Fjarðarpósturinn - 08.12.1994, Page 11
FJARÐARPÓSTURINN 11
Umsjón Jóhann G. Reynisson
Sigursælir Hafnfirðingar
í frjálsum íþróttum - litið inn á uppskeruhátíð 1994
Síðastliðinn föstudag hélt frjálsí-
þróttafólk í FH uppskeruhátíð við
lok árs í Kaplakrika. Mikiil fjöldi
sótti hátíðina og var þar saman
komið íþróttafólk úr öllum aldurs-
flokkum. A boðstólunum voru
gómsætar, heimabakaðar kræsing-
ar og þótti veislan takast hið besta.
Skemmtiatriði voru einnig úr „inn-
anstokki" frjálsíþróttamanna en
Hreiðar Gíslason, íþróttakennari og
frjálsíþróttakempa, lék á gítar frum-
samið lag og söng við það eigin texta.
A uppskeruhátíðinni voru veittar
viðurkenningar fyrir bestu afrek árs-
ins og ungu fólki veitt viðurkenning
fyrir ástundun, árangur og fram-
komu. Víst er að margir voru vel að
þessum síðustu einkunnarorðum
komnir en í aldursflokki 12 ára og
yngri urðu þau Jón Kristinn Waag-
fjörð og Hjördís Yr Ólafsdóttir hlut-
skörpust.
Fyrir bestan árangur fþróttafólks á
Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks í Hafnarfirði var fjölsótt og skemmtileg.
f
Rakel Gylfadóttir, þjálfari, ásamt þeim Jóni Kristni Waagfjörð og
Hjördísi Yr Ólafsdóttur en þau fengu viðurkenningar í flokki yngri en
12 ára.
Handhafar viðurkenninga í flokknum 13-16 ára; Sveinn Þórarinsson og
Sigrún Össurardóttir ásamt Haraldi S. Magnússyni og Dóru
Gunnarsdóttur.
Guðmundur Karlsson.
aldrinum 13-16 ára hlutu viðurkenn-
ingar þau Sveinn Þórarinsson í 15 ára
flokki, en hann hljóp 400 m grinda-
hlaup á 62.92 sek, og Sigrún Össurar-
dóttir einnig í 15 ára flokki fyrir að
stökkva 1,65 m í hástökki. Dóra
Gunnarsdóttir og Haraldur S. Magn-
ússon gáfu verðlaunabikara fyrir
þessi afrek.
Garpar FH
I karlaflokki varð Eggert Bogason
stigahæstur en hann kastaði 59,08 m
í kringlukasti. I kvennaflokki varð
Helga Halldórsdóttir stigahæst en
hún hljóp 100 m grindahlaup á 14.82
sek sem er Hafnarfjarðarmet.
Gefendur verðlauna eru böm Oli-
vers Steins Jóhannessonar, sem bóka-
búð Olivers Steins heitir eftir, en árið
1944 varð hann fyrstur íslendinga til
að stökkva yfir 7 m í langstökki.
Næst á eftir þeim Eggerti og Helgu
komu Guðmundur Karlsson
sleggjukastari, Sigurður T. Sigurðs-
son stangarstökkvari og Einar Krist-
jánsson hástökkvari og Rakel
Tryggvadóttir. hástökkvari, Sigrún
Össurardóttir hástökkvari og Helen
Ómarsdóttir hlaupari.
Þess ber að geta að Guðmundur
Karlsson hlaut sérstök verðlaun fyrir
árangur sinn í sleggjukasti en hann
Eggert Bogason og Helga
tvíbætti íslandsmetið á árinu, kastaði
lengst 66,28 m.
Fjölmargir íslands-
meistarar
Frjálsíþróttafólk FH sótti þónokk-
ur gull í greipar íþróttaguðsins á ár-
inu. Fer listi yftr Islandsmeistara eft-
ir stafrófsröð hér á eftir:
Bjarni Þ. Traustason, langstökk,
spretthlaup, boðhlaup og grinda-
hlaup. Björn Traustason, boðhlaup.
Einar Kristjánsson, hástökk. Finn-
bogi Gylfason, millivl. hlaup og boð-
hlaup. Guðmundur Karlsson,
sleggjukast. Hjördís Yr Ólafsdóttir,
boðhlaup. Hilda G. Svavarsdóttir,
boðhlaup. Ingi Sturla Þórisson, boð-
hlaup. Jenný Lind Óskarsdóttir, boð-
hlaup. Jóhann Ingibergsson, boð-
hlaup. Jón Oddsson, spretthlaup,
langstökk og þrístökk. Jónas Hall-
gnmsson. langstökk, spretthlaup, há-
stökk og boðhlaup. Lilja Ó. Mart-
einsdóttir, boðhlaup. Kristinn Torfa-
son, boðhlaup. Kristján F. Ragnars-
son, boðhlaup. Magnús Haraldsson,
boðhlaup. Páll Ólafsson, kúluvarp,
lanstökk, þrístökk og hástökk. Ólafur
S. Traustason, þrístökk, spretthlaup
og langstökk. Rakel Tryggvadóttir,
þrístökk og hástökk. Sigurður Matth-
íasson, hástökk. Sigurður T. Sigurðs-
son, stangarstökk. Sigrún Össurar-
dóttir, hástökk. Silja Úlfarsdóttir,
spretthlaup. Stefán F. Guðmundsson,
boðhlaup. Steinn Jóhannsson, boð-
hlaup. Trausti Sveinbjömsson, sp/ett-
hlaup, þrístökk og kringlukast. Úlfar
Linnet, langstökk og þrístökk. Þor-
steinn Jónsson, hlaup. Valbjörn Þor-
láksson, hástökk og kúluvarp.
HAFNARFJARÐARBÆR
ÚTBOÐ
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í niðurbrot
steinsteypu, hreinsun og brottfluttning frá
“Einarsreit” í Hafnarfirði.
Gögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings
Strandgötu 6, Hafnarfirði.
Tilboð verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 13. 12 n.k. kl. 11:00,
að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Bæjarverkfræðingurinn í Hafnarfirði
HAFNARFJÖRÐIJR
ólatilboð!
á fallegum
blússum og peysum
í versluninni að
Bæjarhrauni 14.
Þegar verslað er vel!
Sími 653900