Fjarðarpósturinn - 11.10.1990, Blaðsíða 1
FJflRÐflR
^^Mpöstutmn
m m ■■ ii ■■ ■ f iÍl r Eja
BONUS
býéuv beiUÝ
Fjársvikamál starfsmanns upplýst á einum fjölmenriasta fundi sem haldinn hefur verii í Framtíóinni:
23.TBL. 1990-8. ÁRG.
FIMMTUDAGINN 11. OKT.
VERÐ KR. 70,-
Dró sér 8,2 millj. - Endurgreiddi
meö íbúð, bfl, innbúi og minkapelsi
„Bætir engan aö fara í tugthús", segja stjómaikonur, sem ákváöu ai kæra ekki þjófnaðinn
Á einum fjölmennasta félagsfundi, sem haldinn hefur verið í Verka-
kvennafélaginu Framtíðinni, og boðað var tii í Skútunni í gærkvöldi,
upplýsti stjórn félagsins, endurskoðendur og lögmenn, þær 272 félags-
konur sem sátu fundinn um fjárdrátt fyrrum starfsmanns félagsins,
Klöru Sigurðardóttur. Hún dró sér á rúmlega einu og hálfí ári 8,2 millj.
kr. Tclur stjóm félagsins að stjóminni hafi tekist að leiða málið til lykta og
ná inn andvirði þessara fjármuna. Stjórnarkonur eru einnig sammála
um að kæra ekki þjófnaðinn fyrir lögreglu, þó full játning liggi fyrir.
Stjórnarkonur tóku þá fram eftir fundinn, að ekki þryfti að berast
nema ein ósk frá félagskonum þessa efnis, til þess að málið yrði kært.
Aðspurð af félagskonu á fundinum í gærkvöldi, sagði Guðríður Elías-
dóttir, formaður félagsins, að sér dytti ekki í hug að segja af sér vegna
máls þessa. Félagskonur gætu fellt sig og stjórn sína á komandi aðal-
fundi. Þetta mál væri að hennar mati að fullu frágengið og án saka af
hálfu stjórnar.
Fréttamönnum var meinaður
aðgangur að fundinum, en tíð-
indamaður Fjarðarpóstsins ræddi
í lok hans við stjórnarkonur á
fundarstað. Þær sögðu að Klara
hefði tæmt sjúkrasjóð félagsins og
látið greipar sópa um aðra sjóði.
Þá hefði hún náð andvirði
skuldabréfs og komist í fjárreiður
dagheimilis félagsins. Samtals dró
hún sér kr. 8.241.688. Aðspurðar
um, hvort það flokkaðist ekki
undir slæmt fordæmi fyrir verka-
lýðshreyfinguna í heild, að kæra
ekki svo stóran þjófnað sögðu
þær: „Það bætir engan að fara í
tugthús", og bættu því við að per-
sónulega hefur þær hver og ein
ákveðið að kæra ekki með tilliti til
fjölskyldu Klöru. Málið verður þó
kært til lögreglunnar, ef einhver
félagskvenna fer fram á það. Því
var beint til þeirra á fundinum að
snúa sér til lögmanns félagsins
þess vegna, ef þær æsktu. Lög-
maður félagsins er Arnmundur
Bachman.
.Stjórnin sagðist telja sig hafa
náð inn andvirði ránsfengsins.
Meðal þess er blokkaríbúð, nýr
bíll, sem þegar hefur verið seldur,
hluti innbús og minkapels, metinn
Tvær konur hafa
lýst framboðum
Tvær hafnfirskar konur lýstu inu, en nafn hans hefur veríð
því yfir á trúnaðarfundi í Sjálf- nefnt í því sambandi.
stæðisflokknum á þríðjudag, að Það eru þær Kolbrún Jónsdótt-
þær ætluðu að taka þátt í próf- ir, framkvæmdastjóri, og Lovísa
kjöri Sjálfstæðisflokksins 10. nóv- Christiansen, innanhússarkitekt,
ember n.k. Þá lýsti Jóhann G. sem ætla að gefa kost á sér.
Bergþórsson þvíyfir, að hann ætl- Fjarðarpóstinum er kunnugt
aði ekki að taka þátt í prófkjör- Um, aða.m.k. einn Hafnfirðingur
á kr. 300 þús. íbúðin og innbúið
hefur ekki verið selt, en þær telja
sig geta ráðið við fjárreiður félags-
ins, a.m.k. tímabundið. Það auð-
veldaði uppgjör málsins, að Klara
hafði ekki eyðilagt nein skjöl sem
tengdust fjárdrættinum.
Samkvæmt heimildum Fjarðar-
póstsins var mikill kurr í mörgum
félagskvenna á fundinum. Það
mun t.d. hafa komið margri félags-
konunni í opnu skjöldu, að frétta,
að mánaðarlaun Klöru hjá Fram-
tíðinni námuu.þ.b. 90 þús. kr. Að
beiðni formanns fóru ekki fram
neinar atkvæðagreiðslu um málið.
' Stjórn félagsins í lok fundarins í gœrkvöldi: Guðríður Elíasdóttir, for-
maður, lengst til hœgri. Henni á hœgri hönd Þorbjörg Samúelsdóttir,
varaformaður, þá Kristín Þórðardóttir, meðstjórnandi og Helga Guð-
jónsdóttir, gjaldkeri. Lengst til vinstri er Guðrún Guðmundsdóttir, rit-
Kolbrún Lovísa
enn, Árni M. Mathiesen, dýra-
læknir, hyggist gefa kost á sér. í
viðtali við Fjarðarpóstinn í gær
sagðist hann enn vera að hugsa
málið. Framboðsfrestur til þátt-
töku í prófkjörinu rennur út 15.
október n.k.
Framboðsraunir Aiþýðubandalags:
Ef Geir hættir, þá
kemurOlafurRagnar
Ef Alþýðubandalagsmönn-
um tekst ekki að fá hinn óum-
deilda og vinsæla þingmann
Hafnfirðinga, Geir Gunnars-
son, til að halda áfram, mun
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður fiokksins gera kröfu til
þingsætisins. Geir kýs, sam-
kvæmt heimildum blaðsins, að
hætta. Alþýðubandalagið í
Firðinum ætlar þá að krefjast
„galopins“ prófskjörs í kjör-
dæminu, þannig að formannin-
um verði ekki fært þingsæti á
silfurfati, svo notuð séu þeirra
eigin orð.
Geir hefur setið á þingi í rúm
30 ár. í viðtali við Fjarðarpóst-
inn, sagðist hann tilkynna kjör-
dæmisráði flokksins á fundi um
mánaðarmótin, hvað hann
hyggst gera. Alþýðubandalags-
menn óttast framboð Ólafs
Ragnars. Menn hafa meira að
segja á orði, að þeir geti varla
hugsað séraðkjósaflokkinn,þó
Ólafur fari í framboð í öðru
kjördæmi, af ótta við að hann
komist inn sem uppbótarþing-
maður.