Fjarðarpósturinn - 15.06.1995, Side 8
Bæjarstjórn og Skógræktarfélagið gera samning
Til heilla fyrir Hafnfirðinga
Bæjarstjórn og Skógræktarfé-
lag Hafnarfjarðar hafa gert með
sér saming um ræktun og umsjón
með útivistarsvæðum. Samningur-
inn var undirritaður í þessari viku
en hann kveður m.a. á um að efnt
verður til víðtækrar samvinnu
milli uðilu um þróun, ræktun og
umhirðu útivistarsvæða bæjarins.
Yið undirritun sagði Magnús Jón
Árnason uð samningurinn væri til
heilla fvrir Hufnfirðinga en mikið
verk væri framundan í þessum
múlum. Björn Árnason bæjar-
verkfræðingur sagði að menn hefði
lengi dreymt um þennan samning
og væru í hjarta þakklátir fyrir
þetta framtak.
Fyrirmyndin að samningi þessum
hafa verið samningar sem Akureyri
og Skógræktarfélag Eyjafjarðar
gerðu um Kjamaskóg og Reykjavík-
ur við Skógræktarfélag Reykjavíkur
um Heiðmörk. Hafa þessir samning-
ar orðið báðum aðilum til hagsbóta.
Samkvæmt samningnum er gert
ráð fyrir að ræktunar- og útivistar-
svæðin ofan byggðarinnar verði ætl-
uð almenningi til umferðar og afnota.
Bæjarsjóður mun annast og kosta all-
ar samgöngur svo sem ökuleiðir,
gangstíga og áningarstaði eftir efnum
og ástæðum hverju sinni.
Gert er ráð fyrir að bæjarstjóm
veiti Skógræktarfélaginu árlegan
rekstrarstyrk sem tryggir að verulegu
leyti efnalega tilveru félagsins. Þá er
gert ráð fyrir að bæjarstjóm láti gera
rammaáætlanir til fimm ára og ítar-
legri framkvæmdaáætlanir til tveggja
ára.
Gert er ráð fyrir að vinnuskóli
bæjarins taki virkan þátt í starfmu og
nú eru til dæmis þrír vinnuflokkar að
störfum undir þeim formerkjum.
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri og Hólmfríður Finnbogadóttir formaður Skógræktarfélagsins skrifa undir.
V eitingahús
r. fúní fHboö
Rjómalöguð blaðlaukssúpa
Hvítlauksristað lambafile eða grísastei
með gráðostasósu og terta hússins
★
Rjómalöguð blaðlaukssúpa
Nautasteik með koníakpiparsósu
og terta hússins
Fjaröargötu 13 - 15 sr 565 5625
Lítil tíðindi af fundi um flotkví
Málið er í
biðstöðu
Eiríkur Ormur Víglundsson
framkvæmdastjóri Vélsmiðju
Orms og Víglundar segir að múl-
efni flotkvíar í Hafnarfirði séu í
biðstöðu eftir fund forráðamanna
vélsmiðjunnar og bæjarstjórnar í
síðustu viku. Á fundinum ítrekaði
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
þá afstöðu bæjarstjórnar að nauð-
synlegt væri að rannsóknir færu
fram áður en bæjarstjórn tæki
frekari ákvarðanir í málinu.
“Það kom lítið fram á þessum
fundi annað en að málið er enn í at-
hugun þar til niðurstöður úr rann-
sóknum liggja fyrir,” segir Eiríkur
Ormur. “Á meðan getum við ekkert
annað gert en beðið.”
Vélsmiðjan hefur tíma fram í
ágúst til að koma flotkvínni til lands-
ins en eftir þann tíma er ekki hægt að
fá tryggingu fyrir siglingunni með
hana til landsins. Það getur því farið
svo að vélsmiðjan brenni inni með
málið í ár.
Hvað varðar þær hugmyndir að
koma flotkvínni upp til bráðabirgða
innan hafnarinnar þar til varanlegur
samastaður fæst mun lítill hljóm-
grunnur fyrir því. Samkvæmt heim-
ildum Fjarðarpóstsins er litið þannig
á meðal bæjaryfirvalda að til lítils sé
að finna bráðabirgðalausn nema ör-
uggt sé að varanleg lausn á staðsetn-
ingu sé þegar fyrir hendi.
Rafgeymarnir
sem hent var
í Kjóadal
kært til
lögreglu
Eins og greint var frá í síð-
asta Fjarðarpósti fannst tölu-
verður fjöldi af rafgeymum
utan vegar í Kjóadal í síðustu
viku. Um var að ræða samtals
32 stykki af rafgeymum og
hefur bæjarverkfræðingur
kært þetta mál til rannsóknar-
lögreglunnar í Hafnarfirði.
Gissur Guðmundsson hjá
RLH segir að málið sé í rann-
sókn hjá þeim.
“Þama hefur einhver óvand-
aður hent þessu rafgeymum utan
vegar þannig að þeir sáust ekki
frá veginum sjálfum,” segir
Gissur. “Á þessum stað var bíl-
hræ fyrir og það er kannski
spuming hvort ekki þurfi að
hreinsa slíkt drasl jafnóðum og
það sést svo menn falli ekki í þá
freistni að bæta við rusli.”
Það er helst talið að rafgeym-
amir séu frá einhverjum aðila á
borð við bílapartasölu en sem
fyrr segir er nú leitað að eigenda
þeirra.
Fjórir bílþjófn-
aðir upplýstir
Ungur sf-
brotamaður
í fangelsi
Rannsóknarlögreglan í
Hafnarftrði hefur upplýst
fjóra bílþjófnaði og innbrot í
15 bíla í bænum á undanförn-
um vikurn. Það var ungur sí-
brotamaður sem viðurkenndi
að hafa staðið fyrir þessu og er
hann nú korninn í fangelsi.
Síbrotamaðurinn var á löngu
skilorði vegna fyrri afbrotamála
og þegar þetta upplýstist var
hann sendur í at'plánun. Að sögn
rannsóknarlögreglunnar viður-
kenndi hann ails átta bflþjófnaði,
þar af fjóra í Hafnarfirði og fjóra
í Reykjavík.