Fréttablaðið - 07.01.2013, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 7. janúar 2013 | SKOÐUN | 11
MORGUNVERÐARFUNDUR
Hver er
hinn íslenski
stjórnarmaður?
Kynning á niðurstöðum
könnunar meðal stjórnarmanna
9. janúar | kl. 9:00 | Borgartúni 27
Farið verður yfir helstu niðurstöður
könnunarinnar og í kjölfarið fara
fram pallborðs umræður um hvernig
viðskiptalífið geti nýtt sér þær.
Skráning og nánari upplýsingar
um fundinn og þátttakendur í
pallborði á kpmg.is
Kristín Þorsteinsdóttir, fyrr-
verandi fréttamaður, skrifaði
grein í Fréttablaðið um daginn
þar sem hún segir frá kynnum
sínum af Evu Joly og viðrar í
framhaldi af því þá skoðun að
grundvallarmunur sé á þeim
málum sem sérstakur saksókn-
ari rannsakar hér á landi og
þeim málum sem Eva rann-
sakaði í Frakklandi. Þar voru
glæpamenn og mafíósar að
verki. Og hér? Tja, eiginlega
allir („embættismenn, stjórn-
málamenn, blaðamenn, eftirlits-
menn, lífeyrissjóðir, litlir fjár-
festar og stórir fjárfestar“).
Fúsk annarra
Kristín lætur á sér skilja að það
fólk sem hér hafi verið valið
til rannsóknar hjá sérstökum
saksóknara, nánast af handa-
hófi, hafi upp til hópa verið
vel menntuð en afvegaleidd
ungmenni sem hafi gripið til
örþrifaráða við að bjarga verð-
mætum í ástandi sem skapaðist
af „fúski“ einhverra ótilgreindra
„annarra“. Kristín minnir á
múgæsinguna í Guðmundar-
og Geirfinnsmálunum á sínum
tíma þegar fjölmiðlar heimtuðu
mannblót og fólkið fékk sín
afvegaleiddu ungmenni, með
hjálp sérfræðings frá Evrópu,
og hún nefnir í sömu andrá Evu
Joly og hinn þýska Karl Schütz.
Skoðanir Kristínar eru á skjön
við ríkjandi hugmyndir um
ástæður hrunsins og nauðsyn-
legar aðgerðir til að framfylgja
lögum og rétti og skapa ein-
hvers konar hugmynd um sæmd
í íslensku viðskiptalífi þar sem
orðheldni, ráðdeildarsemi og
skilvísi þykja dyggðir fremur
en sviksemi, óráðsía og klæki-
skapur. Það vitnar um hugrekki
hjá Kristínu. Það er eitt einkenni
á heilbrigðu samfélagi að hægt
sé að viðra umdeild sjónarmið
án þess að eiga á hættu að fá yfir
sig gusur af því tagi sem „virkir
í athugasemdum“ senda frá sér í
þartilgerðum orðabúllum þegar
vænsta fólk umhverfist skyndi-
lega eins og virkir alkóhólistar
í bullandi neyslu, nema hér nær
hömluleysið til orðbragðs; það
er nefnilega hægt að vera ofæta
á orð líka og stunda orðasukk
jafnt sem annað sukk.
Það er mikilvægt að við
tökumst á um ólík sjónarmið. En
þar með er ekki endilega sagt að
sérstakur saksóknari eigi bara
að hætta þessu og veita sakar-
afskriftir á línuna, eins og skiln-
ingsríkur skilanefndarfursti.
Fráleitur samanburður
Kristín veitir sök á línuna;
leitast við að gera sökina svo
almenna að hún þurrkast eigin-
lega út. Vorum við ekki öll með
í þessu? Reyndar ekki. En vert
að muna að hér var um árabil
hægri stjórn sem trúði á undan-
bragðalausan óskeikulleika
markaðarins. Þegar við búum
til óðakapítalisma fáum við yfir
okkur óða kapítalista. Og eins og
Pálmi í Fons sagði í viðtali í DV:
„Við vorum eins og sjómenn í
Smugunni …“
En þeir fyrrum eigendur
banka og stórfyrirtækja sem
til rannsóknar eru nú voru
hvað sem því líður ekki afvega-
leidd ungmenni af því tagi
sem Kristín Þorsteinsdóttir
rifjar upp, með óbragð í munni.
Sævar Ciesielski fékk aldrei
neitt afskrifað á sinni erfiðu
ævi heldur allt margfaldlega í
hausinn aftur. Tryggvi Rúnar
Leifsson kom engum fjár munum
undan til aflandseyja og lifði
ekki í vellystingum praktuglega
meðan hann beið rannsóknar
heldur mátti dúsa í eilífu gæslu-
varðhaldi. Erla Bolladóttir gat
ekki tafið mál árum saman með
fulltingi færustu lögmanna með
milljón á tímann – barn var tekið
af henni. Þetta voru smælingjar
sem voru látnir bera syndir sam-
félagsins á sínum mjóu herðum
og það er óboðlegt að tala í sömu
andrá um þungbært hlutskipti
þeirra og svo aftur rannsóknir
sérstaks saksóknara á fjárdrætti
hástéttarmanna og misnotkun á
eignarhaldi á heilu bönkunum.
Þessir krakkar voru sakaðir
um glæp sem aldrei sást fram-
inn, lík fundust ekki, morðvopn,
tengsl við þá horfnu, ástæða;
ekkert. Landsbankinn og Glitnir,
Kaupþing, Milestone, Gift, Sjóvá,
Bakkavör, Fons, Samskip, Baug-
ur, World Class, Pelsinn, FL-Gro-
up … allt eru þetta raunveruleg
fyrirtæki þar sem raunveruleg-
ir gerningar áttu sér stað – og
gervifyrir tækin voru meira að
segja líka til.
Málin sem til rannsóknar
eru hjá sérstökum saksóknara
kunna að vera vakin af „oflæti“
íslensku þjóðarinnar en þau snú-
ast ekki um það heldur meint
lögbrot. Málin snúast ekki um
blóðþorsta almennings eða fjöl-
miðla, væntanlegt „fúsk“ sér-
staks saksóknara eða skapferli
dómara (dómari í Vafningsmáli
var kallaður „hinn grimmi“
í fréttatíma Stöðvar tvö á
dögunum, eftir að fallið hafði
afar mildur dómur þar) – heldur
um þetta: meint lögbrot. Því
fyrr sem hægt er að ljúka þeim
málum sem til rannsóknar eru
þeim mun hraðar er hægt að
hreinsa andrúmsloftið í samfé-
laginu. Það verður ekki hreinsað
með gleymsku eða sakaraf-
skriftum. Mannorð verður ekki
endurheimt með afskriftum.
Meint lögbrot tiltekinna aðila:
Menn eru til rannsóknar fyrir
stórfelld fjársvik. Við sögu koma
upphæðir sem enginn skilur og
fjármálagerningar sem virðist
þurfa sérfræðinga í skammta-
fræði til að rýna í. Þessir menn
starfa margir enn í viðskipta-
lífinu eins og ekkert hafi í
skorist með nýja kennitölu, hafa
á sínum snærum dýrustu mál-
þófsmenn landsins við að þæfa
málin enn í þeirri von að þau
gleymist, gufi upp, lognist út af
í þófinu. Við lesum um afskriftir
sem ná til tunglsins og aftur til
baka. Slíkar eru upphæðirnar
og slíkar voru aðfarirnar í allri
þessari miklu fjármálaleikja-
fræði sem til rannsóknar er –
slík var hugkvæmnin – að um
það bil síðasta orðið sem hægt er
að nota um það er orðið „fúsk“.
Slíkur var skaðinn fyrir íslensk
heimili, íslenskt orðspor, íslenskt
þjóðarbú, íslenska sjálfsmynd,
að sú tilhugsun er nánast óbæri-
leg að komið verði í veg fyrir
eðlilegan framgang réttvísinnar
með málþófi og sakarafskriftum.
Sakarafskriftir
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Menn eru til rann-
sóknar fyrir stórfelld
fjársvik. Við sögu koma
upphæðir sem enginn skilur
og fjármálagerningar sem
virðist þurfa sérfræðinga í
skammtafræði til að rýna í.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3