Fjarðarpósturinn - 05.05.1988, Síða 1
^LIS
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
FJflRDflR
pi istur/ft i
16.TBL. 1988-6. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ
VERÐ KRÓNUR 50,-
4LIS
IIbIh#
FERÐASKRIFSTOFA
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími652266
Tjón vegna mælingamistaka
upp á hundruð þúsunda króna
- „Annað stærsta slys hjá bænum síðastli&in 20 ár,“ segir bæjaivetkfræðingur
ES
kjarabót“
Tveggja til þriggja vikna smíða-
vinna við uppslátt og 15 rúmmetr-
ar af steypu fóru fyrir lítið hjá
Byggðavcrki hf., þegar það upp-
götvaðist aðeins einni klukku-
stundu fyrir miklar fyrirhugaðar
steypuframkvæmdir sl. föstudag,
að staðsetning sambýlishússins að
Suðurhvammi 5-9, var vitlaust
útreiknuð. Mistökin lágu í því, að
húsið stóð fjórum til fimm metr-
um lengra til suðurs en skipulagið
gerði ráð fyrir. Tjónið skrifast á
reikning bæjarfélagsins, sem sá
um mælingarnar, og nemur það
hundruðum þúsunda króna, ef
ekki milljón.
„Þetta er annað stærsta slys hjá
bænum síðastliðin tuttugu ár“,
sagði Björn Árnason, bæjarverkf-
ræðingur, er Fjarðarpósturinn
spurði hann álits. „Þetta eru
mannleg mistök sem bærinn verð-
ur að standa skil á.“ Hann kvað
tjónið nema hundruðum þúsunda
króna, en sagðist vonast til að það
næði ekki milljón.
Óskar Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Byggðaverks, sagði
að búið hefði verið að slá upp fyrir
stöplum hússins, en sem betur fer
hefði aðeins verið búið að steypa
um 15 rúmmetra. Hann sagði enn-
fremur, að ekki hefði verið um
annað að ræða en rífa niður upp-
sláttinn, senda ýtu á steyptu stöpl-
ana og hefjast handa að nýju.
Hann sagði síðan: „Þetta eru
mannleg mistök sem alltaf geta
gerst. Þetta hefði orðið enn verra,
ef við hefðum verið búnir að
steypa allt það sem var búið að slá
upp fyrir. Við tökum þessu með
jafnaðargeði og byrjun upp á
nýtt“.
Aðspurður sagði Óskar, að
þetta þýddi tveggja til þriggja
vikna töf á framkvæmdum, en það
ætti ekki að koma niður á afhend-
ingartíma íbúðanna. „Við ráðum
bara fleiri menn og setjum meiri
hraða í framkvæmdir".
Það var dauft hljóðið í húsasmiðum Byggðaverks, enda nýbúnir að rífa niður tveggja tilþriggja vikna vinnu
sína, þegar þessi mynd var tekin. Ýta varsíðan send á vettvangi til að jafna endanlega við jörðu steyptu stöpl-
■ segir Grótar Þorieifsson
Samningar náðust í fyrsta
sinn í gær á milli þriggja
verkalýðsfélaga og bæjaryfir-
valda. Samningarnir eru á
svipuðum grundvelli og
Akureyrarsamningar sveitar-
félaganna. Félögin sem
standa að honum eru Verka-
mannafélagið Hlíf, Félag
járniðnaðarmanna og Félag
byggingariðnaðarmanna.
Lágmarkslaun samkvæmt
samningnum verða kr. 37.407
kr. Um 60 félagsmenn falla
undir þennan samning.
Samningarnir verða lagðir
fyrir bæjarráð í dag og fyrir
félagsfundi félaganna þriggja
á næstunni. Þetta er fyrsti
samningurinn sem gerður er
sameiginlega við þessi þrjú
félög og gildistími er frá 1.
maí til 20. apríl. Að sögn
Grétars Þorleifssonar for-
manns fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna er kjarabót
samninganna viktuð til þess
að vera ívið meiri en í Akur-
eyrarsamningunum.
Etw árangurslaus samnmgafundur
Framtíðarinnar og bæjaryfirvatda
Enn slitnaði upp úr samn-
ingaviðræðum milli Verka-
kvennafélagsins Framtíðinnar
og bæjaryfirvalda í gær. Situr
aUt fast varðandi gildistíma
nýrra kjarasamninga. Bærinn
býður gildistíma frá 1. mars sl.
í stað 1. maí, en konurnar
standa fast á því að fá gildis-
tímann frá 1. janúar sl.
Samningafundurinn stóð frá kl.
16.30 í gær fram á sjöunda tímann
og voru konurnar óbifandi frá
kröfu sinni, en þær byggja hana á
gildistíma samninga Verka-
kvennafélagsins Sóknar í Reykja-
vík.
Framtíðar-konur hafa, sam-
kvæmt tilmælum frá félagi sínu,
neitað að taka aukavaktir á vinnu-
stöðum, enda eru þær frjálsar að
því að hafna þeim hver og ein.
Hefur þetta leitt til vandræða-
ástands á Sólvangi, þar sem mikið
hefur mætt á starfskonur varðandi
aukavaktir vegna starfsmanna-
eklu.