Fjarðarpósturinn - 11.10.1990, Blaðsíða 2
^Undirx
r gafll >
Það þótti mönnum með eindæm-
um undir gafli í gærkvöldi, þegar
stjórnarkonur í Verkakvennafélag-
inu Framtíðinni upplýstu, að starfs-
maður félagsins, sem dró sér 8,2
millj. kr. úr sjóðum þess á tæpum
tveimur árum, vann á sama tímabili
tvo stóra vinninga í Lottóinu. í fyrra
skiptið vann hún 2,5 millj. kr. og í
hið síðara 960 þús. kr.
Stjórnarkonur brugðu á það ráð,
eftir að upp komst um fjárdráttinn
að fá þetta staðfest hjá Lottóinu. -
Þetta fékkst þar staðfest. Sem sagt:
8,2 millj., plús 2,5 millj. kr., plús 960
þús. kr. • Laun verkakvenna í Fram-
tíðinni eru u.þ.b. 50 þús. kr. Ekki að
furða þó þeim ofbjóði.
Stjórn félagsins tók handbærar
eigur starfsmannsins upp í skuldina.
Meðal eigna er íbúð, nýr bfll, innbú,
„gardínur fyrir fleiri hundruð
þúsund“ að sögn einnar stjórnar-
konunnar. Meðal eignanna fannst
splunkunýr minkapels, metinn til
félagsins á kr. 300 þús., en líklega
hefur kann kostað meira í innkaup-
um. - Ef einhver hefur áhuga á að
kaupa má víst snúa sér til stjórnar
Framtíðarinnar, þar sem fullkom-
lega virðist Ijóst, að félagskonur
hafa sjálfar ekki ráð á slíkum fata-
kaupum. Þess má geta að starfsmað-
urinn fyrrverandi er fluttur til Dan-
merkur.
í lokin er hér sagan af hjónunum
sem varð illilega sundurorða. Þau
töluðust ekki við, en skiptust á skila-
boðum bréflega í marga daga. Eitt
kvöldið skrifaði bóndinn: „Vektu
mig kl. 7, þarf að ná flugvél til Akur-
eyrar kl. 8“. Daginn eftir vaknaði
hann með andfælum kl. 8.30 og
hentist að vekjaraklukkunni til að
fullvissa sig um að Idukkan væri orð-
in svona margt. Á klukkuna var
límdur miði: „Vaknaðu, Gvendur,
vaknaðu“, stóð á honum.
>.........—
Flóamarkaður
Til sölu handprjónaðir
vettlingar. Einnig hljómborð
á kr. 9.900. Uppl. í síma
54423.
Barnlaust par, 24 og 30 ára
vantar tveggja til þriggja
herbergja íbúð á leigu í
Hafnarfirði. Engin
fyrirframgreiðsla en öruggar
mánaðargreiðslur. Meðmæl
ef óskað er. Sími 54919 eftii
kl. 19.
125 ferm. iðnaðarhúsnæði til
leigu að Hjallahrauni 11.
Uppl. í síma 54949.
Óskum eftir 3ja til 4ra
herbergja íbúð á leigu
nálægt Víðistaðaskóla.
Öruggar greiðslur og
reglusemi. Uppl. í
síma54457 eftir kl. 17.
Óska eftir 2-3 herbergja
íbúð til leigu - helst strax.
Uppl. í vs. 636466 og
hs. 75712.
Óska eftir 2ja herbergja
íbúð á leigu frá og með
áramótum. Reglusemi og
skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í síma 54620 og 53554
eftirkl. 19. Hulda.
Til sölu leðurjakki, gengur
jafnt á strák og stelpu.
Splunkunýr á u.þ.b. 15 ára
eða eldri. Einnig til sölu tölva,
Commodor 64k með
segulbandi og fleiru. Uppl. í
síma 53880.
VerkamannafélagiðHlíh
Víðir verði ekki
seldur úr bænum
„Stjóm Verkamannafélagsins Hlífar lýsir áhyggjum sínum með at-
vinnumál Hafnfirðinga, komi til rekstrarstöðvunar hjá Hvaleyri h.f.
Sértaklega væra það uggvænleg tíðindi, ef Víðir, togari fyrirtækisins,
ásamt aflakvóta, yrði seldur úr bænum“.
Þetta er upphaf ályktunar sem
samþykkt var á stjórnarfundi í
Verkamannafélagin Hlíf fimmtu-
daginn 4. október. í ályktuninni
segir ennfremur: „Þegar eignir
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
voru seldar Hvaleyri h.f., árið
1985 fullyrtu þáverandi bæjaryfir-
völd, að salan yrði ekki til þess að
togararnir færu úr bænum og í öll-
um kaupsamningum vegna sölu
fiskiðjuversins og togaranna yfir
til Hvaleyrar h.f. er eftirfarandi ,
ákvæði:
„Kaupandi lýsir því yfir, að
hann mun nota hina seldu eign til
starfrækslu útgerðar og fisk-
vinnslu í Hafnarfirði og er honum
kunnugt um að slíkt er forsenda
fyrir sölu þessari af hálfu selj-
anda.“
Stjórn Hlífar krefst þess að
staðið verði við þetta ákvæði og
skorar á bæjaryfirvöld að sjá til
þess að svo verði gert.“
Sálarrannsóknarfélag Hafnarfjaröar
ísland hefur hkitverk
Haustfundur Sálarrannsóknarfélagsins í Hafnarfirði verður haldinn
í Góðtemplarahúsinu í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefst hann kl.
20.30.
Meginefni dagskrárinnar verður frásögn af einstæðum miðilsfur
sem Ulfur Ragnarsson, læknir, flytur. Við sögu koma þjóðkun
menn, sem fjalla um framtíð og hlutverk íslands og íslensku þjófi
innar.
Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir, segir í frétta
kynningu frá stjórn félagsins.
Ritvangur, ný verslut
Við Miðvang 41 er ný verslun, en það er ritfangaverslun. Þar er
finna ritföng og gjafavöru, tímarit og úrval erlendra blaða. Opnun
tími er virka daga frá kl. 10-18. Myndin hér til hægri er tekin í versli
inni í vikunni.
FYRIRTÆKINIFIRÐINUM:
Lipurtá, ný snyrli-
ogfótaaögerðastofa
Lipurtá er heiti á nýrri snyrti- og fótaaðgerðastofu við Miðvang 41.
Eigendur eru Þórhalla Ágústsdóttir, snyrti- og fótaaðgerðarfræðing-
ur, og Rósa Jónasdóttir, snyrtifræðingur.
Stofan býður að sögn eigendanna upp á alls kyns snyrti- og fótaað-
gerðir. Einnig eru gefnar ráðleggingar um naglalosun, nagla- og húð-
sveppi og fleira sem tengist fótum fólks.
Auk þeirra Þórhöllu og Rósu er Anna María Garðarsdóttir, snyrti-
fræðingur á myndinni. Þá starfar við litgreiningar á stofunni Guðrún
M. Jónasdóttir snyrtifræðingur og Cristel Jóhannessen.
KS,. 1 [ - |
.jr> 1
GAFLARIVIKUNNAR:
Fullt nafn? Dagbjört Guð-
jónsdóttir.
Fæðingardagur? 9. júlí 1920.
Fæðingarstaður? Vesturham-
ar 1, Hafnarfirði (alin upp á
Strandgötu 43).
Fjölskylduhagir? Gift, á fjög-
ur börn, einn stjúpson, 11 barna-
börn, eitt barnabarnabarn.
Bifreið? Subaru ’88.
Starf? Húsmóðir.
Helsti kostur/veikleiki? Ég læt
aðra dæma um það.
Uppáhaldsmatur? Vel steikt
lambakjöt.
Versti matur sem þú færð?
Allur matur góður.
Uppáhaldstónlist? Sveitatón-
list.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Guðjón Árnason í FH.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur á? Ég er ópóli-
tísk.
Hvert er eftirlætissjónvarps-
efnið þitt? Góðar bíómyndir.
Hvað sjónvarpsefni finnst þér
leiðinlegast? Spéspegill á Stöð 2.
Uppáhalds útvarps- og sjón-
varpsmaður? Jóhanna Harðar-
dóttir, Helgi Pétursson.
Uppáhaldsleikari? Gísli Hall-
dórsson.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Ormagryfjan.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Fer í sund og rækta garð-
inn minn.
Hvað metur þú mest í fari ann-
arra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Óheiðarleiki.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst við í skóla? Mannkyns-
sögu.
Ef þú ynnir tvær milljónir í
happdrætti, hvernig myndir þú
eyða þeim? Auka eyðsluna að-
eins.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndirðu helst vilja vera?
Ég vil ekki vera ósýnileg.
Hvað veitir þér mesta afslöpp-
um? Heiti potturinn.
Ef þú værir í spurningakeppni,
hvaða sérsvið myndirðu velja
þér? Ég færi ekki í spurninga-
keppni.
Hvað myndirðu gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag?
Breyta götunni við Miðvanginn,
þannig að ekki stafi stórhætta af
fyrir gangandi vegfarendur, þ.e.
mjókka gangstéttina þar sem
hún er og gera aðra hinum megin
götunnar. Þá mundi ég láta rífa
„Skuggaborg“, þ.e. Kaupfé-
lagsblokkina.
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Af hverju fara
Þlafnfirðingar með stiga í versl-
anir? Af því að verðið er svo
hátt.
2