Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 31.10.1991, Page 4

Fjarðarpósturinn - 31.10.1991, Page 4
BflRDMt phsfítnnn RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: FRÍÐA PROPPÉ AUGLÝSINGASTJÓRI: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR ÍÞRÓTTIR: ÞÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON DREIFINGARSTJÓRI: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR LJÓSMYNDIR OG ÚTLIT: FJARÐARPÓSTURINN INNHEIMTUSTJÓRI: SIGURÐUR GÍSLI BJÖRNSSON PRENTVINNSLA: FJARÐARPÓSTURINN OG BORGARPRENT SKRIFSTOFA FJARÐARPÓSTSINS ER AÐ BÆJARHRAUNI 16, 3. HÆÐ, PÓSTFANG 220 HAFNARFIRÐI. OPIÐ ER ALLA VITRKA DAGA FRÁ KL. 10-17, SÍMAR 651945 (SIMSVARI EFTIR LOKUN) 651745.FJARÐARPÓSTURINN ER AÐILI AÐ SAMTÖKUM BÆJAR- OG HFRARSFRFTTARI AFIA_ Nýtt Víðismál í Firðinum? Fréttir af hugsanlegum kaupum bæjarsjóös á Bark- arhúsinu hafa fengiö dræmar undirtektir margra, t.d. eru starfsmenn á Slökkviliösstööinni lítiö hrifnir af hug- myndinni. Dæmin um kaupin á Víöishúsinu í Reykjavík og nýverið kaup menntamálaráöuneytisins á Slátur- félagshúsinu í Laugarnesi, sem breyta á í Listaháskóla, hræöa. Menn þykjast gera góö kaup og aö hægt sé að haga seglum eftirvindi, þ.e. hefjast handa viö nauðsynlegustu bráöabirgöaframkvæmdir, en síöar eigi aö ganga frá og fullgera. Reynslan sýnir hins vegar aö kostnaöurfer úr böndum og þegar upp er staöiö er hann oftar en ekki langtum meiri en allar áætlanir geröu ráö fyrir og oftast meiri en ef byggt heföi verið nýtt hús. 200 millj. kr. eða 300? í áætlun um kaup á Barkarhúsinu er reiknað meö, aö til þess aö kaupa og flytja starfsemi þriggja bæjar- stofnana, þ.e. Slökkviliösins, Áhaldahússins og hluta Rafveitunnar, inn í húsiö, þurfi að áætla um 200 millj. kr. Þeir sem vel þekkja til segja hins vegar, aö reikna megi meö kostnaði upp á a.m.k. 300 millj. kr. Auövitaö má benda á tekjur á móti, þ.e. söluandvirði núverandi slökkviliösstöðvar, Áhaldahúss og hluta af húseignum Rafveitunnar. Stækkar bæjarbáknið? Þaö erafturá móti önnurspurning, sem vaknað hefur á ný viö þetta hugsanlega húsakaupamál. í hverju á bærinn að vasast? Af hverju á bærinn aö vera aö reka vörubifreiðir og önnur þau tæki, sem bæjarbúar hafa atvinnu af aö reka í einkarekstri? Hvaö kostar þaö bæjarbúa aö eiga þessi tæki í þann takmarkaða rekstur, sem bærinn nýtir þau til? Er ekki hætta á, aö viö kaup á húsnæöi, sem er 4.200 fermetrar aö grunnfleti, þenjist þetta bæjarbákn út. „Upphefst nú þulann um að gera okkur atvinnulaus" kann nú einhver starfsmanna Áhaldshússins að segja. En hafa þeir litið á máliö frá þeirri hlið, aö kannski væri þaö kostnaðarminnst fyrirbæjarsjóö, þ.e. bæjarbúasem eiga þann sjóö og þar meö viðkomandi bæjarstarfsmenn, aö starfsmönnum Áhaldshússins væri einfaldlega gefin tækin sem þeir vinna á og síöan yröi vinnan, sem þau eru notuð viö, keypt af þeim sem sjálfstæðum atvinnu- rekendum? - Gaman væri aö fá þaö dæmi reiknað út til enda. 4 Rætt við Sverri Ólafsson, listamann í Straumi, um Listahátíðina í Straumi og þá miklu athygli sem „Ljótasta dæmið sem ég þekki um spillingu og mis- notkun valdsins“ Listahátið Hafnarfjarðar, sem listamenn gengust fyrir 1 sumar, hefur vakið athygli víða um heim. Því til sönnunar hefur Sverri Ólafssyni, myndhöggvara og einum aðalforsvarsmanni hátíðarinnar, verið boðið að halda fyrirlestra um hátíðina víða um heim. Hann er beðinn að fjalla þar um listir á Islandi og sérstaklega um lista- miðstöðina Straum og Hafnarfjörð, ennfremur um Listahátíðina í sumar og al- þjóðlegu vinnustofuna, sem sett var upp samhliða hátíðinni. Sverrir fór utan á sunnudag til Sante Fe í New Mexico þar sem hann flytur fyrsta fyrirlesturinn og ræddi tíðindamaður Fjarðarpóstsins við hann rétt áður en hann fór utan. Pað er ekki aðeins að Listahátíðin hafi vakið athygli ytra. Listahátíðin og hvernig listamenn hafa staðið að verki hér í Firðinum hefur einnig vakið óskipta athygli hérlendis og einblína íslenskir listamenn nú hingað í von um að dám verði dregið af þróun mála hér. Sverrir hefur mjög ákveðnar skoðanir á því hvar skórinn kreppir að stöðu listarinnar. Hann segir m.a., að listamenn séu að springa úr reiði vegna ástandsins á Kjarvalsstöðum, Gunnar Kvaran haldi þar um „kommúnistískri krumlu sinni“ enda kalli íslenskir listamenn Kjarvalsstaðir nú aldrei annað en Kvaransstaði. Sverrir sagði fyrst varðandi árangurinn af Listahátíðinni í sumar, að þeir erlendu listamenn, sem þátt tóku í alþjóðlegu vinnustofunni og síðan í hátíðinni sjálfri, en það voru höggmynd- alistamenn að þessu sinni, væru þeir bestu sendiherrar sem Island ætti þessa stundina. Hróður Hafnarfjarðar og landsins hefði flogið víða. Því til staðfestingar sýndi Sverrir blaðamanni möppu fulla af bréfunt, sem innihalda boð um að halda fyrirlestra og sýn- ingar vítt og breytt um heim. Varðandi þá athygli sem Lista- hátíðin í sumar fékk, sagði S verrir einnig, að gestir á hátíðinni hefðu verið margir tugir þúsunda. Sverrir er nú, þegar þetta viðtal birtist, í Santa Fe í New Mexico þar sem hann flytur fyrirlestur um Listahátíðina og alþjóðlegu vinnustofuna á alþjóðlegri ráð- stefnu. Ráðstefnan fjallar um listir og almenning og ber titilinn „On common ground“. Hana sækja fleiri hundruð manns. Þreyttir á listsagn- fræðingahátíðum Frá Santa Fe fer Sverrir beint til Mexico þar sem hann verður við vinnu fram í endaðan nóvember. Hann vinnurþar verk, sem hann setur upp á einka- sýningu í EXPOVITVUM í marsmánuði. Þetta er mjög þekkt alþjóðlegt einkagallerí og sýnir Sverrir 10 skúlptúrverk. I Mexico hefur hann ennfremur verið beð- inn að halda sams konar fyrir- lestur við Háskólann í Mexico- borg og listaskólana þar í borg, Esmeraldaskólann þar sem Diego Rivera, Frida Kahlo Sequeiros og fleiri stunduðu nám og ríkislista- skólann, Esuela National de Artes Plásticas. Frá Mexico fer Sverrir til Florida þar sem hann flytur fyrirlestur í Háskóla Pennsacola á vegum menningaryfirvalda þar, sem standa að ráðstefnum í sam- vinnu við menningaryfirvöld í New Orleans, Atlanta og Mobil Alabama. Þar hefur Sverrir verið beðinn um að aðstoða við skipu- lagningu listahátíðar, sem á að verða með svipuðu sniði og Listahátíð Hafnarfjarðar. Erind- rekar yfirvalda á þessum slóðunt komu til Hafnarfjarðar í surna gagngert til þess að fylgjast með Listahátíð í leit að nýrri forskrift fyrir slíka uppákomu. Sverrir sagði í þessu sambandi: „Ohætt er að segja, að víða um heim eru menn orðnir langþreyttir á rándýrum listsagnfræðingahá- tíðum, sem sjaldnast eru í nokkru samhengi við það sem raunveru- lega er að gerast í listum, en byggja mikið frekar á óskhyggju bissnessmanna í þeirra röðum.“ Stefnt er að því að hátíð þessi verði haldin sumarið 1993. Til Mexico er boðið á ný í lok næsta árs. Þá verður sett upp al- þjóðleg sýning úti í eyðimörkinni, þ.e. í norður Mexico í Chihu- ahuafylki. Það verður svokölluð umhverfisvæn sýning. Öll lista- verkin verða búin til úr sólbök- uðum leir og innfæddir Indíánar fengir til að búa þau til í samvinnu við listamennina. Hér er aðeins fátt eitt talið, því Sverri hefur einnig verið boðið, ásamt Guðnýju Magnúsdóttur, Borghildi Óskarsdóttur og Guð- rúnu Kristjánsdóttur, að sýna í Kansas City, Flaggstaff í Arizona og víðar í Bandaríkjunum. Þá hefur honum verið boðið að sýna áítalíu 1993, í Frakklandi og e.t.v. í Sviss. Ennfremur í Japan 1994. Nýjasta boðið sem Sverrir hefur borist er að sýna á „The Hakone Open-air Museurn" í Tokyo í Japan árið 1992. Það er verðlaunakeppni og sýning. Hafnarborg rís og vex - Hvað er okkur héma heima? Fáum við einhverja sýningu á verkumþínumíöllu þessuannríki erlendis? „Eg er ekki með neina sýningu fyrirhugaða á næstu árum. Það yrði þá helst í Hafnarfirði, Hafn- arborg, ef til þess kæmi“, svaraði hann. Sverrir sagði einnig, að ís- lenskir listamenn litu til Hafnar- fjarðar í von um betri tíma í málefnum menningar- og lista, og bæri þar að geta þáttar Hafnar- borgar. Hann sagði: „Þar hefur hlutunum verið komið fyrir þannig, að almenningur getur sjálfur notið, valið og hafnað. Pétrún Pétursdóttir, forstöðu- maður, hefur stjómað Hafnarborg með frábærum hætti, enda er það svo að Hafnarborg rís og vex, langir biðlistar eru eftir að sýna þar.“ - Við verðurn vör við það hér á Fjarðarpóstinum, þegar við tökum viðtöl við listamenn, sem eru að setja upp sýningar í Hafn- arborg, að þeir setja mjög út á Kjarvalsstaðir og telja erfitt, ef ekki ómögulegt, að komast þar að. Á sama tíma eru þeir mjög ánægðir með Hafnarborg og hvemig þar er staðið að verki. Hvað viltu segja um það? Kommúnistísk krumla Gunnars Augu íslenskra listamanna beinast nú mjög að Hafnarfirði, eins og ég sagði og ennfremur að því. hvemig okkur hefur tekist að gera listina að almenningseign. i

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.