Fjarðarpósturinn - 09.11.1995, Síða 2
2 FJARÐARPÓSTURINN
Gildir frú fimmtudegi 9. nóv. til 15. nóv.
Vatnsberinn (20. jan. - 18. feb.)
Framundan er vika yngri kynslóðarinnar.
Krökkunum Finnst að of miklar kröfur
séu gerðar og krefjast meira frelsis og
sjálfstæðis. Ráð til foreldra er að íhuga
vandlega lausn mála. Þeim eldri hættir oft
til, án umhugsunar, að vanvirða þá yngri
og reynsluminni.
Fiskarnir (19. feb. - 20. mars)
Meðvitund þín er óvenju opin um þessar
mundir. Það er ekki til neins, að reyna að
gera tilraun til að breyta skoðun þinni í
tilteknu máli. Það er ekki oft sem fiskar
berjast harkalega en þegar þráhyggjan
tekur völdin berjast þeir með kjafti og
klóm.
Hrúturinn (21. mars - 19. apríl)
Kannaðu fjármálin og hvort nokkur að-
kallandi reikningur sé ógreiddur eða
týndur. Reyndu að afgreiða það sem hef-
ur setið á hakanum. Einhver lausn hefur
fundist á erfiðu máli og er það mikill létt-
ir fyrir alla viðkomandi. Lottó tölur 2, 3,
12, 18, 30.
Nautiö (20. apríl - 20. maQ
Það er ekki öllum geFið að geta hlegið af
eigin vitleysu en það er list út af fyrir sig
og engin niðurlæging. Prufaðu í einn dag
að vera hömlulaus. Leggðu áherslu á
sjálfstæðar hugmyndir og endilega skrif-
aðu þær niður á blað. Trúðu svo á eigin
sannfæringu. Brostu!
Tvíburinn (21. maí - 20. júní)
Farðu í kolaportið um helgina, í leit að
gamalli klukku. Hún bíður þar eftir þér.
Þú átt ekki eftir að sjá eftir því. Segðu
ekki frá öllu sem þú veist, vertu smá
leyndardómsfull(ur) og sérhlíFin(n). Eitt
enn, láttu ekki frá þér hlut, sem einhver
gimist, fyrir ekkert.
Krabbinn (21. júní - 22. júlí)
Þér eru aldeilis slegnir gullhamramir
þessa dagana enda ekki að ástæðulausu.
Þetta em með bestu dögum sem þú hefur
upplifað í marga mánuði og það sést á
þér. Brosið er breitt. Vinur þinn hvetur
þig til að láta af fortíðinni, um tíma, og
reyna að lifa í núinu.
LjóniO (23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft svo að komast til botns í máli
sem virðist ekki gera annað en að vefjast
um sjálft sig og verða torskyldara með
hverjum deginum sem líður. Stundum er
þetta líka svona með þekkinguna, því
meir sem maður lærir því flóknara verður
námsefnið. Einn stafur í einu.
Meyjan (23. ágúst - 22. sept.)
Allt tekur einhvemtímann á enda og það
á við um allt, bæði gott og illt. En þegar
einni hurð er lokað opnast alltaf önnur.
Annað er stöðnun. Þú nýtur þess að vera
í góðum vinarhóp, þá sérstaklega þar sem
allir leggjast á eitt við að skapa eitthvað
merkilegt fyrir aðra.
Vogin (23. sept. - 22. okt.)
Þú vilt meir en allt annað gera rétt og lög-
lega og mun viðhorf þitt vekja virðingu
frá þeim sem umgangast þig bæði heima-
fyrir og í vinnunni. Þó tekur vinnan allan
þinn tíma um þessar mundir. Það er lítið
við því að gera, eins og er, en sláðu á
þráðinn til þeirra sem þykja vænt um þig.
Sporödrekinn (23. okt. - 21. nóv.)
Góður tími núna til að innheimta
útistandandi skuldir. Láttu þig hafa það
þótt um nánan ættingja sé að ræða. Þess-
ar skuldir em löngu, löngu fallnar. Gefðu
þér tíma um helgina til að vera með sjálf-
um þér og Finna þessa yndislegu tilFinn-
ingu "að vera frjáls".
Bogmaöurinn (22. nóv. - 21. des.)
Þetta er ein af þessum vikum sem þú hug-
leiðir djúpt og "spekúlerar." Þú ferð ekki
aðeins í sjálfskönnun, heldur lífskönnun
líka. LiTið, að þínu mati, er ekkert annað
en spennandi ferðalag, ókannaður áfangi
á langri leið inn í hinn óendanlega, víð-
áttumikla alheim.
Steingeitin (22. des. - 19. jan.)
Ef þú mættir ráða myndir þú hrifsa til þín
öll völd og drífa hlutina af, þótt þú þurfir
að gera allt ein(n). Þú ert svo ósátt(ur) við
seinaganginn. Flýttu þér hægt, samt, því
að aldrei skyldi seinn maður flýta sér.
Stundum þarf að fara niður í kjölinn og
það tekur tíma.
Bros þitt er augnayndið mitt
Lasagne hja tengdo
Fullt nafn? Finnbogi Gylfason
Fæðingardagur? 26. febrúar 1970
Fjölskylduhagir? Sambýliskona:
Svan Huld Linnet. Sonur: Kristján
Flóki 10 mánaða
Bifreið? Peugot 390 1990
Starf? Fjármál hjá Prentbæ Hf.
Fyrri störf? Sumarstörf hjá ÍSAL
Helsti veikleiki? Ekki nógu ákveð-
inn
Helsti kostur? Traustur
Eftirlætismatur? Lasagne hjá tengdó
Versti matur? Skyr
Eftirlætistónlist? Fer eftir skapi
hverju sinni
Eftirlætisíþróttamaður? Allar
handboltahetjumar
A hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur? Þeir eru nokkrir
sterkir
Eftirlætissjónvarpsefni? Strand-
verðir
Leiðinlegasta sjónvarpsefni?
Flestar bíómyndir á föstudagskvöld-
um
Besta bók sem þú hefur lesið?
Riddarar hringstigans eftir Einar Má
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Markaðstorg Guðanna eftir Olaf Jó-
hann
Uppáhaldsleikari? Gary Oldman
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Showgirls the movie
Hvað gerirðu í frístundum þín-
um? Hleyp og reyni að spila golf
Fallegasti staður sem þú hefur
komið til? Miðbær Hafnarfirði
Hvað meturðu mest í fari ann-
arra? Einlægni
Hvað meturðu síst í
fari annarra? Tvö-
feldni - baktal
Hvern vildirðu helst
hitta? Sjálfan mig eftir
20 ár, til þess að geta
fengið góð ráð
Hvað vildirðu helst í
afmælisgjöf? Golfkerru
Hvað myndirðu gera ef
þú ynnir 2 millj. í
happadrætti? Kaupa
mér íbúð og golfkerru
Hvað myndirðu gera ef
þú værir bæjarstjóri í
einn dag? Láta byggja
annan Miðbæ uppi á
holti, svo að allir holts-
búar þyrftu ekki að fara
alla leið niður í bæ til að
versla
Ef þú værir ekki manneskja, hvað
værirðu þá? Stjómmálamaður
Uppáhalds Hafnarfjarðarbrand-
arinn þinn? Miðbær
Æringi
- meinlegur og miskunn-
arlaus - skrifar:
Hænurnar
koma!
Sjallablaðið Hamar valdi sér allfátíðan for-
síðudreng í síðasta tölublaði. Þar var mættur
enginn annar en varaformaður Alþýðuflokks-
ins, Guðmundur Ami Stefánsson, um það bil
að taka fyrstu skóflustunguna að Miðbæ. Og
yfir myndinni stóð: í upphafi skyldi endinn
skoða. Þetta var ekki góð mynd af Guðmundi.
Nei, þetta var bara alls ekki góð mynd af hon-
um. Og það var dumbungur í lofti. Og það var
slabb á jörðu. Og það var sviplýti af kalda.
Ætli það hafi verið tilviljun að Hamarinn not-
aði þessa niynd? Nei, varla. Bregðist ekki Ær-
ingja hyggjuvitið þá var boðskapur myndar-
innar eitthvað á þessa leið:
Stendur á grunni í garra og mjöll,
Guðmundur Árni, vort hugsanatröll,
upp ermarnar brettir,
og andlitið grettir,
grefur sér gröf að vonanna höll.
Nú virðist bæjarstjómin boðin og búin til
þess að taka á móti tíu milljón hænum sem
vilja verða Hafnfirðingar, eini gallinn er sá að
ekki finnst nægilega stórt landsvæði undir bú-
skapinn og engar íbúðir til í félagslega kerf-
inu. En ef hænumar koma græðist kannski
tvennt:
Ein er von, ei villu háð,
vanti hingað fiðurhjörð.
Finnst mér grinlaust gifturáð,
að girða utan um Hafnarfjörð!
(Myndi svo hænsna-hingað-smölun
hækka greindar-vísi-tölu...?)
Bæjarfréttamenn hafa ákveðið að einbeita
sér að sjónvarpinu og hefur verið saumaður
inn í Fjarðarpóstinn bútur úr þeim sem er dag-
skrá sjónvarpsins. Þá hafa Ný vikutíðindi ver-
ið lögð niður og inn í Fjarðarpóstinn saumað-
ir auglýsingasamningar og fleira úr Tíðindun-
um. Fjarðarpósturinn er því í raun orðinn svip-
aður útlits og velþekkt hrollvekjufígúra:
Nú hefur tekist sainan að tvinna
tíðindasnepla þrjá til eins.
Raunir blaðanna reyndar minna,
rammt á skrímsli Frankensteins!
Kvöldverðarfundur Bandalags kvenna í Hafnarfirði
Forset-
inn var
heiðurs-
gestur
Bjarni og
Astrid sýna
f Bergi
Bjarni Jónsson og Astrid Ellingsen
sýna í Gistiheimilinu Berg, Bæjarhrauni
4, um þcssar mundir. Bjarni sýnir olíu-
málverk og vatnslitamyndir, en Astrid
prjónakjóla og jakka.
Bjami er velþekktur hér í Hafnarfirði, því
hann kenndi hér í 19 ár m.a. við Iðnskólann
og í Flensborg. Þá hafa þau sýnt hér með
reglulegu millibili, en þau, Bjami og Astrid
hafa haldið fjölmargar sýningar um allt land.
Bjami vinnur nú að gerð málverka af öllum
gerðum róðrabáta og skipa fyrir Þjóðminja-
safn Islands og er það mikið verk. Sýningin
sem er sölusýning var opnuð á laugardaginn
4. nóvember og verður opin um óákveðinn
tíma, en opið er á Gistiheimilinu Berg alla
daga og öll kvöld.
Jón Gunnarsson, listmálari opnar málverkasýn-
ingu í Hafnarborg, Menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, þann 11. nóv. nk.
Hann stundaði nám í Handíða- og Myndlistarskól-
anum 1947-1949 og frá þeim tíma margar náms og
kynningarferðir erlendis. Verk hans eru að stómm
hluta tengdar hafinu og náttúm Islands. Sýning Jóns
stendur til 27. nóv. og er opin frá 12-18 alla daga.
Lokað þriðjudaga.
Nýlega stóð Bandalag kven-
na í Hafnarfirði fyrir kvöld-
verðarfundi um umhverfis-
mál. Tilefni fundarins, sem
var mjög vel sóttur og þótti vel
heppnaður, var að árið 1995
er svokallað náttúruverndar-
ár Evrópu, ætlað til að efla al-
menna meðvitund um mikil-
vægi náttúrunnar og hverfu-
leika náttúru auðlinda.
Heiðursgestur fundarins var
forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir.
Dagskrá kvöldsins var í senn
fróðleg og skemmtileg. Haldnir
voru fyrirlestrar um ýmis mál er
varðar umhverfi og ábúð mann-
kyns. Áður en framsaga hófst
fluttu stúlkur úr Kór Öldutúns-
skóla undir stjóm Egils Frið-
leifssonar, þjóðlög frá ýmsum
löndum. Var góður rómur gerð-
ur að söng og lagavali. Síðan
hófst framsaga.
Fjölmenni sótti kvöldverðarfundinn.
Fyrirlesarar vom Ögmundur
Einarsson framkvæmdarstjóri
Sorpu, Ragnar F. Kristjánsson,
landlagsarkitekt hjá Náttúru-
vemdarráði og fulltrúi Um-
hverfisnefndar Hafnarfjarðar og
Dr. Páll Skúlason prófessor í
heimspekideild Háskóla íslands.
Ögmundur fræddi fundargesti á
endurvinnslu Sorpu, þar er
þriðjungur alls aðsents sorps
endumnnið, sem þykir góður ár-
angur, sé miðað við ungan aldur
fyrirtækisins. Sagði Ögmundur
hlutdeild heimila í árangri Sorpu
fara vaxandi, meðal annars með
aukinni flokkun sorps í heima-
húsum.
Erindi Ragnars fjallaði um
bæinn í hrauninu, sagði hann
Hafnfirðinga eiga náttúmfyrir-
brigði á heimsmælikvarða, sem
bæri að vemda og hlúa að. Máli
sínu til stuðnings sýndi hann
glærur, sem gerðu grein fyrir
ljömnni, fuglalífinu, hrauninu,
tjömum og lónum.
Síðastur ræðumanna var Dr.
Páll Skúlason. Talaði Páll um
framtíðina og jákvætt hugarfar
gagnvart jarðkringlunni. Vakti
hann athygli á hlutdeild siðfræð-
innar í umgengni mannsins við
náttúruna. Einnig að greinar-
munur er á náttúmvemd og um-
hverfisvemd. Þá benti Páll á
mikilvægi þess að læra að lifa
með náttúru og náttúruöflum
landsins. Að síðustu las hann
ljóðið "Inn á græna skóga" eftir
Snorra Hjartarson.