Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Qupperneq 6

Fjarðarpósturinn - 06.06.2002, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 6. júní 2002 Minnkandi skipa- og bátaeign Hafnfirðinga kvótaeignin minnkar að sama skapi Það er af sem áður var í út- gerðarmálum Hafnarfjarðar. Skipastóllinn er í lágmarki og út- gerð og fiskvinnsla líka. I töflunni hér að neðan má sjá nöfn skipa og báta sem bera ein- kennisstafi Hafnarfjarðar HF. Sum útgerðarfyrirtækin eru ekki staðsett í bænum og sumir bát- anna eru kvótalausir skv. heim- ildum blaðsins. Sjóli er í þjónustuflutningum við Máritaníu en Sjólaskip hf. er þar með 4 skip í uppsjávar- fiskveiðum og að sögn forsvars- manna útgerðarinnar ganga veiðar þar vel. Nafn Ár Brl. Lengd Útgerð Skip og bátar: Rán HF 42 1990 598 45,84 Stálskip ehf. Ýmir HF 343 1988 541 50,35 Stálskip ehf. Ársæll Sigurðsson HF 80 2001 95 19,00 Viðar Sæmundsson Máni HF 149 1990 28 17,16 Útvík ehf. Gullfari HF 290 1990 11 11,86 Dagur Brynjólfsson íslandsbersi HF 13 1990 11 12,78 Bersi ehf. Hafsvala HF 107 1988 10 10,98 Haraldur Þorgeirsson Kvótalausir eða ekki hafnfirskar útgerðir: Eldborg HF 67 1974 913 65,76 Básafell hf. (Reykjavík) Sjóli HF 1 1974 875 62,30 Sjólaskip hf. (við Marokkó) Haftindur HF 123 1946 57 20,95 Karel Ingvar Karelsson (kvótalaus) Reginn HF 228 1961 21 13,97 Manus ehf. (Garðabæ) Hrefna HF 90 1987 18 13,00 Hafdal ehf. (kvótalaus) Bogga HF 272 1998 10 9,89 Trefjar hf. (kvótalaus) Bylgja HF 150 1987 10 11,90 Skarðseyri ehf. (kvótalaus) Trillur: Auður HF 8 1972 8 10,19 Eiríkur Ragar Eiríksson (Reykjavík) Fiskarr HF 98 2001 8 9,39 Ellen Stefanía Björnsdóttir Örvar HF 155 1988 8 10,95 Erling Ómar Guðmundsson (Garðabæ) Ösp HF210 2000 7 7,98 Mardís ehf. Sigmundur HF 369 1988 6 8,91 Einar Kristjánsson Teista HF 172 1998 6 7,99 Ingvar Árnason Iðunn HF 28 1987 5 9,45 Steindór I. Andersen Margrét HF 64 1998 5 8,58 Heinaberg ehf. (Höfn) Mundi á Bakka HF 62 1982 5 7,59 Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs Ólafur HF 251 1990 5 9,68 Ólafur hf. útgerð (Reykjavík) í Ferðaþjónustu: Elding HF 1967 125 24,40 Grétar Sveinsson. Húni II HF 1963 117 24,90 Húnaströnd ehf. Hafnsögubátar: Hamar HF 2001 58 15,80 Hafnarfjarðarhöfn Þrottur HF 1963 21 13,50 Hafnarfjarðarhöfn Hann gerist vart meiri stœrðarmunurinn á þessum farkostum. Sá minni er smíðaður í Hafitarfirði og sá stœrri er gríðarstór verksmiðjutogari sem sögur herma að útgerð hér i bœ hafi áhuga á að kaupa. Ávarp á sjómannadaginn Valgerður Sigurðardóttir Hafnarfjörður er í hátíðabúningi, bátar og skip í höfh, þar er sjó- mannadagurinn. Hafnarfjarðarhöfn, sjósókn og siglingar eru stór þáttur í bæjar- lífi okkar því er nauð- synlegt að samspil hafnarinnar við sjófarendur sé eins og best verður á kosið. Vegna öflugrar sjósóknar hafa risið hér í bæ báta- og skipasmíðastöðvar, vélsmiðjur, fiskmarkaður og önnur þjónustu- fyrirtæki til þjónustu við sjávarútveginn. Á sfðustu áratugum, höfum við Hafnfirðingar sem og aðrir staðið frammi fyrir miklum breytingum í sjávarútvegi, út- gerðarháttum og landvinnslu. Samhliða þeim breytingum höfum við horft fram á veginn og leitað nýrra leiða. Ég vék að því í ræðu á sjó- mannadaginn fyrir ári, hversu Hafnarfjarðarhöfn er í mikilli uppbyggingu, unnið hefur verið að mjög áhugaverðum verk- efnum til að tryggja alla aðstöðu hér á sem bestan og farsælastan hátt. Vil ég nefna samningsdrög sem liggja fyrir um enn frekari þróun á uppbyggingu Eimskipa- félagsins hér í höfninni, Icedan og Hampiðjan hafa hug á frekari þróun sinna fyrirtækja utan Suðurgarðs og unnið er að því að koma þar fyrir nýrri olíu- birgðastöð. Þá er verið að vinna skipulagsbreytingar til þess að Sölusamband íslenskra fiskfram- leiðenda, Fiskmarkaðurinn o.fl. fyrirtæki hér s.s. skipaiðnaðurinn og önnur þjónustufyrirtæki geti þjónað sjávarútveginum á sem fjölbreyttastan hátt. Samþykkt hefur verið stefnu- mótun fyrir Hafnarfjarðarhöfn, rammafjárhagsáætlun til næstu fimma ára og er það í fyrsta skipti sem slík þróunaráætlun er lögð fram í 93 ára sögu hafhar- formaður hafnarstjórnar: innar. Ég vil nota tækifærið hér og þakka forsvarsmönn- um og starfsmönnum þeirra fyrirtækja sem búa hafnarsvæðið fyr- ir mjög gott og þýðingarmikið sam- starf við hafnarstjóm og starfsfólk Hafnarfjarðarhafn- ar. Aðstaða til smábátaútgerðar er hér með því besta sem þekkist, öryggishlið hafa verið sett á flotbryggjur og rafmagn lagt í þær, þá hefur setflái verið lengd- ur til að koma á móts við þær kröfur sem gerðar eru um setfláa. Hafnarfjarðarhöfn hefur lagt ríka áherslu á öryggismál sjófar- enda og þeirra sem um höfnina fara, má þar nefna lýsingu á bryggjustigum. Það verður seint fullþakkað öllu því fólki sem komið hefur að og unnið að auknu öryggi sjómönnum og fjölskyldum þeirra til handa á liðnum áratugum. Ágætu sjómenn, sjómanns- konur og fjölskyldur, það hafa því miður á liðnum tímum marg- ar hafnfirskar fjölskyldur þurft að horfa á eftir ástvinum sínum, sem látist hafa við störf á hafi úti. Þeirra er minnst í dag með virð- ingu og þökk. Það er mikils virði að halda sjómannadaginn hátíðlegan, því á hraða tímans megum við aldrei gleyma því hvað stendur að baki lífi okkar og starfi í dag. Því þrátt fyrir þjóðfélagsbreytingar er það sjósóknin sem er grundvöllur efnahagslegs sjálfstæðis okkar íslendinga. Ég vil að lokum þakka gott og árangursríkt samstarf á liðnum árum við Sjómannafélag Hafnar- fjarðar, Skipstjóra- og stýri- mannafélagið Kára, Smábáta- félagið og Hraunprýðiskonur. Sjómenn og fjölskyldur, Hafn- firðingar allir, innilega til ham- ingju með daginn. Mannafli Aflabrögð Ársæls Sigurðsson- fólks vildi komast í siglingu og ar voru ekki af verri kantinum á komst enda bara famar fleiri Sjómannadaginn. Veiðin var ut- ferðir. Kunnu bæjarbúar greini- an kvóta og gaf gleðina eina í lega vel að meta þetta tilboð aðra hönd. Gífurlegur fjöldi útgerðanna og hafnarstjómar.

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.