Fjarðarpósturinn - 21.09.1995, Blaðsíða 1
)
FRÉTTABLAÐ HAFNFIRÐINGA
32. tbl. 13. árg. 1995
Fimmtudagur 21. september
Verö kr. 100,-
5550888
5-650-666
Brotist inn hjá Dröfn á Strandgötu
Köfunarbúnaði fyrir
milljón krónur stolið
Köfunarbúnaði að verðmæti
yfir milljón krónur var stolið frá
Dröfn aðfararnótt mánudagsins.
Búnaðurinn var að mestu í eigu
Sjóverks en einnig var búnaði sem
áhugakafari geymdi á staðnum
stolið. Árni Kópsson kafari sem
unnið hefur með búnaðinn að
undanförnu segir að þetta sé sér-
hæfður búnaður fyrir atvinnu-
Almenningsvagnar
Fargjöld-
in hækka
Fargjöld Almenningsvagna
bs hækka 1. október að meðal-
tali um 15% en mesta hækk-
unin er á einstökum fargjöld-
um fullorðina eða rúm 18%.
Þau hækka úr 110 kr. og í 130
kr. farið. Græna kortið hækk-
ar úr 2.900 kr. og í 3.400 kr. og
verð á fargjöldum aldraðra og
öryrkja hækkar um 10%.
Eftir hækkanir er gjaldskrá
AV að öðru leyti þannig að far-
miðaspjöld með 10 miðum kosta
1.100 kr. Einstakt gjald barna 6 -
12 ára kostar 55 kr. og farmiða-
spjöld fyrir þennan aldurshóp
með 20 miðum kosta 550 kr.
Ingvar Viktorsson bæjarstjóri
segir að þeir hafi enn ekki feng-
ið bréf frá AV um þessar hækk-
anir. Hinsvegar hafi það legið
fyrir að græna kortið var of lágt
og nauðsynlegt að hækka það.
Hafnarfjörður borgi nú 60-70
milljónir kr. á ári með AV og
Kópavogur álíka upphæð.
menn og hann geti ekki séð hvern-
ig þjófarnir ætli að koma honum í
verð hérlendis því allir viti hvað-
an hann er kominn.
Að undanförnu hefur Sjóverk
unnið við viðhald og endurbætur á
dráttarbrautinni hjá Dröfn og var
köfunarbúnaðurinn notaður við það
verkefni. Þjófnaðurinn kemur sér
illa fyrir þá sem unnið hafa við þetta
verk. “Við höfum reynt að snapa
búnað hér og þar til að geta haldið
áfram og ég á alveg von á að
þetta bjargist,” segir Ámi.
“Mér finnst merkilegt að
nokkrum skuli detta í hug að stela
þessu frá okkur því það er fjarlægur
möguleiki að hægt sé að koma þessu
í verð hérlendis. Það væri álíka og
að stela tölvukerfinu frá Hagkaup
og reyna svo að selja Bónus það.”
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnu nú að rannsókn málsins svo
og tveimur öðrum innbrotum sem
áttu sér stað aðfararnótt mánudags-
ins en brotist var inn í Langeyri við
Hjörleifsgötu en litlu stolið og brot-
ist var inn í bíl við Álfhólsveg og úr
honum stolið útvarpi og hljómflutn-
ingstækjum.
Skóverslun
Hafnarfjarðar
Miðbæ s* 565-4960
CARNÉJ
MEN S WEAR
Glæsilegt úrval af
haustfatnaði á
sanna herramenn
Skófatnaður á alla fjölskylduna