Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Side 3
Fimmtudagur 6. júní 2002
www.fjardarposturinn.is 3
Útstrikanir ekki taldar hjá
hverjum frambjóðenda
Yfirkjörstjórn gefur ekki út neinar tölur og ekki talið hjá D-lista!
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Fjarðarpóstsins voru
rúmar 240 útstrikanir á lista
Sjálfstæðisflokksins (5,4%),
tæplega 230 útstrikanir hjá Sam-
fylkingunni (4,1%) og um 50 hjá
Framsóknarflokknum (7,2%).
Skv. upplýsingum blaðsins voru
útstrikanir nokkuð dreifðar en þó
flestar hjá oddvitanum Lúðvíki
Geirssyni. Fjöldi þeirra var þó
óverulegur.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks
sögðu í samtali við blaðið að þeir
hefðu ekki sundurgreint útstrik-
anir Sjálfstæðisflokksins.
Yfrrkjörstjóm mun ekki hafa
heimilað umboðsmönnum
flokkanna að skoða útstrikanir
hinna flokkanna.
Upplýsingar um útstrikanir eru
birtar á ýmsum öðrum stöðum
en skv. upplýsingum formanns
yfirkjörstjómar Hafnarfjarðar er
ekkert í kosningalögum sem
mælir fyrir um að þessar upp-
lýsingar séu skráðar.
Kjörstjórnin hafi gengið úr
skugga um að þessar útstrikanir
vom langt í frá nógu margar til
að þær gætu haft áhrif eins og
heildartölumar segja reyndar til
um.
Úrslitin i bæjarstjórnar-
kosningunum 2002
B D S U Auðir Ógildir Alls Kjörsókn
Atkv. 695 4.481 5.550 320 312 35 11.393 81,43%
% 6,1% 39,3% 48,7% 2,8% 2,7% 0,3% 100,0%
695 4.481 5.550 320
B D S U
Fulltr. 0 5 6 0
Á töflunni hér að ofan má sjá
niðurstöður úr bæjarstjómar-
kosningunum hér í Hafnarfirði.
Atkvæða tölur flokkanna era
færðar í neðri töfluna með því að
deila í atkvæðafjölda hvers
flokks með 2, síðan 3 og svo koll
af kolli. Þannig fær S-listi 1.
mann með 5550 atkvæðum, D-
listi fær 2. mann með 4481 at-
kvæði, S-listi fær 3. mann með
2775 atkv. og þannig era fundnir
bæjarfulltrúamir 11.
Ef B-listi hefði fengið 220
atkvæði í viðbót hefði hann náð
inn manni á kostnað D-lista
nema yfir 90% af þessum 220
atkvæðum hefðu komið frá
kjósendum Samfylkingarinnar,
þá hefðu þeir fellt 6. mann
þeirra.
Til gamans má geta að í
síðustu kosningum náði A-listi
öðram manni sínum inn á 696
atkvæðum. 5. maður D-lista fór
inn á 716 atkvæðum en var þó
öruggari en 5. maður listans
núna.
Mánudagsilboð!
Ef þú verslar fyrir 1.000 kr. eöa
meira færðu 1 pakka með 6
stórum úrvals ýsubollum
Gildir aðeins mánudaginn 10. júní 2002
Mikið úrvai af fiskréttum, fiski á grillið og grillpinnum
Opið milli kl. 11 og 18.30
IFIIBCIÖPIIHl ©BC8CM
Lækjargötu 34b • sfm\ 544 5488
Gróðrastöðin
Skuldseld
Óskað eftir hámarksafslætti á gatnagerðargjöldum
vegna byggingaframkvæmda á lóðinni
Á fundi bæjarráðs 30. niaí sl.
var lagt fram bréf Gunnars og
Ólafs ehf., dags. 29. maí sl., þar
sem þess er farið á leit að Hafn-
arfjarðarbær falli frá forkaups-
rétti á fasteigninni Lynghvammi
4 ásamt meðfylgjandi lóðum
(Gróðurstöðin Skuld) og veiti
Gunnari og Ólafi ehf. hámarks-
afslátt af gatnagerðargjöldum
vegna fyrirhugaðra bygginga-
framkvæmda á lóðinni, þar sem
kostnaður bæjarins vegna gatna-
og lagnaframkvæmda verður í
lágmarki.
Loks er þess óskað að bæjar-
yfirvöld samþykki fbúðabyggð á
umræddri lóð og setji í gang það
ferli svo hægt sé að koma
framkvæmdum af stað sem fyrst.
Bæjarráð lagði til við bæjar-
stjóm að falla frá forkaupsrétti á
fasteigninni Lynghvammi 4
ásamt meðfyigjandi lóðum
(Gróðrarstöðinni Skuld) og að
veitt yrði vilyrði fyrir því að
veita hámarksafslátt af gatna-
gerðargjöldum vegna fyrirhug-
aðra byggingaframkvæmda á
lóðinni.
Jafnframt vísar bæjarráð til
skipulags- og umferðamefndar
að fara í breytingu á deiliskipu-
lagi á umræddu svæði.
Fatahreinsun
JAKKAFÖT ..................1.200.-
HEIMILISÞVOTTUR............3.100.-
SKYRTUR .....................320.-
KÁPUR .....................1.060.-
GARDÍNUR ...............600.- Kr./kg
ÞVOUM OG HREINSUM ALLAN FATNAÐ
GLUGGATJÖLD OG MARGT FLEIRA
HRAUNBRÚN 40 HAFNARFIRÐI
SÍMI 555 1368
ALLT Á HREINU SÍÐAN 1965
jltfJíVlll
Víðistaðakirkja
Guðsþjónusta með vísnasöng
sunnudagskvöldið 9. júní kl. 20.00
Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson flytja vísnalög við gítarundirleik
Allir velkomnir
sóknarprestur