Fjarðarpósturinn - 08.09.1988, Qupperneq 7
*n> ^Zurnó
C08756744 Wmmáúndraf Á
m
m vikunnar
Tryggvi Harðarson. Bjarnfríður Sigurðardóttir.
Hnífjafnt og bæði stóðu þau á heilum tug í vinningstölum. Tryggvi
Harðar fékk réttu töluna 20, en Bjarnfríður 30.
Ur vanda var að ráða, þegar stjórnendur lottósins gerðust ákveðnir
í að færa leikinn nær þeim ameríska og fjölga tölunum upp í 38. Mögu-
leikunum á því að hljóta fimm rétta fjölgar með því um nokkrar mill-
jónir, en við ákváðum samt að halda okkur við sjö tölur, enda vinnings-
tölurnar ennþá aðeins fimm.
Bjarnfríður lét allar breytingar lönd og leið og sagðist vilja halda sig
við sömu tölurnar, en þær eru: 2-4-11-17-21-25-30. Tryggvi hugsaði
sig aftur á móti lengi um, enda búinn að vera lengi í leiknum og eflaust
fáar tölur, fram að 32, sem hann hefur ekki þegar nefnt. Óþarfi að nýta
ekki þær nýju, hefur hann eflaust hugsað. Nýju tölurnar hans eru því:
1-2-7-13-19-30-36.
Þá er bara að bíða og sjá. Eflaust eru fleiri en við, sem bíðum spennt
eftir að sjá hvort hreyfing verður á nýju kúlunum í loftstreyminu.
Listasmiðjan í Hafnarfjörð:
Draumastaður keramikunnenda
Listasmiðjan hennar Maríu
Gröndal er flutt í Hafnarfjörð,
nánar tiltekið að Norðurbraut 41,
en hún var upphaflega stofnuð á
Hvolsvelli árið 1984. Þáttaskil
verða við flutninginn, því öll að-
staða verður hin fullkomnasta og
námskeiðahald í keramik vinnu og
öðru sem því tengist fyrirhuguð
strax á vetri komanda.
Keramikvinna er mjög vinsæl
tómstundaiðja í öllum aldurs-
flokkum. í stuttu spjalli við Fjarð-
arpóstinn við opnun Listasmiðj-
unnar um síðustu helgi, sagði
María, að hún ætlaði sér að þjóna
viðskiptavinum sínum sem best
með allt það sem varðar keramik.
Hún hefur byggt upp stóran lager
og eiga keramikunnendur að geta
leitað þangað eftir öllu því sem þá
vanhagar um. Einnig tekur María
hluti í brennslu og leiðbeinir.
María hefur kennararéttindi frá
Duncan verksmiðjunum í Banda-
ríkjunum. Þá hefur hún sótt
námskeið víða um heim í faginu.
Námskeið í Listasmiðjunni verða
auglýst sérstaklega síðar, en ein-
nig má fá allar upplýsingar í
smiðjunni sjálfri.
María Gröndal ásamt eiginmanni sínum, Herði Helgasyni, í verslun Listasmiðjunnar á opnunardaginn.
KOMPAN:
BREYTTUR
OPNUNARTÍMI
Frá og með 1. september verða verslanir
okkar opnar sem hér segir:
Mánudagatilföstudaga kl. 9-20
Laugardagaogsunnudaga kl. 10-20
Mwlla Ám<uhiaun
Álfaskeið 115 - Sími 52624 Arnarhrauni 21 - Sími 52000
RÁÐSTEFNA UM
UMHVERFISMÁL
Nefndarmenn fegrunarnefndar
Hafnarfjarðar hafa fengið farar-
leyfi á ráðstefnu um umhverfis-
mál, sem haldin verður á Akur-
eyri síðar í þessum mánuði. Enn-
fremur samþykkti bæjarráð að
garðyrkjustjóri bæjarins fari á
ráðstefnuna.
LAUSNFRÁ
FORÐAGÆSLU
Emil Hallfreðsson hefur fengið
lausn frá störfum við forðagæslu
hjá bænum, að hans eigin ósk.
VERKAMANNA-
SKÝLIÐ RIFIÐ
Verkamannafélagið Hlíf hefur
kvartað yfir lélegum aðbúnaði
skjólstæðinga sinna í Verka-
mannaskýlinu, sem Skipa- og tog-
araafgreiðslan býður starfsmönn-
um sínum upp á.
Bæjarráð fékk afrit af bréfi
Hlífar og vísaði málinu til hafnar-
stjórnar með þeim tilmælum, að
skýli þetta verði rifið.
BLÓMASÖLU
HAFNAÐ
Kristinn Bjarnason, Austur-
götu 22, hefur óskað eftir að fá að
staðsetja um tíu fermetra sölu-
skúr þar sem Bolla var áður við
Strandgötuna. Hugðist hann selja
þar þurrkuð blóm o.fl. Bæjarráð
hafnaði umsókninni vegna slæmr-
ar staðsetningar.
ERFÐAFESTU-
LANDTILSÖLU
Stefán Már Stefánsson hefur
boðið Hafnarfjarðarbæ forkaups-
rétt að erfðafestulandi nr. 960 við
Kaldárselsveg. Bæjarstjóra hefur
verið falið að ræða við bréfritara.
GREINARGERÐ UM
DAGVISTARMÁL
Enn eru dagvistarmálin eitt
stærsta vandamálið í plöggum
bæjaryfirvalda. Á síðasta bæjar-
ráðsfundi lagði aðstoðarfélags-
málastjóri fram tillögu að lausn
vandans og gerði þar grein fyrir
stöðu mála. Bæjarráð fól aðstoð-
arfélagsmálastjóra að vinna enn
frekar að tillögum um lausnir.
Vandinn er eins og komið hefur
fram í Fjarðarpóstinum fyrst og
fremst fólginn í gífurlegri vöntun
á hvers konar dagvistunarpláss-
um, auk hinna sívaxandi erfið-
leika við að manna stofnanir
bæjar.ns.
SKÓLAVÖRURNAR
OKKIJR^
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS
Strandgötu 31 - Sími 50045
Útboð-
Setbergsskóli
Hafnarfjaröarbær leitar tilboöa í byggingu fyrri
áfanga Setbergsskóla. Byggingin er á tveimur
hæöum, alls um 2100 fm. Grunnur verður
tilbúinn tii uppsláttar um miöjan sept. en skila
á húsinu fullbúnu 15. júlí 1989.
Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6, gegn
30.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuö á
sama staö þriðjudaginn 13. sept. kl. 11.00.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR
7