Fjarðarpósturinn - 11.10.1990, Síða 4
FJflRDflR
pöstunnn
RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÍÐA TOOPPÉ
AUGLÝSINGASTJÓRI: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR
IÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HALLDÓRA GYÐA MATTHlASDÓTTIR
LJÓSMYNDIR OG ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN
INNHEIMTUSTJÓRI: SIGURÐUR GlSLI BJÖRNSSON
PRENTVINNSLA: GUÐMUNDUR STEINSSON OG BORGARPRENT
SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ BÆJARHR AUN116,3. HÆÐ, PÓSTFANG 220 HAFNAR-
FIRÐI. OPIÐ ER ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 10-17. SÍMAR 651945 (SfMSVARI EFTIR LOKUN) OG
651745. FJARÐARPÓSTURINN ER AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HÉRAÐSFRÉTTABLAÐA.
Fjársvikamálið í Framtíðinni
Fjársvikamálið, sem forustumenn Verkakvennafélagsins Framtíð-
arinnar, upplýstu félagskonur um á lokuðum fundi I félaginu I gær-
kvöldi, vekur óhug heiðvirðra borgara og ennfremur stórar spurningar
um fjárreiður og fjárhagsstööu verkalýðshreyfingarinnar.
Stjórnin tók m.a. sem „endurgreiðslu" frá starfsmanninum íbúð, bíl,
innbú og minkapels var sérstaklega tilnefndur af einni stjórnarkon-
unni, en hann er talinn að verðmæti 300 þús. kr.
íbúðin er óseld. Stjórnin telur vænlegt að bíða með sölu hennar þar
til fasteignaverð stígur, sem væntanlega gerist þegar endanleg
ákvörðun um álver á Keilisnesi liggur fyrir, að þeirra sögn. Þær telja
sig geta sinnt hlutverki sínu á meðan, þ.e. staðið við fjárhagsskuld-
bindingarfélagsins.
Peningana í „rétta vasa“
Margar félagskonur vildu fá tafarlaus svör við því á fundinum af
hverju þjófnaðurinn var ekki kærður til lögreglu. Ekki er að undra.
Þarna er stolið heilum 8,2 millj. kr. frá lægst launaða fólki landsins og
reyndar furðulegt að félagið þeirra, Framtíðin, skuli vera svo fjársterkt
að geta staðið undir rekstri við þessar aðstæður.
Það má ekki gleymast að hér er um peninga félagskvenna að ræða,
launafólks sem þiggur að meðaltali um 50 þús. kr. I mánaðarlaun að
sögn formanns félagsins eftir fundinn I gær. Væri þá ekki allt eins
hægt að láta félagskonur fá I eigin vasa alla þessa fjármuni, fyrst fé-
lagið - félagið þeirra - getur rekið sig án þessara fjármuna, a.m.k.
tímabundið.
Fjarðarpóstinum finnst ekki fjarstæðukennd hugmynd, að litið verði
nánar á þessi mál I heild. Getur verkalýðshreyfingin kannski látið eig-
endur sína, verkafólk, fá eitthvað af eigum sínum I eigin vasa, a.m.k.
á meðan láglaunafólk er eins illa statt og verkalýðshreyfingin sjálf
heldur hvað stífast fram. í Framtíðinni eru aðeins um 800 félags-
menn, skráðir. Hvað þá með stóru félögin?
Af hverju ekki kært?
„Það er enginn bættari af því að fara I tugthús", sögðu stjórnarkon-
ur I Framtíðinni, aðspurðar um af hverju málið var ekki kært til réttra
yfirvalda. Það mátakafram, að starfsmaðurinn fyrrverandi erflutturtil
Danmerkur, að sögn formannsins. Af hverju var ekki kært?
Launafólk hefur verið hirt í verslunum - oft af ósekju - og lögregla
kölluð til, vegna nokkurra króna meints þjófnaðar. - Er það I valdi
stjórnarkvenna Framtíðinnar að segja (slenska dómskerfið vanhæft?
- Er það þeirra að segja félagskonum, að stórþjófnaður á fjármunum
þeirra sé ekki sakaverður? - Hvert er fordæmisgildi?
Fjarðarpósturinn setur sig I spor félagskonu, sem tekur við launa-
umslagi sínu um næstu mánaðarmót. Þar eru dregnarfrá - af lúsar-
launum - óteljandi krónur til aðskiljanlegustu sjóða. - Hið sama á við
um atvinnurekendur. - Þessi gjöld verða líklega greidd með breyttu
hugarfari eftir afgreiðslu stjórnar Framtíðarinnar á þjófnaðarmálinu.
Arangur nýrrar uppeldisaMerðar með kynjaskiptmgu í leik og starfi:
Hraustustu stelpur í firðinum og
strákar sem hugga télagasna
„Tveir strákar eru að leik í stóru rólunni við leikskólann við Hjalla-
braut. Aðrir tveir strákar koma að og vilja fá að leika sér með þeim í
rólunni. Þeir fá fádæma lélegar undirtektir og er sagt að koma sér í
burtu. „Ef við fáum ekki að vera með, þá náum við í stelpumar“, sagði
þá annar aðkomustrákanna. - Og viti menn. Þeir fengu samstundis
aðgang. Stúlkumar hér sætta sig nefnilega ekki við að einhver sé skil-
inn útundan eða barsmíðar séu í gangi. Þá grípa þær til sinna ráða og
koma reglu á hlutina.“ - Margrét Pála Ólafsdóttir, forstöðumaður,
segir tíðindamanni Fjarðarpóstsins þessa sögu sem dæmi um, hversu
vel hafi tekist til varðandi nýbreytni með nýja uppeldisaðferð á heimil-
inu, sem felur m.a. í sér kynjaskiptingu á barnahópnum.
Ár er nú liðið frá því að heimil- irnir voru þar mjög áhugasamir.
ið var opnað og tilraunin hófst.
Varðandi árangurinn sagði Mar-
grét Pála: „Ég gæti ekki hugsað
mér að breyta á ný. Mín niður-
staða er sú, að stúlkur í blönduð-
um hópi hafi fengið ofurþjálfun í
að gera ekki með tilliti til annarra,
en drengir í að gera án tillits til
annarra. Núna fá allir sömu
möguleika til að þjálfa alla þætti.
Tilraunin á Hjalla, sem byggð
er alfarið á aðferðum, sem Mar-
grét Pála hefur hannað, byggir
m.a. á þeirri staðreynd, sem fram
hefur komið með rannsóknum í
skólum, að stúlkur „gleymast" og,
fá aðeins 25-30% af athygli kenn-
arans, á meðan drengjunum er af-
hentur 70-75% skammtur. Mar-
grét sagðist hafa unnið í mörg ár
með börnum á leikskólaaldri í
kynjablönduðum hópum og þar
hefði hún komist að þeirri niður-
stöðu að jafn réttur væri ekki fyrir
hendi, þrátt fyrir kynjablöndun-
ina og að kynjahlutverkin hafi lít-
ið breyst.
Sameiginleg staðsetning kynj-
anna í dúkkubúi hafi farið þannig
fram, að stúlkurnar stjórna og
drengirnir æfa sig í að vera
pabbinn, sem er sendur í vinnuna
og þar með út úr leiknum, eða að
þeir fá að vera hundurinn, sem er
rétthærra hlutverk. Sameiginleg
staðsetning á skólalóðinni þýðir,
að stúlkurnar eiga í vök að verjast
með húfurnar sínar og töskurnar
og barsmíðar eru helsta afþrey-
ingin fyrir drengina. Stúlkurnar
verða sem sagt að hlíta reglum
drengjanna. I sameiginlegum
aldursblönduðum hópi eru það
alltaf stúlkurnar sem fyrst koma
litlu börnunum til aðstoðar.
Margrét Pála sagði að á Hjalla
væri barnahópurinn kynjaskiptur
meirihluta dagsins til að styrkja
hvort kyn á þeirra eigin forsend-
um. Hugmyndin væri sú, að
tryggja að ólík hegðun bitni ekki á
hinum svo og að hvort kyn fyrir sig
fái 100% athygli og leiðsögn.
Fyrst í stað valdi stúlknahópurinn
t.d. sjaldan hreyfisvæði, en dreng-
Þetta breyttist eftir því sem mán-
uðirnir liðu og kom að því að
stúlkurnar völdu hreyfisvæðið oft-
ar en drengirnir. Þá hefur einnig
komið í ljós, að drengirnir hafa
sinnt ungum kynbræðrum sínum,
allt niður í tæplega tveggja ára
gamla og fengið með því mikil-
væga þjálfun fyrir seinni tíma
hlutverk í fjölskyldunni. Dren-
girnir kunna þessa list líka, ef eng-
inn tekur ábyrgðina af þeim.
Margrét Pála sagði að starfið á
Hjalla byggðist ekki eingöngu á
því að einblína á kynlega hegðun
eða atferli. Jafnframt og ekki síð-
ur væri reynt að rækta og styðja
aðrar eigindir jafnhliða. Hún
sagði: „Hér má sem dæmi nefna
að þótt stúlkurnar hafi í friði
„byggt" sínar tertur í byggingar-
króknum og mætt bleikklæddar í
glæstum kjólum, höfum við einnig
lagt mikla áherslu á aðra þætti,
svo sem skipulagðar æfingar, sem
ég nefni kjarkþjálfun. Þar hlaupa
þær uppi á girðingum, þora að
stökkva og hrópa eða ganga ber-
fættar í hafnfirsku hrauni án þess
að kveinka sér - og enginn þarf
plástur „Við erum hraustustu
stelpur í Hafnarfirði" er okkar
eftirlætismáltæki.
Á sama hátt hafa drengirnir
átölulaust getað unað sér við hasar
og hamagang með hinum mesta
hávaða, þegar þeir kjósa, - og
trufla engan. Þegar átökin ganga
síðan of langt eða snuðra kemur á
vinskapinn, er engin stelpa til að
bjarga málunum og því höfum við
getað þjálfað þá í að hugga vini
sína eða leysa ágreiningsefnin
sjálfir. Eitt sinn kom ég inn í
stofu, þar sem fjórir drengir höfðu
komið sér í slagsmál, einn orðið
undir og grét sá vitanlega eins og
hann ætti lífið að leysa. Vinir hans
þrír höfðu lagt hann upp á borð,
sett púða undir höfuðið og stóðu
allir og struku honum blíQlega í
huggunarskyni. Drengir kunna
þessa list líka, ef enginn tekur
ábyrgðina af þeim.“
Verkamannafélagið HLÍF
Félagsfundur
Verkamannafélagið Hlíf heldur félagsfund,
fimmtudaginn 18. október 1990, kl. 20.30 í
Hlífarhúsinu, Reykjavíkurv. 64, Hafnarfirði.
Fundarefni: I.Kjaramál.
2. Kosning í uppstillingarnefnd.
3. Kosning í kjörstjórn.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Kynjaskipt starfá Hjalla hefur gefið góða raun.
Á Hjalla eru 110 börn á aldrin- tilraunina, en hún verður unnin í
um 2-6 ára. Margrét sagði, að hún samvinnu við danskt fagfólk.
greindiþegargóðanárangurogað Varðandi niðurstöðuna sagði
hann yrði áreiðanlega meiri eftir Margrét Pála ennfremur: „Kynja-
því sem tíminn yrði lengri. Til- skipt starf hefur fallið vel inn í það
raunin hefur vakið mikla athygli, uppeldismódel, sem leikskólinn
bæði innanlands og utan. í undir- starfar eftir. í upphafi var ákveðið
búningi er gerð kvikmyndar um
að reyna þessa nýbreytni í eitt ár,
sem nú er liðið. Við vildum leggja
okkar af mörkum til að kenna
nokkrum drengjum að þeir þurfi
ekki að hasast í gegnum lífið og
sýna stúlkum að þær þurfi ekki að
sætta sig við minnihlutaleiðsögn,
athyglissviptingu eða þolenda-
hlutverk. Okkur þótti tilraunar-
innar virði að reyna, -og í dag
erum við fullvissar um að valið var
rétt. - Við munum halda áfram á
sömu braut.“
Margrét Pála sagði að lokum,
að samstarf bæði við bæjaryfir-
völd og ríkisvald hefði verið gott.
Menntamálaráðuneytið hefði
veitt styrk til að vinna að undir-
búningi skýrslugerðar og bærinn
hefði sýnt mikinn kjark með því
að standa að baki leikskólans. Ég
er þess fullviss að þessi aðferð
skilar hæfari einstaklingum út í
þjóðfélagið. I dag sé ég mun betri
útkomu hjá báðum kynjum og svo
lengi sem ég sé ekki enn betri leið
mun ég halda áfram kynjaskipt-
ingunni.
SMAMYNDIR
/ VEGABRÉFIÐ
í ÖKUSKÍRTEINIÐ
FILMUR & l_____
FRAMKÖLLUN
StraM$*U 19 • H*tn*ríMt - Siml S4120
Alþýðubandalagið
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarftrði verður
haldinn í Skálanum mánudaginn 15. október n.k. kl.
20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
BOLTAR
SKRUFUR, FESTINGAR
Landsins mesta úrval -
Yfir 15.000 vörunúmer
álager !
Ennfremur úrval
rafmagns-oghandverkfæra
Heildsala — Smásala.
Festingameistarar®
STRANDGOTU 75. HAFNARFIRÐI
SML M 29 £5
HELGARMATSEÐILL II.-14. OKT.
FORRÉTTJR:
Reykt laxamús með piparrótarsósu
og ristuðu brauði
eða
Sniglaragú á bútterdeigsbotni
MILLIRÉTTÍR:
Sorbet
eða
Léttsteikt gæsabringa með trönuberjasósu
og sykurbrúnuðum kartöflum
eða
Eggjahjúpaður lax með tómatsalati
DESERTAR:
Regnbogafromage með aprikósusósu og rjóma
eða
Fylltar appeisínur "SURPRISE"
Samtals verð 2.990,-
MEIRIHÁTTAR STEMMNING Á LOFTINU ALLA DAGA
S
651130
A. Hansen
a
651130
Q
cc
o
*
>-
OQ
K
EFNI0G ÁHÖLD TIL AD:
Bora, negla, saga, pussa, festa,
skafa, mala, vökva, moka, girða,
lysa, raka, tengja...
BYKO
VIÐ REYKJANESBRAUT
DJ
-<
*
o
-n
30
O
2
S I M I
5 4 4 1 1