Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Blaðsíða 5

Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Blaðsíða 5
Kompan Djúpt á dýpkun Dýpkunartæki Dýpkunar- félagsins h.f. eru enn við Norð- urland, en samkvæmt verká- ætlun átti að hefja dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn þann 15. október sl. Verklok eiga að vera 31. janúar n.k. Á fundi hafnar- stjómar 20. nóvember sl. var á- kveðið að gefa verktaka ákveð- inn frest til að hefja verkið. Lögn fyrir ís niöur á bryggju Sjólastöðin h.f. hefur með bréfi til hafnarstjómar farið fram á að að fá leyfi til að leggja lögn fyrir ís frá ísklefa sínum við Strandgötu og út á Oseyrar- bryggju. Bréfinu fylgdi upp- dráttur af lagnarstæðinu. Hafnarstjóm tók jákvætt í þessar hugmyndir og fól starfs- mönnum hafnarinnar að fá um- sögn tæknideilar bæjarins unt málið og útfæra þær nánar. Háhýsislóðar- úthlutun frestað Að beiðni bæjarstjóra var úthlutun lóðar undir háhýsi við Háholt frestað á síðasta bæjar- stjómarfundi. Samkvæmt heimildum Fjarðarptóstsins mun ætlun bæjarstjóra hafa verið að úthluta Hagvirki lóðinni, að á- kveðnum skilyrðum uppfyllt- um. Svör höfðu ekki borist frá fyrirtækinu fyrir síðasta bæjar- stjómarfund og því fór bæjar- stjórinn fram á frestun. „Fullfær um að sinna og vinna“ Ráðning Kristjáns Guð- mundssonar, fyrrverandi bæj- arstjóra í Kópavogi fór fyrir brjóstið á bæjarráðsmönnum minnihlutans. Magnús Jón Ámason, Alþýðubandalagi bókaði í bæjarráði vegna starfssamnings bæjarstjóra við Kristján: „Ég er andvígur fyrir- liggjandi samningi. Kristján Guðmundson hefur, þrátt fyrir nokkurra mánaða starf, ekki enn lokið því verki, sem bæjarstjóri réði hann upphaflega til. Sam- kvæmt fyrirliggjandi samningi á hann loks nú að fara að snúa sér að því verki, auk annarra nýrra starfa, sem félagsmála- stofnun og önnur embætti bæj- arins ættu að vera fullfær um að sinnaog vinna." „Ætti að aug- lýsa stöðuna“ Og bæjarráðsmenn Sjálf- stæðisflokksins bókuðu, einnig vegna ráðningar bæjarstjóra, Guðmundar Arna, á Kristjáni fyrrverandi bæjarstjóra í Kópa- vogi, til sértilgreindra starfa: „Við lýsum okkur andvíga fyr- irliggjandi ráðningarsamningi og teljum hann fyrst og fremst fela í sér viðbót við yfirstjóm bæjarins, án þess að leidd hafi verið nokkur rök fyrir nauðsyn þess. Ef um knýjandi nauðsyn er að ræða, væri rétt að skilgreina starfssviðið og auglýsa stöðuna síðan lausa til umsóknar." Grafíkmyndir í A. Hansen I veitingahúsinu A. Hansen stendur nú yFir sýning á grafík- inynduin eftir inyndlistarmanninn Kristberg O. Pétursson, en hugmyndin er að vera með myndverkasýningar í A. Hansen á mánaðarfresti. Það eru tíu myndir sem Krist- haldið einkasýningar. Þærhelstu bergur vann að árið 1986 í voru í Hafnarborg 1984, Ný- Hollandi, og hafa ekki áður verið listasafninu 1987 og í Gallerí sýndar, sem hann sýnir í A. einn-einn 1990. Hansen að þessu sinni. Sýningin stendur til 8. des. Kristbergur hefur tekið þátt í n.k. ýmsum samsýningum sl. tíu ár og „Bændur á hvunndags- fötum“ er komin út Bókin Bændur á hvunndags- fötum, þriðja og síðasta bindi samnefndra viðtalsbóka Helga Bjamasonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, er komin út. I bókinni eru viðtöl við fjóra bændur, sem allir hafa frá við- seltbl^ lesið blað burðaríku lífi að segja. Bænd- umir eru Egill Olafsson á Hnjóti, Eiríkur Sigfússon á Sílastöðum, Bjöm Sigurðsson í Úthlíð og Egill Jónsson á Seljavöllum. Hörpuútgáfan á Akranesi gefur bókina út. Hún er 172 blaðsíður að stærð, prýdd um 100 ljósmynda, auk yfirlitskorta af heimabyggð viðmælenda. í bókinni er nafnaskrá yfir öll þrjú bindin. Bókin er unnin að öllu leyti í prentsmiðjunni Odda h.f. Kristberg Ó. Pétursson Aðventan í nánd! Verið velkomin í glœsi- lega blómaverslun Sjón er sögu ríkari BLÓMABÚÐIN D BÆJARHRAUNI 26, SIMI 53848 50202 gOÐAR TJPPSKRIFTIRs Súkku/aóic/nkkir 1. I líter mjólk 100 gr. tertu-hjúpur. dökkur Hitað saman. gott að láta aðcins sjóða. einnig ntá drvgja mjólkina með vatni. salt eftir smekk. Krem fyrir tertur og kökur 1. 100 gr. smjör 100 gr. tertu-hjúpur brætt og kælt. 4 eggjarauður hrærðar út í. ein í einu og 60 gr. flórsykur. hrært vel. má þevta. 2. ^MEÐ MÓNU TERTG HJÚP 1 2. I lítcr mjólk 150 gr. tertu-hjúpur. dökkur Hitað á sama hátt og no. I. cn þeyttur rjómi horinn með. eða látinn í hvern bolla. Bræðið rnRll' H.H'P \ið vægan hita og hrærið stöðugt i á meðan. (Fkki er nauðsvn- legt að nota vatnsbað). SÚKKULÍKI I00.gr tertu-hjúpur 2 eggjarauður 2 matsk. rjómi 2 matsk. flórsvkur Eggjarauður og flórsykur þeytt saman. bráðnum tertuhjúpi og rjóma bætt út í. Súkkuiaðihráð. 100 gr. tertu-hjúpur. Brætt varlega. hrært stöðugt í. siðan er I matskeið af smjöri (mjúku) hrært saman við (má vera meira). látið volgt á kökuna. Skreytikrem. 100 gr. tertu-hjúpur. Brætt við \ægan hita. siðan er I 4 teskeið af vatni hrært vel saman \ið. Síðan er þetta látið í sprautu eða sprautupoka. og er þá tilbúið til skreyt- inga. látið ekki bíða. mótia SÆLGÆTISGERÐ STAKKAHRAUNI 1 HAFNARFIRÐI SlMI 50300 - 50302 S

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.