Fjarðarpósturinn - 23.11.1988, Side 4
FJflRMR
Döstunnn
"RrrSTUÓRIOGÁBMrrFRt^APROPPÉ-
AUGLÝSINGAR: HJÖRDÍS ÞORSTEINSDÓTTIR
DREIFING: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR: FJARÐARPÓSTURINN OG RÓBERT ÁGÚSTSSON
SETNING, UMBROT, FILMUVINNA OG PRENTUN: BORGARPRENT
ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ REYKJAVÍKURVEGI 72 OG ER OPIN ALLA VIRKA
DAGA FRÁ KL. 10-17. SlMAR 651745 OG 651945 (SÍMSVARI EFTIR LOKUN SKRIFSTOFU).
Framganga stjórnmálaforingjanna, sem heimsóttu flokks-
þing hvors annars um helgina, vakti blendnar tilfinningar hjá
mörgum Framsóknarmanninum og Kratanum, sem sátu
þingin. Skiljanlega hefur mörgum orðið um og ó, enda menn
alls óvanir slíkum pólitískum „atiotum" fyrir allra augum.
Hjá almenningi vöktu frásagnir Ijósvakamiðlana af heims-
óknunum helst hlátur. Steingrímur virtist líta á það sem sitt
hlutverk á flokksþingi Krata, að fullvissa menn þar á bæ um, að
flokksformaður þeirra, Jón Baldvin, væri góður drengur og
heiðarlegur. Hann sagði einnig, að hann hefði margsinnis ver-
ið varaður við honum, en það hefði sýnt sig að Jón Baldvin var
góður drengur og grandvar. - Skiljanlega er Steingrímur
ánægður með Jón, því það er honum að þakka að Steingrímur
er orðinn forsætisráðherra á ný. En þurfti Steingrím til að full-
vissa Krata um heiðarleika eigin foringja?
Jón Baldvin var boðinn velkominn í Framsókna' sið, en
enga fékk hann þó skófluna til að moka þar út, eins og mörgum
fannst að hefði verið við hæfi. Þess í stað fékk hann glös,
merkt Framsóknarflokknum, og tiltók formaður Framsóknar,
að það mætti drekka annað en mjólk úr þeim,- Kannski má
nota þau til að ausa flórinn, Jón ætti að hafa það í huga.
Steingrímur hefur eflaust viljað fullvissa Jón Baldvin um það
með gjöfinni, að hann yrði duglegri en Þorsteinn Pálsson að
bjóða til fagnaða þar sem tíðkast notkun glasa undir sterkara
en mjólk. -
Það þekkja velflestir dæmi þess, að þegar fólk dregur sig
saman tíðkast blíðyrði og gjafir. Það fór ekki fram hjá neinum,
að einhvers konar samdráttur var á ferðinni á milli flokkanna,
a.m.k. flokksforingjanna um helgina. Þessu til staðfestingar
afhenti Jón Baldvin Steingrími nýútkomna bók Bryndísar.
Samkvæmt auglýsingum og fréttum fjallar Bryndís í bókinni
nákvæmlega um reynsluna af því að umgangast Jón Baldvin
í áranna rás. Jón tók einnig skýrt fram, að framan á bókinni
hefði átt að standa: „Pólitísk ástarsaga". Það hefði því miður
ekki þótt við hæfi og því verið strikað út á síðustu stundu.
Steingrímur ætti að verða nokkru fróðari um hvernig halda á
Jóni Baldvini á mottunni á næstunni. Hann getur lesið bókina
góðu og látið reynslu Þorsteins af því að kjósa fremur sam-
neyti við Ingibjörgu en glasaglamur með Jóni, sér að kenningu
verða.
í hreinskilni sagt, þá var þessi uppákoma grátlega spaugi-
leg, reyndar eins og einn viðmælandi Fjarðarpóstsins orðaði
það: „eins og þáttur í grímyndaflokknum Löðri“, sem margir
gátu hlegið að hér um árið. Þeim, sem ekki gátu um stund
gleymt nýgefnum yfirlýsingum forsætisráðherra um að þjóðin
væri hreint á vonarvöl og hér allt að fara á hausinn, var þó alls
ekki hlátur í huga. - Vonandi veit þetta þó á góða og gjöfula
sambúð samlyndra flokksforingja.
4
Ádöffinni hjá Hafciaiborg:
Sýning Halldórs Áma Sveinssonar útvarpsstjóra er enn í litla
salnum, en hún var framlengd til sunnudagsins 27. nóvember vegna
fjöldaáskorana. Hún eropin daglegafrákl. 14til22. Velflest verkanna
á sýningunni em þegar seld.
í aðalsal hanga uppi málverk í eigu stofnunarinnar.
Sýning á verkum frú Hönnu Davíðsson verður opnuð þann 3. des-
ember n.k. Sýningin verður haldin af fjölskyldu og vinum listakonunn-
ar í tilefni af aldarafmæli hennar.
Frú Hanna Davíðsson lét eftir sig fjölbreytt málverkasafn. Af verk-
um hennar má sérstaklega tiltaka skírnarfontinn og altaristöfluna í
Fríkirkjunni. Sú sýning mun standa yfir í viku.
gerð nánari skil, þegar sýningin opnar.
HúsfyllirvarhjáSálar
rannsóknafélaginu
Frá fundinum 10. nóvember sl., en þá urðu margirfrá að hverfa.
Húsfyllir var á fundi Sálarrann- Næsti fundur félagsins verður
sóknafélagsins í Góðtemplara- fimmtudaginn 8. desember n.k. á
húsinu 10. nóvember sl. og urðu sama stað og hefst hann kl. 20.30.
margir frá að h verfa. Ungur miðill Á dagskrá er m. a., að séra Sigurð-
úr Reykjavík, Þórhallur Guð- ur Haukur Guðjónsson, flytur
mundsson, flutti þar skyggnilýs- jólahugvekju og Konráð Bjarna-
ingar. son segir frá Strandakirkju.
Kiwanismót í
handknattleik
Guðmundur Jónsson. Ragnar Jónsson.
Guðmundur Jónsson telur augsýnilega, að sígandi lukka sé best, því
í síðasta lottói hafði hann einni betur en fyrst, þ.e. eina rétta, og sigraði
með því Steingrim í Steinmark, sem hafði enga rétta.
Steingrímur tók tapinu létt og virtist, eins og margir áður, harla feg-
inn að losna frá spennunni. Hann tilnefndi reynar mikinn keppnis-
mann og FH-ing í sinn stað, eða Ragnar Jónsson. Ragnar hafði fyrst á
orði að þarna væri Steingrímur að gera sér óleik. Síðan tók keppnis-
skapið við og hann mætti vígreifur með sjö tölur á ritstjórnarskrifstofu
Fjarðarpóstsins í gær. Tölurnar hans eru, allar út í loftið, að eigin sögn:
4-9-13-18-23-27-29.
Guðmundur tók sér tíma til að hugsa málið. Hann mætti síðan á
staðnum með lottómiða, sem hann hafði látið tölvuna velja númerin á.
Hann valdi eina röðina og síðan tvær tölur úr annarri. Hans tölur eru
því: 3-9-10-16-21-22-38.
Nú er að sjá hvað setur. Nýjar tölur, nýir menn og aðeins ein tala sú
sama hjá þeim, þ.e. talan 9.
Sjoppurígmnnskólunum
Heilbrigðisráð fjallaði um „sjoppurekstur" í grunnskólum á
fundi nýverið. Lagður var fram til kynningar listi yfir neysluvörur,
sem hafðar eru á boðstólum í einum grunnskólanum. Var sú sam-
þykkt gerð, að fela starfsfólki skólaheislugæslunnar að reyna að
hafa áhrif á, að á boðstólum verði holl og næringarík fæða og syk-
urskertir drykkir.
Fólk óskast til starfa
Fólk óskast til starfa viö snyrtingu og pökkun.
Upplýsingar í síma 53366.
Hvaleyri hf. Hafnarfirði
Kiwanisklúbburinn Eldborg í
Hafnarfirði og handknattleiks-
deild Hauka efna nú í annað sinn
til handknattleiksmóts fyrir
yngstu kynslóð handknattleiks-
fólks, 6. fl. karla og 5. fl. kvenna.
Mótið fer fram dagana 15. til 18.
desember n.k. og verður leikið í
Iþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði.
Veitt verða gull-, silfur- og
bronsverðlaun og sigurvegarar í
hvorum flokki fyrir sig fá bikara til
eignar. í fyrra sigraði HK í stráka-
flokknum en Grótta í stelpu-
flokki. Þá verða ávaxtadrykkir,
samlokur og kaffiveitingar á boð-
stólum fyrir keppendur og starfs-
fólk.
Tilkynna þarf þátttöku til Her-
manns Þórðarsonar í pósthólf
196, 222 Hafnarfirði, fyrir 1. des-
ember.
Hverjum O.
bjargar það afi
næst^*
Bflastöð Hafnaifjarðar
Hafnfirðingar
Garðbæingar
Álftnesingar
★ Erum með bfla í Hafnarfirði og Garðabæ.
★ Erum með bfla á öllu Reykjavíkursvæðinu.
★ Innanbæjargjöld á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu.
★ Áratuga þjónusta við Hafnarfjörð, Garðabæ
og Álftanes.
★ Verslið við eigin bflastöð sem er opin allan
sólarhringinn. Símar: 51666 og 50888.
Aðventudægradvöl:
Jólafönduibókm
Út er komin Jólaföndurbók,
sem í eru hátt í eitt hundrað
uppskriftir og snið af skemmtilegu
jólaföndrí fyrir heimilið með jafn-
mörgum Utmyndum.
Höfundur föndursins er Karól-
ína M. Jónsdóttir handmennta-
kennari við Hagaskóla, en bókin
er alíslensk.
Föndurbókin er upplögð til
nota við jólaföndrið segir í frétta-
tilkynningu, og er bókin ómiss-
andi þegar fjölskyldan sest niður
við að undirbúa jólahátíðina.
Jólaföndurbókin fæst í bóka-
búðum bæjarins og í Hannyrða-
búðinni við Strandgötu 11. Útgef-
andi er Kiljuforlagið.
+ 1 VÍÐISTAÐAKIRKJA
■JmiiÍnrklPl
Kirkjuskólinn á laugardag kl. . 11.
Hátíðarguðsþjónusta í Hrafnistu kl. 11 á sunnu-
dag og hátíðarguðsþjónusta í Víðistðakirkju kl. 14.
Aðventukvöld í kirkjunni kl. 20.30. Ræðumaður
kvöldsins verður Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra. Kór Víðistaðakirkju syngur svo og
barnakór. Lúsíur koma í heimsókn og börn flytja
helgileik. Fjölbreyttur söngur og hljóðfæraleikur.
Aðventukaffi Systrafélagsins verður að lokinni
guðsþjónustu í kirkjunni og að loknu aðventu-
kvöldi.
Jólabasar Systrafélagsins verður í kirkjunni ki. 15
á sunnudag þar sem verður Qöldi eigulegra muna til
sölu, ásamt hinu vinsæla laufabrauði.
SIGURÐUR HELGIGUÐMUNDSSON
Áfjcetu Hafiifirðingar!
Strandcjatan fiejwr kíczðst nýjum búningi
og íáðin tiC okkar er gráðfczr á ný.
Við bjóðum jóig vákominn tiíokkar á (áð
fóinni um Scánn
lónaöarbankinn
-rnPim Imm/q
Strandgötu 1 - Sími 50980 Hafnarfirði
5