Fjarðarpósturinn - 11.10.1990, Qupperneq 8
Haust í Hellisgerði
„Húsnæöismálin sorglegasta dæm-
iö um sinnuleysi sveitarfélaganna“
Húsnæðisnefnd Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í
gær, að auglýstir verði opnir viðtalstímar nefndarinnar, þar sem bæjar-
búum verði gefinn kostur á að ræða milliliðalaust við stjórnarmenn
húsnæðisnefndar um sín húsnæðismál. í greinargerð flutningsmanns,
kemur m.a. fram, að tillagan er flutt vegna þess hvernig staðið var að
ráðningu forstöðumanns nefndarinnar af hálfu bæjarstjórnarmeiri-
hlutans.
Það er Lúðvík Geirsson sem
flutti tillöguna, sem samþykkt var
samhljóða í nefndinni. Tillagan
gerir ráð fyrir að stjórnarmenn
skipti með sér að sitja viðtalstím-
ana og að þeir verði haldnir eigi
sjaldnar en tvisvar í mánuði.
Fyrsti viðtalstíminn verði auglýst-
ur hið allra fyrsta.
í greinargerð Lúðvíks segir
m.a.: „Nú liggur fyrir að meiri-
hluti bæjarstjórnar hefur ráðið
forstöðumann fyrir húsnæðis-
nefnd og við þá ráðningu gengið
þvert gegn vilja meirihluta stjórn-
arinnar. Undirritaður býður nýtt
starfsfólk velkomið til starfa og
óskar eftir góðu samstarfi við þá
varðandi úrlausn þess mikla
vanda sem blasir við í félagslegum
húsnæðismálum hér í bæ.
Ýmis stór verkefni bíða þegar
afgreiðslu og víst er að forstöðu-
maður mun hafa ýmsum hnöpp-
um að hneppa á næstunni við að
koma sér inn í stöðu mála. Þá er
ekki heldur hægt að horfa fram
hjá því að þar sem svo hefur verið
staðið að ráðningunni, eins og
áður hefur verið lýst, er nauðsyn-
legt að gefa skjólstæðingum
stjórnarinnar kost á að koma
málaleitan sinni milliliðalaust á
framfæri á formlegan hátt við
stjórnarmenn. Því er ofangreind
tillaga um fastan viðtalstíma
stjórnarmanna flutt.“
Fulltúar Alþýðuflokks bókuðu
andmæli gegn greinargerð Lúð-
víks þar sem fullyrta að rangt sé
farið með hvað ofangreindan
kafla varðar.
FJflRDflR
pbsturmn
RÐBRÉFAVIÐSKIPTI
1m
r sPARisjöosm
REYKJAVlKURVEGI 66-SÍMI 651575
?A
m
Samhljóia samþykkti húsnæðisnefndai:
Bæjarbúar fái ,jnillilí6alaus“
viðtöl við kjöma nefndarmenn
Verkamannafélagið Hlíf, undir forustu Sigurðar T. Sigurðssonar,
hefur verið mjög afgerandi hvað varðar húsnæðismálin í Hafnarfirði,
enda Ijóst að vandinn er stór, eins og fram hefur komið. Stjórn Hlífar
samþykkti nýverið harðorða ályktun vegna sjálfstæðis húsnæðisnefnda
sveitarfélaganna, sem send hefur verið félagsmálaráðherra, Jóhönnu
Sigurðardóttur. Bæjarstjórn staðfesti á fundi sínum á þriðjudag tillögu
húsnæðisnefndar til húsnæðismálakerfisins, að byggðar verði 300 fé-
lagslegar ibúðir í Hafnarfirði fram til ársins 1993.
Sigurður T. Sigurðsson hafði
áður gert tillögu um að byggðar
yrðu 300 íbúðir í bænum á næsta
ári. Óafgreiddar umsóknir eru nú
285 og því ljóst að með óbreyttu
kerfi yrðu umsækjendur að bíða í
allt að sjö ár eftir fyrirgreiðslu.
Stjórn Hlífar samþykkti á stjórn-
arfundi 4. október eftirfarandi
ályktun:
„Félagslegar íbúðabyggingar
eru eitt helst hagsmunamál al-
menns launafólks og sá árangur
sem náðst hefur í þeim málum því
til hagsbóta, er fyrst og fremst að
þakka harðri baráttu verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Nýsett húsnæðislög taka þó
ekki tillit til þessa og því er full-
trúum verkalýðsfélaganna í hús-
næðisnefndum sveitarfélaga ætl-
uð þar minni áhrif en æskilegt
væri.
Því miður eru þess allmörg
dæmi að sveitarfélög sinni ekki
sem skyldi félagslegum íbúðar-
byggingum og er ástandið í hús-
næðismálum lágtekjufólks á höf-
uðborgarsvæðinu eitt gleggsta en
um leið sorglegasta dæmið þar
um.
Það er því bráðnauðsynlegt fyr-
ir alla, sem á félagslegu húsnæði
þurfa að halda, að fulltrúar verka-
lýðshreyfingarinnar eigi sem mest
ítök í húsnæðisnefndunum, auk
þess sem vera þeirra í þeim sporn-
ar gegn þeirri tilhneigingu stjórn-
Hafþór gerður út
frá Hafnarfirði?
Samkvæmt heimildum Fjarðarpóstsins stefnir í að Hafþór, togarinn
sem Hafrannsóknarstofnun og sjávarútvegsráðuneytið hafa verið að
reyna að selja, verði seldur. Ef af sölunni verður mun togarinn vænta-
lega verða gerður út frá Hafnarfirði.
Ekki tókst að fá fréttina staðfesta í gær, en samkvæmt heimildum
Fjarðarpóstsins eru það aðilar í Reykjavík, þ.e. íslenska útflutnings-
miðstöðin, Særún á Blönduósi, Dögun á Sauðárkróki og fyrirtæki í
Bíldudal, sem hyggjast kaupa togarann. Hann verður þá gerður út frá
Hafnarfirði.
málaflokkanna að meta húsnæðis-
mál efnalítils fólks samkvæmt póli-
tískum hagsmunum sínum.
Stjórn Verkamannafélagsins
Hlífar telur að auka beri ítök
verkalýðshreyfingarinnar í hús-
næðisnefndunum frá því sem nú
er og mun berjast með odd og egg
fyrir því að þær verði sem sjálf-
stæðastar og sem mest óháðar póli-
tíska valdinu.“
Tímamóta-
leikur
Það verður stór viðburður í
íþróttalífi Hafnfirðinga á
laugardag, þegar FH og
Haukar mætast í alvöruleik í
fyrstu deildinni í handboltan-
um.
Leikurinn hefst í Kapla-
krika kl. 16.30 á laugardag.
Bæjarstjóri á bæjarstjómarfundi:
Ekki á dagskrá aó
kaupa Hvaleyrina
Til umræðna kom á síðasta bæjarstjórnarfundi vegna frétta um
væntanlega sölu Hvaleyrarinnar. Það kom m.a. fram í máli bæjar-
stjóra, vegna „meints áhuga þeirra á kaupum á Hvaleyrinni“, að
bæjarstjórnarmeirihlutinn ræður ekki við slík kaup, og að ekki sé á
dagskrá að kaupa hana fyrir skattpeninga bæjarbúa.
Það var Ingvar Viktorsson sem hóf umræðuna og spurði Jóhann G.
Bergþórsson, einn eiganda Hvaleyrar, og bæjarstjóra um stöðu mála.
Jóhann upplýsti að umræður um söluna væru í gangi. Hann taldi að
Víðir yrði áfram gerður út frá bænum. Varðandi hraðfrystihús Hvaleyr-
ar sagði hann misskilning að um atvinnuleysi gæti orðið að ræða. Miklir
erfiðleikar væru aftur á móti að manna húsið og eins væri um önnur
vinnsluhús í bænum, svo sem Norðurstjörnuna og Sjóla. Hann fagnaði
ennfremur yfirlýsingum bæjarstjóra þess efnis, að ekki væri ætlunin að
steypa bæjarbúum í þá áhættu að reka bæjarútgerð.
KRAKKAR
LAUS HVERFI
Hverfi í Hraununum við Álfaskeið
og í Norðurbæ.
Sími 651906.
Dreifingarstjóri