Fjarðarpósturinn - 08.12.1994, Qupperneq 3
FJARÐARPÓSTURINN 3
Deilt um auknar álögur á bæjarbúa á bæjarstjórnarfundi
Meirihlutinn sammála um að
auka álögur um 80 milljónir
"Kom okkur á óvart miðaö við fyrri yfirlýsingar," segir Ingvar Viktorsson
Tekjuhlið fjárhagsáætlunar
bæjarins fyrir næsta ár var til um-
ræðu og afgreiðslu á bæjarstjórn-
arfundi s.l. þriðjudag. Meirihlut-
inn hefur náð samkomulagi um að
hækka álögur á bæjarbúa um 80
miiljónir króna og er nánar greint
frá þeim tillögum hér á miðopnu
blaðsins. Ingvar Viktorsson oddviti
minnihlutans í bæjarstjórn segir
að þessar hækkanir komi þeim á ó-
vart niiðað við fyrri yfirlýsingar
meirihlutans um að álögur á bæj-
arbúa yrðu ekki hækkaðar. Magn-
ús Jón Arnason bæjarstjóri segir
að bæjarsjóður verði að borga
skuldir sínar og þessar auknu álög-
ur séu vegna óstjórnar fyrri meiri-
hluta Alþýðuflokks í fjármálum
bæjarins.
Ingvar Viktorsson tók fyrstur til
máls á fundinum og lagði hann m.a.
fram breytingartillögur frá Alþýðu-
flokki sem fólust m.a. í að útsvar yrði
óbreytt eða 8,9%. Hjá Ingvari kom
fram Alþýðuflokksmenn gætu sætt
sig við hækkun lóðaleigu í 1% af
fasteignamati ef útsvar yrði lækkað á
móti niður í 8,6%. Hann sagði að Al-
þýðuflokkurinn hefði á sínum tíma
látið gera könnun á hækkun lóða-
leigu og það hafi ætíð verið hugmynd
þeirra að lækka útsvarið á móti.
Ingvar gerði einnig að umræðuefni
að meðan álögur á bæjarbúa hækk-
uðu um 80 milljónir króna væri létt á-
Mikill samdráttur í lönduðum afla
Hefur minnkað um
20.000 tonn frá 1991
Mikill samdráttur hefur orðið í
lönduðum afla íslenskra skipa í
Hafnarljarðarhöfn á síðustu þrem-
ur árum. Aflinn náði hámarki árið
1991 þegar tæplega 50.000 tonn
komu á land hér en það sem af er
þessu ári er magnið rúmlega
29.000 tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá hafn-
arskrifstofunni eru nokkrir samverk-
andi þættir sem gera það að verkum
að aflinn dregst þetta mikið saman.
Viðar Þórðarsson hafnsögumaður
segir að nefna megi að togarinn Ven-
us hefur ekkert siglt síðan í aprfl,
Sjólaskipin hafa að hluta til landað
afla sínum annarsstaðar, utanbæjar-
togarar hafa ekki landað hér í jafn-
miklum mæli og áður og túrar hafa
lengst með tilkomu Smuguveiðanna.
"A síðustu tveimur árum hafa þetta
orðið allt að tveggja mánaða veiðitúr-
ar hjá þeim togurum sem farið hafa í
Smuguna," segir Viðar. "Og afla-
brögðin þar hafa verið misjöfn."
Nú leggja fimm togarar upp afla
sinn í Hafnarfirði en einn þeirra,
Sjóli, hefur verið seldur norður og
ekki víst hvort hann leggur upp í
Hafnarfirði eða Reykjavík í framtíð-
inni. Einnig liggur fyrir að Venus
mun verða í slipp nær helminginn af
næsta ári. Af þessum sökum á Viðar
ekki von á að landaður afli í Hafnar- _ _ „ .....
firði muni aukast á næsta ári Togannn Venus verður i slipp nær helnunginn al næsta an.
lögum af atvinnurekstri upp á rúm-
lega 10 milljónir króna, þ.e. sérstök
álagning á atvinnurekstur er lækkuð
úr 1,4% og í 1,25%.
Þarf auknar tekjur
Magnús Jón Amason bæjarstjóri
tók næstur til máls og hann taldi fulla
ástæðu til að fagna því ef Alþýðu-
flokkurinn vildi semja um hlutina og
koma til móts við meirihlutann.
Magnús Jón sagði að með tillögum
meirihlutans væri verið að auka álög-
ur á bæjarbúa en ástæða þess væri að
bæjarsjóður þyrfti á auknum tekjum
að halda til að greiða fyrir fram-
kvæmdagleði Alþýðuflokksins á síð-
asta kjörtímabili. "Það þarf að greiða
fyrir það sem þegar hefur verið gert,"
segir Magnús Jón. Hann nefnir
einnig að hækkun útsvarsins nú úr
8,9% og í 9,2% nemi 3,37% en til
samanburðar megi geta þess að
meirihluti Alþýðuflokksins hækkaði
útsvar milli áranna 1991 og 1992 úr
6,7% og í 7,5% sem er 11,9%
hækkun..."Og svo tala Alþýðuflokks-
menn um stórfelldar skattahækkan-
ir," segir Magnús Jón. "Þessi hækkun
er gerð af illri nauðsyn því við verð-
um að ná rekstrarkostnaðinum niður í
70-75% af tekjum. Það ætti að vera
Alþýðuflokknum fullkunnugt að þær
tekjur sem bæjarsjóður hefur nú duga
ekki fyrir rekstri og afborgunum af
lánum og vöxtum."
Hvað varðaði léttari álögur á at-
vinnurekstur segir Magnús Jón að at-
vinnuástandið í bænum væri ekki
jafn gott og best verði á kosið og því
hefði verið reynt að koma til móts við
atvinnurekendur og hann kveinkaði
sér ekki undan því.
Óyndisúrræði
Meðal annara sem til máls tóku á
fundinum var Magnús Gunnarsson
formaður bæjarráðs. Hann segir að
það sé ekki spennandi fyrir meiri-
hlutann að þurfa að grípa til þess
óyndisúrræðis að hækka álögur á
bæjarbúa. Hinsvegar hafí ekki verið
um annað að ræða í stöðunni.
Tryggvi Harðarson frá Alþýðu-
flokki tók einnig til máls og hjá hon-
um kom m.a. fram að bæjarstjórnin
ætlaði að höggva í raðir fjölskyldna
en hlífa fyrirtækjum. Engar tillögur
um ráðdeild og spamað hefðu komið
frá meirihlutanum þann tíma sem
hann hefur setið. Hvað varðaði mikil
fjárútlát á tímum fyrri meirihluta
mætti nefna að Hafnfirðingum hefði
fjölgað mjög ört á síðustu fjórum
árum og að þessi fjölgun hefði kallað
á auknar framkvæmdir við gerð leik-
skóla, skóla, dagvistarheimila o.fl.
Fleiri tóku til máls en síðan var
gengið til atkvæða urn tillögur meiri-
hlutans og þær samþykktar.
Soffía sýnir í
Sparisjóðnum
Soffía Sæmundsdóttir hefur opnað
sýningu á verkum sínum í Sparisjóði
Hafnarfjarðar, Garðabæjarútibúi.
Mun sýningin standa út janúar á
næsta ári en þetta er önnur einkasýn-
ing Soffíu frá því hún útskrifaðist frá
grafíkdeild M.H.Í. árið 1991.
A sýningunni sem nefnist, "Leysing-
ar og loftkastalar", eru þrykk unnin á
árunum 1993 og 1994. Sýningin er
opin alla virka daga á opnunartíma
Sparisjóðsins.
Bón■ & þvottastöð
BStefáns
Dalshrauni 4
220 Hafnarfirði
Sími 5653252
Viðræður við Irving Oil
Virðist nokkur
alvara í þessu
Fulltrúar Irving Oil og forráð-
menn Hafnarfjarðar hafa átt við-
ræður um aðstöðu fyrir olíufé-
lagið í bænum þar á meðal hafn-
araðstöðu. Magnús Gunnarsson
formaður bæjarráðs segir að það
virðist vera nokkur alvara í þess-
um áformum.
"Þessar viðræður voru fyrst og
fremst þreifmgar þar sem fulltrúar
Irving Oil óskuðu eftir ýmiskonar
upplýsingum um höfnina og bæjar-
félagið," segir Magnús. "Við tókum
auðvitað vel á móti þessum mönn-
um og það liggur fyrir að þeir þurfa
aðstöðu sem við gætum látið þeim í
té."
Jólaljósin í
Hafnarfjarðarkirkjugarði
Ljósin verða afgreidd frá og með föstudeginum
16. des. til og með föstudeginum 23. desember.
Opið frá kl. 13 - 19 virka daga og
frá kl. 10-19 laugardag og sunnudag.
Lokað aðfangadag
Ingibjörg Jónsdóttir, sími 54004