Fjarðarpósturinn - 31.10.1991, Blaðsíða 1
FasteignasaíaV
EIGNABÆR
Bæjarhrauni 8
Sími
654222
FJflRÐflB
29. TBL. 1991 - 9. ARG.
FIMMTUDAGUR 31. OKT.
VERÐ KR. 100,-
/ FasteignasalaN.
EIGNABÆR
Bæjarhrauni 8
Sími
654222
Bæjayfirvöld hyggjast kaupajiarkarhúsið og áætla upphafskostnað um 200 miilj. kc:
Slökkvilið, Áhaldahús og Rafveita flytji í húsið
Áætlun uni kaup bæjarsjóðs á Barkarhúsinu við H jallahraun
mun vera í lokafrágangi á bæjarskrifstofunum og var bæjar-
ráðsmönnum tilkynnt í síðustu viku að búa sig undir að gefa á-
kveðið svar við því tilboði sem liggur fyrir á bæjjaráðsfundi í dag.
Ætlunin er að flytja starfsemi Slökkviliðsins, Áhaldahússins og
hluta af rekstri Rafveitunnar í húsið, sem er um 4.200 fermetrar
að grunnfleti. Reiknað er með að kaupverð sé í kringum 120 millj.,
sem felst í yfirtöku skulda. Nauðsynlegar upphafsframkvæmdir
eru taldar kosta allt að 80 til 100 millj. Að mati kunnugra, er
heildarkostnaður við kaup og lagfæringar hússins nálægt því að
vera uin 300 millj. kr.
Barkarhúsið er talin eign San-
itas, eða Páls í Polaris, eins og
hann hefur verið nefndur. Áhvíl-
andi skuldir á húsinu munu nema
um 139 millj. kr. og er bókfært
kaupverð talið þurfa að vera um
120 millj. kr. yfirtaka skulda til
að unnt sé að ganga frá kaupun-
um.
Tæknimenn bæjarins hafa
kannað ástand hússins og í nið-
urstöðumþeirrakemurm.a. fram,
skv. heimildum Fjarðarpóstsins,
að verkstæðishúsið sé í nokkuð
góðu ástandi. Er þar m.a. hlaup-
aköttur, en viðgerðargryfjur á
verkstæði þarf að búa til. Aftur á
móti þarf miklu til að kosta við að
koma starfsmannaaðstöðu í lag.
Efri hæð hússins mun vera í
slæmu ásigkomulagi.
Þess má og geta, að inn í dæmið
má reikna söluverðmæti þeirra
eigna sem rýmast með flutning-
unum, þ.e. húsnæði Slökkviliðs-
ins, Áhaldshússins og væntanlega
húss Rafveitunnar á Hverfis-
götu.
Starfsmenn Slökkviliðsins
munu vera lítið hrifnir af þessari
hugmynd, en þeir hafa reyndar
ekki enn verið spurðir álits. Þeir
hafa beðið nokkuð lengi eftir á-
kvörðunum um byggingu nýrrar
slökkvistöðvar, sem ætlunin var
að yrði gegnt núverandi stöð. Sú
áætlun er nú komin niður í
skúffu.
Enn bólar ekki á
endurskoðuninni
Hagvirki í almenningsakstur
Hagvirki-Klettur h.f. var lægstbjóðandi í akstur á fjórum
leiðum af fimm, sem Almenningsvagnar, byggðasamlag, bauð
nýverið út. Hagvirki mun því taka að sér til næstu fimm ára frá
og með 1. mars. n.k. akstur á leiðum í Hafnarfirði, Kópavogi,
Garðabæ og Álftanesi, auk þess innanbæjar í Kópavogi og
Hafnafirði. Fyrirtækið hyggst kaupa 18 nýja farþegaflutninga-
vagna í þessu skyni, auk þess þrjá til fjóra eldri aukavagna.
Endurskoðuð fjárhagsáætl-
un bæjarsjóðs fyrir árið 1991
hefur enn ekki litið dagsins ljós.
Þá hefur ekki heldur verið lagt
fram níu mánaða uppgjör, sem
bæjarfulltrúar minni hlutans,
Sjálfstæðisflokks, liafa marg-
beðið um, síðast á bæjarráðs-
fundi sl. fimmtudag.
Magnús Jón Ámason lýsti eftir
endurskoðuninni í bókun á síðasta
bæjarráðsfundiog spurðiþarm.a.,
hvort endurskoðuð fjárhagsáætl-
un yrði lögð fram á þessu ári, eða
hvort beðið yrði með það fram á
næsta ár. Þau svör bárust á fund-
inum, að endurskoðuð fjárhagsá-
ætlun yrði lögð fram innan tíðar.
Að sögn Gísla Friðjónssonar,
framkvæmdastjóra Hagvirkis
Kletts h.f., bauð fyrirtækið 216
millj. kr. á ársgrundvelli í akst-
urinn, og var það tilboð lægst.
Leiðirnar sem um ræðir em fjórar:
Hafnarfjörður, Reykjavík hrað-
ferð. í öðru lagi innanbæjar í
Kópavogi, í þriðja lagi Garða-
bær, Álftanes innanbæjar og í
fjórða lagi Hafnarfjörður Norð-
urbær/Suðurbær, kvöld- og
helgarakstur.
Aðspurður um af hverju Hag-
virki hefði boðið í þennan pakka,
sagði Gísli, að fyrirtækið væri
verktakafyrirtæki og þarna tækju
þeir að sér ákveðið verk. Þeir
hefðu yfir að ráða góðu véla-
verkstæði og aðstöðu til að sjá um
þessar bifreiðir.
Gísli sagði að lokurn, að mið-
stöð nýju starfrækslunnar yrði í
höfuðstöðvum Hagvirkis, þ.e. að
Skútahrauni. Þeim fjölgar því
væntanlega strætóbílunum í
Firðinum á komandi ári.
Dómshús á Bæjarhraun?
Fógetaembættið og dómsmálaráðuneytið hafa verið á hött-
unum eftir húsnæði fyrir dómssali embættisins. Samkvæmt
heimildum Fjarðarpóstsins hafa þeir m.a. sýnt áhuga á kaupum
á húsnæðinu að Bæjahrauni 6. Bæjaryfirvöld hafa hins vegar
reynt til hins ítrasta að fá embættið til að falla ekki frá hug-
myndum um nýbyggingu í miðbænum.
Það hefur því komið til tals, að útvega fógetaembættinu efstu
hæðina í húsnæði Dvergs við Lækjagötuna undir dómssali. Þar er
aftur á móti mjög erfitt með bílastæði.
Áhugi bæjaryftrvalda byggist fyrst og fremst á því að fá fógeta-
embættið til að byggja á lóðinni á bak við ráðhúsið við Strandgötu.
Það hefur verið von bæjaryfirvalda, að með nýbyggingu þar gæti
bærinn fengið inni í sama húsnæði með hluta af starfsemi sinni, en
núverandi ráðhús er löngu sprungið utan af starfsemi bæjarins.
Hrói Höttur býður
fjórum lesendum
upp á 16" pizzur
- Sjá bls. 3
„Ljótasta dæmið um
spillingu og mis-
notkun valdsins“
- Sjá bls. 4 og 5
Ungt fólk með fullar
hendur fjár í félags-
lega kerfinu
-Sjá bls. 8