Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Blaðsíða 2
Hafnarf jarðarhöfn vettvangur „togstríös" við Landhelgisgæsluna:
Kampavínsflaskan geymd milli ráðherrasímtala
Það stóðu yfir í Hafnarfjarðarhöfn um helgina óvenjuleg átök
í „togstríði“ við Landhelgisgæsluna. Þegar tíðindamaður
Fjarðarpóstsins kom um borð í Iialdur EA 108 frá Dalvík, sem
var um það bil að skipta yfir í nafnið Þór EA 108, var fjölskylda
og áhöfn útgerðarmannsins og skipstjórans, Snorra Snorra-
sonar, á fullu við að afmá Baldursnafnið af björgunarhringjum
og skipsskrokki og líina á og mála þess í stað nafnið Þór. Tíð-
indamaður kom nokkrar ferðir um borð um helgina þar sem
beðið var með kampavínsflöskuna tilbúna til nafngiftarinnar,
en á meðan gekk á hringingum frá samgönguráðherra og þing-
manni kjördæmis Snorra. Ráðherranum, Halldóri Blöndal,
virtist umhugað um, að Þórsnafnið færi ekki úr eigu gæslunnar.
Málinu lyktaði þó þannig, að Þór EA 108 sigldi úr höfn síðdegis
á mánudag. Landhelgisgæslan getur nú státað af einkarétti á
nafninu Baldri, sem verið hefur á skipum og bátum á Dalvík allt
frá árinu 1907. í mót hefur Gæslan klúðrað einkarétti sínum á
nafninu Þór, sem flestir tengja áreiðanlega hraustlegri fram-
göngu okkar í fyrrum þorskastríðum við Tjallana.
Saga þessa nafnastríðs er
skrautleg og má segja, að Þórs-
nafnið, sem nú erkomið á Baldur,
sé krókur á móti bragði. Skipa-
eigendur geta fengið einkaleyfi
á nöfnum skipa, en ef leyfishafi
nýtir nafnið ekki á eigið skip í
fimm ár missir hann það. Bald-
ursnafnið hefur verið á skipum frá
Dalvík allt frá árinu 1907. í
landhelgisstríðinu 1976 hafði
Gæslan afnot af togaranum
Baldri, sem ríkissjóðurkeypti frá
Dalvík. Skipið gat sér gott orð,
en nafnið kom þá fyrst á spjöld
sögu Landhelgisgæslunnar.
Síðasti einkaleyfishafi nafns-
ins á Dalvík var Aðalsteinn
Loftsson, en hann átti skip með
því nafni þar til hann seldi tog-
arann til Hafrannsóknarstofnun-
ar, sem fór síðan til landhelgis-
gæslu eins og fyrr segir. 1981
fékk Upsaströnd h/f togara frá
Englandi og var auðfengið leyfi
frá Aðalsteini að nota nafnið, en
aðalröksemdin fyrir nafngiftinni
var hversu lengi það hafði verið
á Dalvík. Það kom síðar í ljós, að
ÓlafurBjömssoníKeflavíkhafði
þá fengið einkaleyfið en hann
samþykkti einnig að það yrði
notað á umrætt skip, sem nú er
Þór hans Snorra. Þar sem Ólafur
nýtti ekki sjálfur nafnið féll leyfi
hans úr gildi og að því komst
Landhelgisgæslan og tók nafnið
Hulunni afÞórsnafninu var svipt afum stund íHafnarfjarðarhöfn,þannig að Ijósmyndari Fjarðarpótsins
gœti myndað áhöfn og fjölskyldur hennar. Þá var enn smávon um að „Baldur“ yrði málaður á ný yfir
Þór. Beðið var nýrrar símhringingar frá ráðherra.
Snorri við Þórsnafnið, ásamt
yngsta barnabarninu, henni
Söndru Sif.
með ofangreindum afleiðingum.
Snorri, núverandi eigandi
skipsins, var því kominn upp að
vegg með að láta nafnið til
Gæslunnar. Hann kannaði þá
skipanafnalistann og fann út, að
einkaleyfi Landhelgisgæslunnar
á Þórsnafninu var útrunnið og
sótti um, „kannski í þeirri von að
þeir vildu þá skipta“, sagði hann
sjálfur og fullvissaði blaðamann
um, að þeir myndu meira en
hamingjusamir mála Baldurs-
nafnið á skipið á ný.
Þó Gæslunni sé umhugað um
Baldursnafnið finnst mörgum
Þórsnafnið enn dýrmætara vegna
sögunnar. Snorri reyndi að semja
við forstjóra Gæslunnar og sagði
hann forstjórann ekki hafa staðið
við orð sín í þeim viðskiptum.
Um helgina var síðan ráðherra
kominn í málið og reyndi að
semja um skipti á ný, þ.e. að
Snorri fengi Baldursnafnið, en
gæslan Þórsnafnið, en ekkert
gekk. Snorri beið með kampa-
vínsflöskuna, en orðinn þreyttur
á „stríðinu“ og fannst tími til að
fara á sjó, eftir fjögurra vikna
stopp í Hafnarfjarðarhöfn vegna
vélarbilunar. Hann sigldi því úr
höfn á mánudag undir nýja
nafninu, Þór.
Varðandi nafnaskiptinguna
sagði Snorri, að sér þætti vænt urn
nafnið Baldur, það hefði reynst
happanafn. Hann og kona hans,
Anna, eiga tvíbura sem heita
Baldur og Bjöm. Hann kvaðst þó
einnig eiga bát sem heitir Kristján
Þór og átti áður Sæþór. “Það er
ekkert galið að láta skipið heita
Þór, fyrst þeir tóku Baldur af
mér“.
Snorri sagðist aðspurður vera
mjög ánægður með alla aðstöðu
við Hafnartjarðarhöfn og kvaðst
nota hana mikið til landana.
Við spurðum hvort hann væri
ekki óánægður með kvótann, eins
og aðrir útgerðarmenn. „Það er
nú vafamál hvort við þurfum að
kvarta yfir kvótaleysi. Ætli það
verði ekki frekar fiskleysið",
sagði Snorri Snorrason að lok-
um.
Við ljúkum þessari smásögu
af togstríði við Landhelgisgæsl-
una og óskum áhöfninni á Þór EA
108 farsældar undir nýju nafni.
Hér að neðan er „hugdetta“ frá
Haraldi Zophaníassyni á Dalvík,
sem gefin var við komuna á
Baldri, en hún hangir skrautrituð
í borðsal skipsins.
Hugdetta við
komu Baldurs
Aldrci hlaki við Baldri
bylgjur, en goðarfylgjw
jafnan standi í stafni
strandi, varni og grandi
Ih'illn frá ahöfn alln
cigi á nutt semdtgi
vtki. sem yfir vaki
vei í skini
Glaðningur
vikunnar
Eftirtalinn áskrifandi
Fjarðarpóstsins fær
heimsenda ókeypis 16
tommu pizzu að eigin
vali, ásamt einum og
hálfum líter af Coke.
Gildir til 5. des. n.k.
Hermann
Þórðarson
Álfaskeiði 117
Fullt nafn? Hafdís Guð-
mundsdóttir.
Fæðingardagur? 17. maí
1937.
Fæðingarstaður? Fáskrúðs-
fjörður.
Fjölskylduhagir? Eiginkona,
fjögurra bama móðir og sjö
barna amma.
Bifreið? Toyota Carina árg.
'88.
Starf? Starfsmaður í Suður-
bæjarlaug.
Fyrri störf? Matráðskona á
dagheimilinu Víðivöllum.
Helsti veikleiki? Reykingar.
Helsti kostur? Skapgóð.
Uppáhaldsmatur? Vel mat-
reiddir sjávarréttir.
Versti matur sem þú færð?
Hrossabjúgu.
Uppáhaldstónlist? Elvis
Presley er alltaf í uppáhaldi og
síðan er V íði vallakórinn gamli
góður, ásamt hljómsveitinni
Eról.
Uppáhaldsíþróttamaður?
Guðmundur Hilmarsson F.H.
Hvaða stjórnmálamanni
hefur þú mestar mætur á?
Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur.
Hvert er eftirlætissjón-
varpsefnið þitt? Islenskir
skemmtiþættir.
Hvaða sjónvarpsefni finnst þér
leiðinlegast? Kúrekamyndir.
Uppáhalds útvarps- og sjón-
varpsmaður? Stefán Jón Haf-
stein.
Uppáhaldsleikari? Margrét
Helga.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Regnmaðurinn.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Nýt þess að vera til.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Þórsmörk.
Hvað metur þú mest í fari
annarra? Einlægni og hrein-
skilni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Húmorslaus
manneskja og hrokafull.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta og hvers vegna? Hróa
hött, vegna mannkosta hans.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst við í skóla? íslendinga-
sögurnar.
Hvað myndir þú vilja í
afmælisgjöf? Nothæfa flík.
Ef þú ynnir 2 millj. kr. í
happadrætti, hvernig myndir
þú verja þeim? Gleðja fjöl-
skylduna mína.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndir þú helst vilja
vera? Það langar mig ekki til að
vera.
Ef þú værir í spurningakeppni,
hvaða sérsvið myndir þú velja
þér? „Úr ýmsum áttum“.
Hvað veitir þér mesta af-
slöppun? Sumarfrí á sólar-
ströndu.
Hvað myndir þú gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag?
Byggja íþróttahús yfir Hauk-
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Hafnfirð-
ingur einn var mættur í
Háskólann og var þar spurður
hvort hann hefði valið sér
námsgrein. „Fæ ég ekki stól
og borð eins og hinir?“ spurði
hann á móti.