum eða lyfjum.“ Hann segir því stefna í minna framboð lækna og aukna eftirspurn sjúklinga. Þá segir Davíð að komið hafi sér á óvart hversu margir, eða 52 prósent, séu óákveðnir. Það bendi til þess að allflesta langi aftur til Íslands á endanum, þar sem það sé jú heimalandið. Í svörum lækna í könnun Davíðs kemur enda fram að fjölskylda og vinir heima á Íslandi séu helsta Sextán prósent brottfluttra lækna snúa ekki aftur heim Ný könnun sýnir að á næstu 10 árum ætla bara 47 íslenskir læknar að snúa aftur til Íslands frá útlöndum. 52 prósent hafa ekki gert upp hug sinn. Þeir vilja bætt kjör og starfsaðstæður. Fjölskyldan dregur læknana heim. DAVÍÐ B. ÞÓRISSON BÚSETA ÍSLENSKRA LÆKNA ERLENDIS 100 806040200 Svíþjóð Noregur Danmörk Bretland Bandaríkin Önnur lönd 96 5 20 4 9 13 VIÐSKIPTI Icelandair hefur gengið frá kaupum á tveimur nýjum Boeing 757-200 flugvélum. Flug- vélarnar verða teknar í notkun í sumar en flugfélagið stefnir að því að nota þá átján flugvélar í stað sextán eins og síðasta sumar. „Við tilkynntum snemma í haust að við stefndum að því að auka sætaframboð um 15% miðað við árið 2012. Til að geta staðið við það þyrftum við að fjölga vélum um tvær. Síðan höfum við verið að skoða hvort það væri hagkvæmara að kaupa eða leigja nýjar flugvélar og þetta varð niðurstaðan,“ segir Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group. Icelandair kaupir vélarnar notaðar frá American Airlines en Boeing hætti framleiðslu á 757- 200 flugvélum árið 2004. Vélarnar tvær eru nú á leið í venjubundið innleiðingarferli sem felst meðal annars í því að skipta um sæti í þeim og setja upp skemmtikerfi. Kaupin á vélunum tveimur koma í kjölfar þess að Icelandair gekk í desember frá kaupum á tólf nýjum 737 MAX8 flugvélum frá Boeing sem stefnt er að því að bætist við flota félagsins árið 2018. Þær vélar eru minni og sparneytnari. - mþl Flugvélum í rekstri fjölgað úr sextán í átján næsta sumar: Icelandair kaupir tvær flugvélar 1. Hvaða frægi rappari klæddist bol með ljósmynd áhugaljósmyndarans Katrínar Bragadóttur? 2. Hver var áfangastaður farþegans sem gekk af göfl unum í fl ugvél Ice- landair á dögunum? 3. Með hvaða íslensku félögum spilaði handboltamaðurinn ástsæli Guðjón Valur Sigurðsson áður en hann hélt út í atvinnumennsku? 1. Kanye West 2. New York 3. Gróttu og KA 15% Icelandair tilkynnti um það snemma í haust að auka ætti sætaframboð félagsins um 15 prósent. NÁTTÚRAN Boranir vegna leitar að heitu vatni í Goðalandi í Fljótshlíð leiddu á dögunum af sér fund á gríðarlegu magni af köldu neyslu- vatni. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar stjóri í Rangárþingi eystra, segir í spjalli á vefsíðu Sunnlenska að sveitarfélagið komi vafalaust til með að nýta sér þetta kalda vatn. Að því er segir á síðunni fannst vatnið á 120 metra dýpi en ætlunin var að bora niður um 200 metra. Það gæti nú lengst í 250 metra verði hitabreytinga vart. - trs Fundu mikið af neysluvatni: Kalt í stað heits INDLAND, AP Mennirnir sem sakaðir eru um að nauðga og myrða 23 ára gamla stúlku á hrotta- fenginn hátt í strætisvagni á Indlandi verða leiddir fyrir dómara í dag. Eftir árásina köstuðu þeir henni og vini hennar á götuna. Lögreglan hefur kært fimm þeirra fyrir morð, nauðgun og aðra grimma glæpi gegn stúlkunni og vini hennar. Fyrir brotin gætu mennirnir átt dauðadóma yfir höfðum sér. Sjötti hrottinn er aðeins sautján ára gamall og verður leiddur fyrir unglingadómstól. Þar getur hann mest verið dæmdur til þriggja ára betrunarvistar. Saksóknarinn Rajiv Mohan sagði við fjölmiðla að dánarorsök stúlkunnar hefði verið blóðeitrun og bilun margra líffæra. Einnig hefði það verið sannað með DNA-rannsóknum að blóðið sem fannst á fötum allra ákærðu væri úr stúlkunni. Bróðir stúlkunnar segir að rekja megi dauða hennar til þess hversu langan tíma það tók að koma henni undir læknishendur. „Hún sagði mér að eftir árásina hefði hún árangurs laust beðið vegfarendur um hjálp. Það var ekki fyrr en umferðareftirlitið gerði lögregl- unni viðvart að hún fékk hjálp,“ sagði bróðirinn við indverska fjölmiðla. „Hún lá hjálparvana í tvær klukkustundir og hafði þá misst mikið blóð.“ Stúlkan lést fyrir rúmri viku en stjórnvöld hafa nú brugðist við stöðugum mótmælum á Indlandi í kjölfar árásarinnar þann 16. desember. - bþh Lá hjálparvana í tvær klukkustundir áður en hún komst undir læknishendur: Nauðgararnir leiddir fyrir rétt ÖRUGGARA SAMFÉLAG Ósk mótmælenda er fyrir því að gera indverskt samfélag öruggara. Stúlkum hefur meðal annars verið kennd sjálfsvarnartækni á götum stórborga Ind- lands. NORDICPHOTOS/AFP EYJAÁLFA Um eitt hundrað manns er saknað á eyjunni Tasmaníu í Ástralíu eftir að miklir skógar- eldar hafa staðið yfir síðustu daga. Áströlsk yfirvöld leita nú í nokkrum bæjum á eyjunni sem hafa gjöreyðilagst í eldunum. Þrjú þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín en forsætisráð- herra Ástralíu, Julia Gillard, sagði um helgina að yfirvöld myndu koma öllum sem misst hafa heim- ili sín til bjargar. Skógareldar eru algengir í Ástralíu á þessum tíma árs. Nú er hitastigið um 42 gráður sem er talið orsaka eldana. - áp Hundrað manns saknað: Eldar geisa í Tasmaníu ÞÚSUNDIR HEIMILISLAUSAR Miklir skógareldar í Tasmaníu hafa eyðilagt heilu hverfin. NORDICPHOTOS/AFP FASTEIGNAMARKAÐUR 397 samningar í desember Þinglýst var 397 kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í desember, að því er fram kemur á vef Þjóðskrár. Heildarvelta nam 13,4 milljörðum króna og meðalupphæð á samning var 33,8 milljónir króna. Miðað við desember 2011 fjölgaði kaupsamn- ingum um 6,4 prósent. ástæða þess að læknar vilji flytja aftur heim. Um leið letji aðbúnaður á Landspítala háskólasjúkrahúsi, laun sem ekki eru samkeppnis- hæf við það sem gerist í útlöndum, mikið vinnuálag á Land spítalanum og almennt efnahagsástand á Íslandi. Þá nefna sumir að lánakjör þurfi að lagast á Íslandi og verð- trygging að hverfa til að hægt sé með góðu móti að koma þaki yfir höfuðið við flutning aftur heim, og eignast það á endanum. Mann- sæmandi laun fyrir dagvinnu eru einnig krafa sem margir læknar gera áður en þeir vilja flytja aftur heim, hafandi kynnst slíku í störfum sínum erlendis. Sérfræðingur í Svíþjóð, sem ætlar að flytja heim innan tveggja ára, gefur sem ástæðu að elsta barnið nálgist táningsaldurinn, eða „point of no return“. Annar sér- fræðingur í Svíþjóð sem ætlar að flytja heim innan árs segist ætla að gera það þar sem maki hans fái ekki vinnu úti, annars hefðu þau verið áfram. Sá myndi vilja sjá mánaðarlaun lækna hækka þannig að þeir þyrftu ekki að vinna vakta- vinnu til að fá „mannsæmandi laun“. olikr@frettabladid.is STEFNA Á FLUTNING TIL ÍSLANDS? Innan eins árs Innan tveggja ára Innan fimm ára Innan tíu ára Hef ekki tekið ákvörðun Ætla ekki að flytja aft ur til Íslands 7 24 76 19 12 9 806040200 VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.