Fjarðarpósturinn - 28.11.1991, Page 10
ORÐABELGUR:
Björgunarþyrla eða gæluverkefni?
Sárreiöur fyrrver-
andi sjómaður
skrifar:
„Það var ömurleg tilviljun, að
það skyldi bera upp á sama sól-
arhring að yfir stóð stórglæsileg
landssöfnun fyrir landgræðslu og
í eyrum landsmanna dundi
hörmuleg slysafrétt, þar sem
fimm ungir menn fórust rétt við
bæjardymar í Grindavík.
Bátinn Eldhamar rak upp í
klappimar á Hópsnesi við
Grindavík, án þess að björgun yrði
við komið. Veður var slæmt og
brim mikið, svo að björgun frá
landi reyndist ekki möguleg og
ekki var heldur við komið björgun
frá sjó, þó að björgunarbátur
Grindvíkinga væri kominn á
staðinn. Það fylgdi fréttum, að
björgunarþyrla Landhelgisgæsl-
unnar hefði verið biluð vestur á
ísafirði. Það fylgdi einnig frétt-
um, að vegna misskilnings hefði
þyrla Varnarliðsins ekki komið
á slysstað fyrr en næstum tveimur
tímum eftir strandið. Þó gerðu
skipverjar aðvart sjö mínútum
áður en skipið lenti upp í klett-
unum. Öllum var Ijóst, að slys var
yfirvofandi, enda bmgðust
björgunarmenn við snarlega.
Bágt er að trúa, að um mannleg
mistök geti verið að ræða við
beiðni um þyrlu frá Vamarliðinu,
því að ekki veit almenningur
betur en að fjarskiptatækni sé sú
fullkomnasta sem völ er á nú á
dögum.
Mannslífin
forgangsverkefni
Ekki skal fullyrt, hvort björgun
mannanna hefði tekist með öfl-
ugri þyrlu eins og á stóð en það
var þó eina vonin.
Það er langt síðan, mörg ár, að
forystumenn sjómannasamtaka
beindu þeim tilmælum til
stjórnvalda að gera kaup á full-
komnustu björgunarþyrlu að
forgangsverkefni. Mannslíf væru
í húfi. Bænaskrár og áskoranir frá
fjölda fólks til þingheims hafa
verið sendar en án nokkurra við-
bragða á þeim bæ. Eina skýringin
er sú, að samdráttur sé í þjóðar-
framleiðslu og aðgát verði að
viðhafa í eyðslu og fjárfestingu.
En þrátt fyrir samdrátt virðist
margt vera mögulegt sem kostar
peninga. Viðgerð á Þjóðleikhús-
inu sem er nýafstaðin að hluta,
kostar þegar sem svarar einu
þyrluverði. Og sá hópur manna
er til, ef marka má fréttir, sem
telur að þrátt fyrir samdrátt væri
forsvaranlegt að gera þar fram-
haldsviðgerðir fyrir aðra eins
upphæð. Það mætti skrifa langt
mál um eyðslu opinberra aðila í
perlur, ráðhús, jarðgöng og rán-
dýra ráðherrabfla. Og að hugsa
sér alla eyðsluna í nafni þess sem
kölluð eru menningarmái. En það
er víst forgangsröðin, sem skiptir
máli og hvað hefur yfir sér
glæsibrag og verður að hugsjón-
um úti í þjóðfélaginu.
Það eru mýmörg dæmin sem
nefna mætti um fjárfestingar og
eyðslu síðan þyrlukaup bar fyrst
á góma og hafa notið þeirrar náðar
að komast í forgangsröðina að
mati stjómmálamanna.
Hugsjónir í
augum fyrirfólks
Auðvitað eru þau mörg brýnu
verkefnin sem bíða úrlausnar í
okkar litla samfélagi og hafa sum
verkefnin orðið að hugsjónum í
augum fyrirfólks sem og al-
mennings og fjölmiðla sem hafa
hrifist með. Landgræðsla og
skógrækt eiga sér marga aðdá-
endur enda hlotið náð í augum
landsfeðra. Auðvitað er vemdun
lands og gróðurs göfugt verkefni,
sem á athygli og umhugsun skilið.
En þar eru þó ekki mannslíf í
húfi.
Þess vegna er vikið á ný til
upphafs þesssarar greinar, að það
var nöturleg áminnig, að það
skyldi bera upp á sama sólar-
hringinn hið hörmulega sjóslys
við Grindavík og glæsilegu
hljómleikamir í Perlunni, sem
sjónvarpað var til allra lands-
homa. Ekki skal kastað rýrð á þá
glæsilegu hljómleika sem haldnir
vom af góðum hug. En það verður
að umhugsunarefni að það er sárt
að sjómenn skuli ekki eiga slíka
fulltrúa og trausta málsvara, til
dæmis á meðal listamanna og
fjölmiðla, til að vekja áhuga á að
safna fé til að tryggja enn frekar
öryggi sjómanna.
Ríó tríó stóð glæsilega að verki
á sínum hljómleikum með for-
ystufólk að gestum, sem ljúflega
greiddu aukreitis fyrir matinn
sinn til að styrkja landgræðsluna.
Það er nefnilega búið að gera
ræktunarmálin, landgræðslu og
skógrækt að gæluverkefni með
væmnu snobbi. Þess vegnafáþau
verkefni forgang bæði með
frjálsum framlögum almennings
og í opinberum stuðningi.
Skyldi vera langt í land, að
sjómenn eignist slíka velunnara
sem reiðubúnir eru að opna augu
almennings og stónmmálamanna
til að stuðla að þyrlukaupum af
fullkomustu gerð?
Geturöu sofiö
á meöan?
Viðstaddur ráðherra í Perlunni,
Eiður Guðnason, var spurður um
framlög í framtíðinni til land-
græðslu og svarið var eitthvað á
þá leið, að þó að á móti blási í
ríkisfjármálum um stundarsakir
þá skapaðist kannski tóm til að
endurskoða forgangsröðina í
framkvæmdum í þjóðfélaginu.
Auðvitað var hann með land-
græðsluna í huga svipað og fyr-
irspyrjandinn. En skyldu þyrlu-
kaup koma til álita í nýrri og
endurskoðaðri forgangsröð á
framkvæmdum?
Það var sárt að sjá á bak ungum
mönnum í hafið, ekki síst ef dauða
þeirra bar að höndum hugsanlega
vegna vöntunar á fullkomnustu
björgunartækjum og að vöntun
þeirra er vegna þess að peninga
skortir og almennur áhugi á að afla
þeirra erekki nægur. Skyldi þurfa
fleiri slys til að vekja þingheim til
umhugsunar eða almenning og
hugsjónafólk til athafna?
Hins vegar ef síðbúin þyrla
Vamárliðsins að þessu sinni er
vegna togstreitu björgunaraðila
um tilkynningar sín í millum þá
þurfa skipulagsmál björgunarað-
ila í heild rækilegrar endurskoð-
unar við.
Að lokum. Ríó tríó söng
glæsilega: Geturðu sofið á meðan
landið fýkur burt? Þá vaknar sú
spuming, hvort við getum sofið
á meðan á vantar, að fyllstu
kröfum um öryggi sjómanna, sem
og annarra, er ekki fullnægt eins
og kostur er?
Sárreiður fyrrverandi
sjómaður“
Gunnskólar
Hafnarfjarðar
óska aö ráða:
Uppeldisfulltrúa í Setbergsskóla
Um er aö ræöa 50% starf til aðstoðar viö fatlaða
nemendur.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri eða yfirkennari í
síma 651011.
Líffræðikennara í Víðistaðaskóla
Vegna forfalla vantar nú þegar kennara til að kenna
líffræði í unglingadeildum Víðistaðaskóla.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri eða yfirkennari í
síma 52911.
Skólafulltrúinn í Hafnafirði
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar
Montessori-
þróunarstarf
Óskum eftir starfskrafti hálfan daginn. Uppeldis-
menntun æskileg.
Áhugi á að taka þátt í uppbyggingu Montessori-
deildar er skilyrði.
Frekari upplýsingar veitir Sigurlaug Einarsdóttir,
leikskólafulltrúi, í síma 53444 eða Auður Karlsdóttir,
leikskólastjóri, í síma 650499.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
6 A X A A A sXXVXá
V erzlunarmannafélag
Hafnarfj arðar
hvetur Hafnfirðinga til að beina viðskiptum
sínum til fyrirtækja í eigin bæjarfélagi.
10