Fjarðarpósturinn - 07.12.1995, Qupperneq 10
10 FJARÐARPÓSTURINN
Svipmynd frá starfi kvennanna í Hraunprvði.
Hraunprýði 65 ára
A haustdögum 1930 var farið að
huga að stofnun kvennadeildar
Slysavarnarfélagsins í Hafnarfirði.
I'ann 7. des. 1930 var haldinn
fundur í liúsi KFUM hér í bæ um
stofnun kvennadeildar. Til þess
fundar hoðuðu Kvennadeild Slysa-
varnarfélagsins í Reykjavík.
Fundarkonur ákváðu að stofna hér
í Hafnarfirði kvennadeild Slysavarn-
arfélags Islands. I félagið skráðu sig
16 konur. Frú Sigríður E. Snæland,
Ijósmóðir var samþykkt semformað-
ur fyrir þessa kvennadeild. A fundin-
um var kosin nefnd með 7 konum til
að undirbúa framhaldsstofnfund sem
yrði haldinn á sama stað 10 dögum
síðar.
Þann 17. des. 1930 var framhalds-
stofnfundur í húsi KFUM og 29 kon-
ur skráðu sig í félagið og voru því 45
konur stofnfélagar.
Tillögur að lögum fétagsins var
lagt fyrir fundinn og voru þau sam-
þykkt.
I 2 grein laganna sagði að félagið
ætti að starfa í þeim tilgangi að vinna
að því, að hjálp sé fyrir hendi þá er
sjóslys ber að höndum. Það vill efla
öryggi sjófarenda með auknum
björgunartækjum og spoma við slys-
förum á sjó.
Innganga í félagið var og er getur
hver sú kona orðið, eldri sem yngri,
sem vinna vill að markmiði þess.
Kvennadeild Slysavamarfélagsins
í Hafnarfirði hóf þar með félagsstarf
sitt. Starf deildarinnar komst fljótt í
fastar skorður. Haldnir voru fundir
yfír veturinn einn og stundum tveir í
mánuði. Fundir voru yfírleitt fjöl-
sóttir.
Fjáraflanir á upphafsárum deildar-
innar voru útiskemmtanir, kvöld-
skemmtanir og basar. Fljótlega var
Iokadagurinn 11. maí valinn sem
merkja og kaffisala og varð að aðal-
fjáröflun deildarinnar og hefur verið
fastur liður alla tíð síðan.
Þeir fjármunir sem deildin hefur
aflað, hafa farið í mörg verkefni víða
um land t.d. radiómiðunarstöð í Vest-
mannaeyjum, skipbrotsmannaskýli í
Hjörleifshöfða, lagðir peningar í
byggingu sundlaugar á Krosseyrar-
mölum og smíði björgunarbáts og
björgunarskýli við Vesturgötu. Þetta
var gert á fyrstu áratugunum. Það er
margt fleira sem deildin hefur lagt af
mörkum sem er of langt að telja upp
en það er bæði innanbæjar og utan.
Þegar kom að 20 ára afmæli deild-
arinnar vildu konur að hún fengi
nafn. A félagsfundi í nóvember 1950
kom tillaga um nafnið Hraunprýði
og var það samþykkt.
A afmælishátíð í desember gaf
formaður deildarinnar frú Rannveig
Vigfúsdóttir deildinni nafnið Hraun-
prýði. Hefur þetta nafn verið deild-
inni til mikillar gæfu. „Hraunprýði"
var nafn á öndvegis sjómannaheimili
hér í bæ, eins og skráð er í fundar-
gerð.
Nú er farið hratt yfir sögu. Þegar
Björgunarsveit Fiskakletts var end-
urvakin 1966 festi kvennadeildin
kaup á hlífðarfatnaði og sjóbúnað
fyrir alla björgunarsveitarmenn. Síð-
an hefur Hraunprýði verið stuðnings-
aðili sem sveitin hefur alla tíð getað
treyst á. A árinu 1973 var ákveðið að
fara saman í húsbyggingu og 10. okt.
1978 var húsið að Hjallahrauni 9
vígt. Samstarf þessa aðila hefur
gengið mjög vel að öllu sem við
vinnum að.
A þessum 65 áruni hafa margar
konur lagt ómælda vinnu og tíma í
starf fyrir Hraunprýði og er aldrei
hægt að fullþakka það starf.
Nú þegar við höldum upp á 65 ára
afmælið eru 654 konur skráðar í
Hraunprýði og fundimir orðnir 401.
Formenn Hraunprýði frá upphafi
eru: Sigríður E. Snæland, Rannveig
Vigfúsdóttir, Sólveig Eyjólfsdóttir,
Hulda Sigurjónsdóttir, Ester Kláus-
dóttir og núverandi formaður er Þóra
F. Hjálmarsdóttir.
Frá upphafi hafa Hafnfirðingar
stutt okkur mjög vel, án ykkar hefði
Hraunprýði ekki getað lagt Slysa-
vamarstarfinu allt það sem gert hefur
verið. Viljum við þakka fyrir allan
þann hlýhug og stuðning sem þið
hafið veitt okkur.
Jólafundur og afmælisfagnaður
verður í Skútunni þriðjudaginn 12.
desember. kl. 19:00.
Embla hefur flutt
í stærra og
bjartara húsnæði
í rúma þrjá áratugi hafa Hafn-
firðingar gengið að versluninni
Emblu vísri á jarðhæð Strandgötu
29. Þar liafa hafnfirskar konur og
börn fengið fötin sín, hvort sem um
var að ræða nærfatnað, skólafatn-
að, vinnufatnað eða spariföt.
Það voru þær Auður Amadóttir og
Dóra Guðmundsdóttir sem stofnuðu
og ráku verslunina saman, þar til fyr-
ir tveimur árum að Dóra hætti og
seldi Auði sinn hlut. Nú fyrir nokkm
flutti Auður verslunina yfir götuna í
gamla kaupfélagshúsið að Strand-
götu 26-28.
Við tókum Auði tali einn daginn
og spurðum fyrst hvort ekki haft ver-
ið erfitt að flytja eftir svo mörg ár á
sama stað. „Nei, nei, það var ekkert
Ný Ijóöabók
Hjá bókaútgáfunni Reykholt er
að koma út ljóðabók eftir Sigurunni
Konráðsdóttir, en hún er ýmsum
kunn fyrir Ijóðagerð sína. Þrátt fyrir
það hefur hún aldrei gefið út bók
fyrr en nú þegar „Ur sjóði minning-
anna,“ lítur dagsins ljós. Auðunn
Bragi Sveinsson ritar formála bók-
arinnar og segir m.a. „mér er mikil
ánægja að fylgja Ijóðunum hennar
Sigurunnar úr hlaði. Hún er sannur
fulltrúi hinnar hefðbundnu ljóð-
menningar.“
erfitt,“ segir Auður, „hér fáum við
stærra og bjartara húsnæði. Þetta
húsnæði er um 40 fermetrum stærra,
en gamla húsnæðið, einnig er það
bjartara og þægilegra og miklu stærri
útstillingargluggar." Auður brosir og
það er auðséð að henni líður vel í
þessu nýja húsnæði.
Framhlið verslunarplássins hefur
verið breytt. Nú er gengið beint inn
af Strandgötunni inn í verslunina.
Þegar inn er komið blasa við stíl-
hreinar og fallegar innréttingar. Öllu
er mjög haganlega fyrir komið og
auðsjáanlega vel til alls vandað.
Auður segist hafa ráðið góðan arki-
tekt, Pálmar Kristmundsson til að
hanna húsnæðið og Smíðastofa Eyj-
ólfs smíðaði innréttingamar. Allt ber
þetta merki góðra fagmanna. Þó ég
vilji ekki gera hlut fagntannanna
minni, þá læðist að mér sá grunur að
Auður hafi nú haft hönd á bagga á
skipulaginu, en hún hlær og segir að
það sé tóm vitleysa, þetta sé allt verk
arkitekts og smiða.
A meðan ég var að spjalla við
Auði, var alltaf að koma viðskipta-
vinir inn í verslunina og þær Sigríð-
ur, sern vinnur með Auði við af-
greiðsluna og hefur gert í 23 ár, hafa
nóg að gera að taka við ámaðarósk-
um og sýna fólki nýjar vörur sem þær
voru að fá í verslunina unr helgina.
Auðheyrt er að þær þekkja fiesta sem
Auður Árnadóttir, eigandi Emblu
og Sigríður Þorvaldsdóttir, sem
unnið hefur í Emblu í 23 ár og er
ekkert á leið að skifta um vinnu-
stað.
koma inn í verslunina og það leynir
sér heldur ekki að viðskiptavinimir
bera traust til þeirra. Góðar vörur og
gagnkvæmt traust á milli kaupmanns
og viðskiptavinar, er sennilega sá
lykill sem hefur gert þessa verslun
svo langlífa í höndum sömu eigenda.
Eg sá að það var ekki síður ungu
konumar sem þekktu þær Auði og
Sigríði og því spurði ég hvort þær
hafi ekki upplifað það að bömin sem
þær klæddu í föt hér fyrr á árurn
kæmu nú sem foreldrar og að kaupa
á bömin sín. „Jú, það er nú eitt af því
skemmtilega, að sjá bömin stækka
og þroskast og koma svo seinna til að
klæða sig og bömin, rétt eins og
mæður þeirra gerðu fyrir nokkrum
ámm,“ segir Auður Ámadóttir, kaup-
kona í Emblu að lokunt.
JOLASERIUR, JOLASTJORNUR, AÐVENTULJOS
¥ % %
SJ0NV0RP
fliwa
Phoenix
Toshiba
Philips
Verð frá
kr. 69.900.- stgr.
HAFBUÐIN
Álfaskeiði 31 - sími 555 3020
Kylfingar, liylfiugaiv Kylfingar,
B.S. GÓLFVERSLUN í GOLFSKÁLA KEILIS S. S6S 0714
Hjá okkur færðu úrvalið af jólagjöfum kylfingsins. Mikið úrval af vörum frá ýms-
um framleiðendum. Opnunartími í desember er þannig:
VIRKA DAGA FRÁ 15 TIL 18 OG UM HELGAR FRÁ 13 TIL 16