Fjarðarpósturinn - 11.10.1990, Qupperneq 6
IÞROTTIR:
UMSJON:
ÞÓRÐUR BJÖRNSSON
Handboltinn:
Heimaliðin keppa
Fyrsta deild kvenna og karla er á fullu eins og flestum ætti að vera
kunnugt. Nýliðar Hauka hafa staðið sig mjög vel í fyrstu leikjunum á
meðan FH-ingar hafa staðið sig afleitlega, en batamerki má greina
með hverjum leik.
Það er spurning hvort FH-ingar FH-KR: 22-22
smella saman á móti Haukum á Haukar-ÍR: 27-26
laugardag. Það er að sjálfsögðu æðsti draumur Haukanna að Haukar-Grótta: 22-21
leggja FH-inga og sanna sig í eitt 1. deild kvenna
skipti fyrir öll. FH-Fram: 25-15
FH-stelpurnar hafa staðið sig FH-Stjarnan: 14-22
mjög vel til þessa og eru til alls lík- FH-Valur: 18-16
legar. H-Grótta: 16-15
Helstu úrslit: FH-ÍBV: 17-14
1. deild karla FH-ÍBV: 25-17
KR-Víkingur: 22-27
Sundhettur fyrir börn og fullorðna
Vatnsheldir eyrnatappar
Tökum á móti fyrndum
lyfjum til eyðingar
Afgreiðslutími
frá kl. 9-19 mánudaga til föstudaga
kl. 10-14 laugardaga
og annan hvem sunnudag
Otrúlegur arangur
Síðari leikur FH og Dundee
United fór fram á Tannadice
Park í Skotlandi á þríðjudag.
Skotarnir ætluðu sér að kafsigla
FH-inga, en þeir voru á öðru
máli. Þrátt fyrir tap, stóðu þeir
sig frábærlega vel og skoraði
Kristján Gíslason eitt fallegasta
mark sem sést hefur á skoskum
velli, að sögn íþróttafréttamanns
BBC.
Hörður Magnússon skoraði
fyrsta mark leiksins á 20. mínútu
af miklu harðfylgi. Kristján
Gíslason skoraði síðan annað
mark af 30 metra færi og sagðist
þulur BBC-útvarpsstöðvarinnar
aldrei hafa séð annað eins mark,
er boltinn small í vinklinum.
Datt allt í dúnalogn á áhorfenda-
bekkjunum.
Áfram sóttu FH-ingar en inn
vildi ekki boltinn og staðan í
hálfleik var 2-0 FH í vil, aldeilis
ótrúlegt.
Skotar minnkuðu muninn um
miðjan seinni hálfleik. Guð-
mundur Hilmarsson varð síðan
fyrir því óhappi að skora
sjálfsmark, þegar 10 mínútur
voru til leiksloka.
Það mátti ekki á milli sjá í
þessum leik. Efsta liðið í Skot-
landi á móti Hafnfirðingum sem
stóðu sig eins og hetjur. Með
smáheppni hefðu þeir komist
áfram í aðra umferð Evrópu-
keppni félagsliða. Það býr
greinilega miklu meira í FH-lið-
inu en það sýndi í sumar en það
vita þeir líklega best sjálfir. Þeir
geta borið höfuð hátt.
t HAFNARFJARÐAR AP0TEK
STRANDGÖTU 34, SÍMAR 51600 - 50090
VÍÐISTAÐAKIKKJA
Sunnudagur 14. október.
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00.
Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 13.00.
Guðsþjónusta í Víðistaðakirkju
kl. 14.00. Kór Víðistaðasóknar
syngur. Organisti Ulrik Ólason.
SÉRA SIOURÐUR HELQI QUÐMUUDSSOn
FRÍKIRKJAN
Sunnudagur 14. október.
Guðsþjónusta kl. 14.00.
Barnakórinn æfir á þriðjudög-
um kl. 17.15. 8 ára börn og
eldri eru velkomin. Stjórnandi
Kristjana Ásgeirsdóttir.
SÉRA EiriAR EYJÓLFSSOn
HAFN/
n
7 /n e s
ÍT!) 1
RFJARÐARKIRKJA
Sunnudagur 14. október.
Sunnudagaskóli kl. 11.00.
Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14.00.
sr. ounnnóR maAson
Naumur sigur
Það blés ekki byrlega fyrir Haukunum í byrjun leiks á móti Snæfelli
í úrvalsdeildinni í körfuboltanum. Gestirnir byrjuðu mjög vel og komu
Haukunum greinilega í opna skjöldu. Það var fyrst og fremst fyrir stór-
leik Jóns Arnars Ingvarssonar, að ekki fór illa.
Staðan í leikhléi var 42-39
Haukum í vil. í seinni hálfleik
vöknuðu Hafnfirðingarnir aðeins
til lífsins og náðu að knýja fram
sigur 82-70.
Ef Haukamir ætla að spila eins
Norræna félagið gengst fyrir
æskulýðsmóti helgina 9. til 11.
nóvember n.k. í Munaðarnesi.
Yfirskrift mótsins er „Pappir og
plast í þínu nánast umhverfi“, en
viðfangsefnið er umhverfismál.
Framtak þetta er í tengslum við
Norræna umhverfisárið, sem nú
og í þessum leik í vetur, verður
hann langur og erfiður. Bestu
menn Hauka voru Jón Arnar, 35
stig, og Henning Henningsson, 14
stig.
stendur yfir. Hugmyndin er að
vekja ungt fólk á aldrinum 15-20
ára til umhugsunar um þessi efni,
sem það umgengst daglega.
Stefnt er að því að fá þátttak-
endur úr öllum sveitarfélögum
landsins. Nánari upplýsingar gef-
ur skrifstofa Norræna félagsins.
Punktar
Góðar líkur eru á, að homa-
maðurinn skemmtilegi, Jón
Erling Ragnarsson, spili með
FH-ingum á laugardag. Jón
leikur sem kunnugt er með
Fram í fótbolta.
♦
Útsendarar nokkurra
enskra liða voru á leik FH og
Dundee að fylgjast með
Herði Magnússyni, marka-
skorara, og kannski fleirum.
♦
Sigurjón Sigurðsson,
vinstri handar skyttan snjalla,
er farinn að leika með Hauk-
um að nýju í handbolta, en
hann lék með Val í fyrra.
♦
Blaðamenn Fjarðarpósts-
ins munu á næstu vikum
heimsækja yngstu íþrótta-
þátttakendurna og taka viðtöl
og myndir.
„Pappír og plast“
NÝJA BÓNSTÖÐIN, © 65254 TRÖNUHRAUNI2 4
Viö þvoum og bónum bílinn þinn jafnt utan sem innan. Einnig sækjum viö hann og skilum aftur. ATH: DJÚPHREINSUM OG VÉLARÞVOUM. Seljum krómboga og önnumst ásetningu á flestar tegundir bifreiöa. Verfi frá kr. 8700 Einnig vinsælu kúluteppin á bílsæti. KR.1500
N.
6