Fjarðarpósturinn - 31.10.1991, Blaðsíða 6
IÞROTTIR:
UMSJON: ÞORÐUR BJORNSSON
Sigur og tap
Hafnfirsku handknattleiks- FH-ingar hafa ekki enn tapað
liðin fóru í víking um helgina. leik í mótinu og verða þeir ill-
FH-ingar mætu IBV í Eyjum stöðvaðir í þessum ham. Hauk-
og unnu í hörkuleik, 29-27. arnir léku hins vegar vægast sagt
Haukarnir mættu KA á Akur- illa, en verða örugglega búnir að
eyri og máttu þola tap 24-17. laga það bráðlega.
Haukarnir sanka að
sér leikmönnum
Það er greinilegt, að Haukarnir ætla sér að gera góða hluti í
fótboltanum næsta sumar, en þeir hafa verið að sanka að sér
leikmönnum. Nú síðast fengu þeir til liðs við sig Rögnvald
Rögnvaldsson, sem lék með Blikunum í sumar og Þorvald
Jónsson, markvörð, sem lék einnig ineð Breiðablik, en þar áður
með Leiftri í fyrstu deild.
Þá hefur Theódór Jóhannesson, sem lék með Þrótti seinasta sumar,
ákveðið að leika að nýju með sínum gömlu félögum. Þar áður hafði
Guðmundur Valur Sigurðsson úr FH gengið til liðs við Hauka.
Tveir góðir sigrar
Haukarnir unnu tvo góða sigra í úrvalsdeildinni í körfubolta
. Fyrst mættu þeir Þór frá Akureyri og unnu nokkuð auðveldan
sigur, 86-66, enda Akureyringar án erlends leikmanns. Mike
Dizaa var stigahæstur með 22 stig og lék vel.
Haukamir fengu Tindastól frá Sauðárkróki í heimsókn og unnu í
skemmtilegum og miklum stigaleik, en leikar enduðu 106-103.
Helst illa á útlendingunum
Mike Dizaa, bandaríski leikmaðurinn í liði
Hauka, er hættur að leika með liðinu af persónu-
legum ástæðum. Móðir hans er að sögn mjög veik
og bað hann því uin að vera leystur undan sínum
samningi við Hauka.
Dizaa hefur verið að bæta sig með hverjum
leiknum. Haukar hafa því verið óheppnir til þessa.
Fyrst var Larry Hotaling rekinn frá liðinu og nú
fer Mike. Það er því Ijóst, að Haukarnir verða án
útlendings í leiknum á móti Borgnesingum, sem
fram fer í kvöld, fimmtudagskvöld. Eftir þann leik
kemur þriggja vikna frí vegna ferðar landsliðsins
til Bandaríkjanna. Ætti því að vera búið að fá
annan leikmann, þegar leikurinn gegn KR fer fram
24. nóvember n.k.
Fríkirkjan
Sunnudagur 3. nóv. Kaffidagur.
Bamaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Kafflsala
Kvenfélagsins verður í
Góðtemplarahúsinu frá kl. 15.
Fimmtudagskvöldið 7. nóv.
verður fyrsta fræðslustund vetr-
arins í safnaðarheimilinu kl. 20.
Fjallað verður um siðfræði. Allir
velkomnir. Kaffiveitingar.
Séra Einar Eyjólfsson
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagur 3. nóv. Allrar
heilagra messa.
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn. Messað kl. 14. Alt-
arisganga. Minnst verður lát-
inna. Kór I lafnarijarðarkirkju
syngur Messa deAngeles, sem
er Gregoris-messa. Organisti
Helgi Bragason.
Séra Gunnþór Ingason
f.
Víðistaðasókn
Sunnudagur 3. nóv.
Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjón-
usta í Hrafnistu kl. 13. Guðsþjónusta
í Víðistaðakirkju kl. 14. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Organisti Ulrik Óla-
son.
Séra Sigurður Helgi Guðmundsson
samtökin, Hafnarfirði
Eigir þú við áfengisvandamúl að stríða,
þá er sfmi samtakanna 652353.
Við svörum í símann sem hér segir:
Sunnud. kl. 10.00-11.00 og kl. 20.00-21.00
Mánud. kl. 20.00-21.00
Þriájud. kl. 20.00-21.00
Fimmtud. kl. 19.30-20.30
Föstud. kl. 22.30-23.30
Laugard. kl. 16.00-17.00 og kl. 22.30-23.30
Landsliðssæti
auglýst til sölu
Val í, landslið Fimleikasam-
bands íslands stendur nú yfir.
I landsliðinu sl. vetur voru sex
stúlkur úr Fimleikafélaginu
Björk. Kínverski ráðgjafinn og
landsliðsþjálfarinn Chen
Shengjin er nú með annan fót-
inn í Bjarkarhúsinu við val á
stúlkum í landsliðið. Fimleika-
sambandið hefur tekið til þess
ráðs í fjáröfiunaskyni að aug-
lýsa landsliðssætin til sölu.
Til að fyrirbyggja strax mis-
skilning, þá eru sætin auglýst
þannig til sölu, að fyrirkr. 26.000
geta einstaklingar, fyrirtæki og
stofnanireignað sérlandsliðssæti
veturinn 1991-1992. Þegarsætin
verða seld verður dregið um
einstaklinga og geta þá viðkom-
andi eignað sér þann landsliðs-
mann. Með „kaupunum" fær
styrktarþegi _ fjóra miða á alla
sýningar og Islandsmót, auk þess
að vera getið í leikskrám og
fréttabréfum FSI.
Keppnishópur Bjarkanna er á
myndinni hér að ofan, en sex
þeirra voru í landsliðinu, þ.e.:
Nína Björg, Steinunn, Þórey,
Elva Rut, Ragga Dís og Erla.
Starfsemi Bjarkanna er í
miklum blóma. 270 iðkendur eru
ífélaginuogerþaðmeðþví mesta
frá upphafi vega. I byrjun nóv-
ember fer tíu stúlkna hópur í
Norðurlandakeppni, þ.e. í hópa-
keppni.
I vetur eru í fyrsta sinn æfingar
fyrir 4-6 ára böm, stráka og
stelpur. Æft er einu sinni í viku.
Punktar
Haukastelpunum í hand-
boltanum hefur ekki gengið
vel til þessa á Islandsmót-
inu. Þær hafa tapað öllum
sínum leikjum, en liðið er
mjög ungt og á örugglega
eftir að gera betur.
•
Stöllum þeirra í körfu-
boltanum hefur ekki heldur
gengið eins og skyldi og
unnið einn leik en tapað
tveimur. Kvennaflokkurinn
hefur verið í fremstu röð
undanfarin ár.
Guðjón Guðmundsson,
sem hefur þjálfað og leikið
með Haukum í fótboltanum
undanfarin þrjú ár, mun
þjálfa lið Dalvíkur næsta
sumar.
•
FH-ingar voru þriðju í
röðinni af þeim sem fengu
flesta áhorfendur á heima-
leiki sína í fótboltanum í
sumar. Þeir fengu rúmlega
700 manns að meðaltali á
leik. Voru aðeins Fram og
KR með fleiri áhorfendur.
•
Henning Henningsson,
fyrirliði Haukanna í
körfuknattleik, hefur ekki
getað leikið með félögum
sínum í seinustu tveimur
leikjum vegna slæmrar
magakveisu. Þurfti þessi
annálaði baráttuhundur að
þiggja næringu í æð í nokkra
daga. Við vonum að hann
hressist fljótt og vel.