Fjarðarpósturinn - 24.11.2005, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Úrslit:
Handbolti
Úrvalsdeild karla:
Haukar - Stjarnan: 28-28
Vík./Fjölnir - Haukar: 28-30
HK - FH: 29-26
Fjáröflunarleikur:
FH-eldri- FH-yngri: 32-22
Körfubolti
Evrópukeppni kvenna:
Haukar - Pays D’Aix: 41-105
Næstu leikir:
Handbolti
30. nóv. kl. 19.15, Selfoss
Selfoss - Haukar
(úrvalsdeild karla)
Körfubolti
24. nóv. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - Þór Ak.
(úrvalsdeild karla)
Íþróttir
Heillandi störf
Ásland, Setberg, Svöluhraun,
Klettahraun, Ægisgrund, Sigurhæð
Við hjá Svæðisskrifstofu Reykjaness leitum að
starfsfólki í dagvinnu og vaktavinnu í ýmis störf
í Hafnarfirði og í Garðabæ.
Leitað er eftir duglegum og áhugasömum
einstaklingum sem eru að leita sér að spennandi
og gefandi starfi. Aldurstakmark 18 ár.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofutíma í
síma 525-0900 og á heimasíðunni okkar:
www.smfr. is
Umsóknarfrestur er til 4.12.2005
Á síðustu mánuðum hefur farið
af stað að nýju umræða um gildi
list- og verkgreina í skólum
landsins. Umræðan
hefur sprungið út í hug-
mynd um listmennta-
skóla að alþjóðlegri
fyrirmynd, en víða er-
lendis eru sérstakir
skólar á framhalds-
skólastigi sem einbeita
sér að list- og verk-
greinum.
Verknám hefur verið
í stöðugri sókn og
mörgum hefur fundist að það
mætti gera því ennþá hærra undir
höfði í íslensku skólakerfi. Iðn-
skólinn í Hafnarfirði hefur verið í
fararbroddi og það er ánægjulegt
að nú sér fyrir endann á hús-
næðisvandamálum skólans. Þrátt
fyrir að skólinn hafi fyrir nokkr-
um árum komist á nýjan stað við
Flatahraun þá hefur ásóknin verið
meiri en skólinn hefur getað ann-
að. Það er því gleðiefni að Hafn-
arfjarðarbær ásamt ráðuneyti ýti nú
úr vör í samvinnu við skólayfirvöld
vinnu að stækkun skólans.
Vilji til frekari skólauppbyggingar
Fyrir nokkrum árum gerðu bæj-
aryfirvöld í Hafnafirði tilraun til
þess að fá Listháskólann í Hafn-
arfjörð. Þverpólitískur vilji var
innan stjórnmálaflokkanna að
skólinn kæmi í Hafnarfjörð. Ekki
varð úr því þrátt fyrir þennan
samhug gagnvart verkefninu.
Samfylkingin hefur á þessu kjör-
tímabili lagt á það áherslu að á
Vallasvæðinu þar sem náms-
íbúðaþyrpingin verður staðsett
verði háskóli- eða framhaldsskóli,
en svæðið kom vel til greina sem
einn af kostum varðandi staðarval
fyrir Tækniháskóla Íslands.
Staðarvalið hefur marga góða
kosti sem skólastaður og tenging
svæðisins sem liggur milli höf-
uðborgarsvæðisins og Reykjanes-
skagans er það sem m.a. gerir
svæðið sérstakt. Svæðið liggur
vel við almenningssamgöngum
og er í nálægð við
væntanlega sundlaug á
Völlum og íþróttamið-
stöð Hauka. Það er
mikilvægt fyrir okkur
Hafnfirðinga að skóla-
setur verði að veru-
leika á Völlunum og
með samstarfi sveitar-
félagsins og ríkisins í
þeim efnum mun sá
draumur okkar verða
að veruleika. Einn af þeim skóla-
kostum sem kemur til greina á
Völlunum er Listmenntaskóli.
Hvað er Listmenntaskóli ?
Listmenntaskóli er skóli á
framhaldsskólastigi sem gerir öll-
um list- og hönnunargreinum hátt
undir höfði. Bæði á að vera hægt
að útskrifast með stúdentspróf á
viðkomandi greinum og einnig
með starfsmenntun sem nýtist á
öllum sviðum. þar má nefna leik-
list, tónlist, hönnun, dans, hljóð-
vinnsla, leikmyndahönnun, bún-
ingahönnun, myndlist, kvik-
myndagerð og fleiri listform. Á
Íslandi er Listháskóli og því eðli-
legt að hafa framhaldsskóla sem
undirbýr nemendur undir nám í
slíkum háskólum.
Listmenntaskóli getur boðið
upp á t.d tónlistarnám hvort sem
það er á klassíska sviðinu eða
með popptónlist í huga. Ekki skal
gera upp á milli hámenningar eða
lágmenningar heldur fagna öllum
þessum tjáningarformum. Hér
gæti verið um að ræða virkt sam-
starf á milli Iðnskólans í Hafn-
arfirði og Flensborgarskólans.
Takist okkur að fá listmennta-
skóla í bæinn yrði það ennþá ein
skrautfjöðrin í að gera Hafnarfjörð
að framúrskarandi menntabæ.
Höfundur er á framboðslista
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Listmenntaskóla
í Hafnarfjörð
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
Blóðbanka
bíllinn
á ferðinni
!
Verður við Fjarðarkaup
þriðjud. 29. nóvember
frá kl. 09:30-14:30.
Blóðbankabíllinná ferðinni!
blood@landspitali.is / www.blodbankinn.is
Verðum við Fjarðarkaup
þriðjudaginn 29. nóvember
frá kl. 9.30-14.30
Allir velkomnir
Blóðgjöf
er lífgjöf
Á að kjósa í helstu ráð bæjarins?
Já 64%
Nei 29%
Tek ekki afstöðu 7%
Taktu þátt á www.fjardarposturinn.is
Snorri sterkur í
skákinni
Haukamaðurinn Snorri G.
Bergsson varð öruggur sigur-
vegari í Bikarsyrpu Eddu útgáfu
og Taflfélagsins Hellis um
helgina. Magnús Örn Úlfarsson
varð annar og Rúnar Sigur-
pálsson þriðji.
Snorri varð einnig í 2.-3. sæti í
Íslandsmótinu í Netskák. Halldór
Brynjar varð í 7.-9. sæti og
Davíð Kjartansson í 10.-12. sæti.
10www.fjardarposturinn.isFimmtudagur 24. nóvember 2005
Ljósm
.: G
uðni G
íslason
Breiðband - Loftnet
Gervihnattaþjónusta og sala
Rafeindavirkjar.
Loftnet IJ ehf.
Sími 696 1991.
TÖLVUVIÐGERÐIR
Alhliða tölvuþjónusta
Kem í fyrirtæki og heimahús
Tölvuþjónusta Hafnarfjarðar
Sími 849 2502
BETRI LÍÐAN - BETRI HEILSA
Shapeworks – finnið muninn
Herbalife, sjálfstæður dreifingaraðili
Halla sími 895 7414
www.arangur.is/halla
Útfararþjónustanehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar:567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Fallegir legsteinar
á góðu verði
www.englasteinar.is
Helluhrauni 10
Sími: 565-2566
Englasteinar
Húsnæði óskast
Óskum eftir 15-20 m² herbergi í
atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði, með
aðgangi að salerni, helst í Hraunahverfi
sunnan Reykjanesbrautar.
Vinsamlega hafið samband við
Batteríið/Sigurð H. í síma 54 54 700 eða
netfangið: sig.h@arkitekt.is.
Eins og fréttir síðustu daga
bera með sér hefur mjög mikill
árangur náðst í forvarnamálum í
Hafnarfirði. Áfengis- og vímu-
efnaneysla unglinga virð-
ist fara minnkandi og
hópamyndun í hverfum
bæjarins í lágmarki. Þenn-
an árangur má fyrst og
fremst þakka góðu sam-
starfi allra þeirra sem
koma að málefnum ungl-
inga svo sem skóla,
félagsmiðstöðva, foreldra,
bæjaryfirvalda og lög-
reglu.
Götuviti - útideild ÍTH
Á vegum Íþrótta- og tóm-
stundanefndar Hafnarfjarðar-
bæjar er starfrækt útideild undir
nafninu Götuviti. Hlutverk
Götuvita er að sinna leitarstarfi
og miðar að því að finna þá ungl-
inga sem teljast til áhættuhóps. Í
því skyni fara starfsmenn Götu-
vita á eftirlitsvaktir um helgar og
á virkum dögum. Tilgangurinn
er að fylgjast með hópamyndun
meðal unglinga og reyna að
finna þá sem eru á hinu s.k. gráa
svæði. Götuvitinn leggur einnig
mikla áherslu á náið og gott
samstarf við aðra aðila sem hafa
með unglinga að gera í þeim
tilgangi að þetta leitarstarf verði
sem markvissast.
Samstarf Götuvita og
foreldrarölts
Síðastliðin ár hefur verið unnið
að því að koma á legginn for-
eldrarölti í öllum hverfum bæjar-
ins. Foreldrarnir skiptast þá á um
að rölta um hverfið sitt í því
skyni, meðal annars, að fylgjast
með hópamyndun í hverfinu og
eins er um góða nágrannavörslu
að ræða. Í dag er virkt foreldra-
rölt í 4 af 6 skólum bæjarins og
unnið er að því að koma slíku
starfi á þar sem vantar. Starfs-
menn Götuvita hafa lagt mjög
mikla áherslu á gott samstarf við
foreldraröltið og hefur það sam-
starf gengið mjög vel í vetur
enda engir betur til þess fallnir
að sinna forvarnastarfi en for-
eldrar sjálfir.
Eftirlitslaus partý
Þrátt fyrir að ástandið í þessum
málum sé nú betra í Hafnarfirði
en oft áður er enn töluvert um
eftirlitslaus partý í heimahúsum.
Þar koma unglingar saman og er
áfengi oft haft um hönd. Nýjustu
rannsóknir sýna einmitt að þeir
unglingar sem drekka áfengi
gera það langflestir heima hjá
öðrum jafnöldrum. Þessu viljum
við breyta og skorum því á
foreldra að taka á vandanum og
leyfa ekki eftirlitslaus partý.
Með áframhaldandi samstarfi
getum við náð enn betri árangri í
áfengis- og vímuefnamálum
unglinga í Hafnarfirði.
Helena Björk Jónasdóttir
Kolbrún Benediktsdóttir
Starfsmenn Götuvita
Fylgjum eftir góðum
árangri í forvarnamálum
Kolbrún
Benediktsdóttir
Helena Björk
Jónasdóttir
Auglýst eftir bókahillum
í Gamla Bókasafnið
Gamla Bókasafnið, tómstundar- og menningarhús
Hafnarfjarðar er að byggja upp bókasafn og
upplýsingarsetur þar sem ungt fólk getur leitað sér
upplýsinga um allt sem þeim viðkemur.
Ef þú átt slíka hirslu sem þú telur eiga heima í Gamla
Bókasafninu og vilt gefa frá þér, endilega hafðu
samband við okkur í síma: 5655100, eða komdu við í
kaffi á Gamla Bókasafninu, Mjósundi 10.
Húsráð Gamla Bókasafnsins.
30 m² bílskúr til leigu í
Hvömmunum.
Uppl. í s. 822 0301.
Einstæð 2ja barna móðir óskar
eftir 3-4 herb. íbúð á góðu verði í
Hafnarfirði, helst í Norðurbænum.
Uppl. í s. 844 6326.
Feðgar óska eftir 2-3 herb. íbúð í
Hafnarfirði sem fyrst.
Uppl. í s. 848 4890
Myndlistarmann vantar ódýra
vinnuaðstöðu, helst í Hafnarfirði :)
Örvar Árdal 8656547
Tek að mér múrverk, flísalagnir og
set upp milliveggi.
Uppl. gefur Guðmundur
í s. 659 5922.
Svæðameðferð.
Er stressið, kvíðinn og verkir í
hámarki? Vantar þig slökun og ró? Er
með svæðanudd og punktanudd.
Ást. s. 848 7367.
Gefins antik klæðaskápur
Rúmgóður klæðaskápur ca 70 ára
gamal fæst gefins gegn því að verða
sóttur. 200 x 140 sm.
Upplýsingar í síma: 896 6044
Vantar þig bíl?
Er með Suzuki-Baleno 1998.
Þú getur komið og sótt hann,
upplýsingar í síma 8201004.
Hársnyrtiþjónusta í heimahús
Býð upp á alhliða hársnyrtiþjónustu
fyrir eldri borgara.
Uppl. í s. 822 0301, Guðrún Sigríður.
Þú getur sent
smáauglýsingar á
auglysingar@fjardarposturinn.is
eða hringt í síma565 3066
Aðeins fyrir einstaklinga, ekki
rekstraraðila. Verð aðeins 500 kr.
Tapað-fundið og fæst gefins: FRÍTT
Gefins
Þjónusta
Húsnæði óskast
Húsnæði í boði
Sparisjóður Hafnarfjarðar og
handknattleiksdeild Hauka hafa
undirritað samstarfssamning þar
sem SPH verður aðalstyrktar-
aðili handknattleiksdeildarinnar
næstu tvö ár. Samningurinn felur
í sér bæði fjárhagslegan stuðning
og samstarf í kynningarmálum.
SPH hefur verið aðalstyrktar-
aðili handknattleiksdeildar
Hauka í um 20 ár og lýsir yfir
sérstakri ánægju með að fram-
hald verði á þessu góða sam-
starfi. Þorgeir Haraldsson, for-
maður handknattleiksdeildar
Hauka, segir stuðning SPH
skipta afar miklu máli en hann sé
lykillinn að rekstri öflugrar
handknattleiksdeildar félagsins.
SPH styrkir Hauka Hefur styrkt handknattleiksdeildina í 20 ár.
Hafnfirskt jólatré á
Thorsplani
Félagsfundur 60+
Almennur félagsfundur verður í 60+
Hafnarfirði, næstkomandi laugardag
kl. 11 fyrir hádegi að Strandgötu 21. Þar
verða kynntar niðurstöður úr könnun
um óskir eldri borgara um búsetuform
sem Margrét Guðmundsdóttir vann.
Jólafundur Hringsins
Hringskonur, athugið að jólafundurinn
verður í Hringshúsinu 1. des.kl. 20.
Kynstrin öll í bókasafninu
Í kvöld, fimmtudag kl. 20 lesa eftir-
taldir úr bókum sínum í bókasafninu:
Þórhallur Heimisson: Hin mörgu andlit
trúarbragðanna/Ragnarök, örlagarík-
ustu stórorrustur sögunnar. Hermann
Stefánsson: Stefnuljós. Súsanna
Svavarsdóttir: Dætur hafsins. Rúnar
Helgi Vignisson: Feigðarflan.
Blásarakvintett flytur nokkur lög
Jan Pozok sýnir í Bókasafninu myndir
sem skreyta bók Sigrúnar Eddu Björns-
dóttur, Rakkarapakk.
Sýningar í Bæjarbíói
Á laugardaginn kl. 16 sýnir Kvik-
myndasafn Íslands nokkrar heimildar-
mynda Ásgeirs Long vélfræðings og
kvikmyndagerðarmanns. Myndirnar
sem sýndar verða eru Sjómannalíf, frá
1951 sem sýnir líf og störf sjómann-
anna um borð í síðutogaranum Júlí GK
21 þar sem hann siglir um á Barentshafi
og Hvítahafi. Labbað um Lónsöræfi,
Virkjun (Búrfellsvirkjun) þar sem fylgst
er með nokkrum ungmennum í viku-
göngutúr um Lónsöræfin 1965 og Saga
um lágmynd, 10 mínútna mynd er
fjallar um tilurð stærsta myndverks á Ís-
landi eftir Sigurjón Ólafsson, sem prýðir
útveggi stöðvarhúss Búrfellsvirkjunar.
Allar myndirnar eru gerðar á árunum
1951 – 1970.
Á þriðjudaginn kl. 20 verður sýnd
þýska kvikmyndin Kvennalæknirinn
Dr. Sibelius eða Frauenarzt Dr. Sibelius
eins og myndin heitir á frummálinu í
leikstjórn Rudolf Jugert. Hún var áður
sýnd í Bæjarbíói á sjöunda áratugnum
við fádæma vinsældir. Myndin fjallar um
ástir og afbrýði Dr. Sibeliusar, Elísa-
betar konu hans og Sabine vinkonu
þeirra.
Ómur af söng í Laugarásbíói
Boðssýning í næstu viku
Aðalpersónan í myndinni er Guðný
Þórðardóttir, heillandi níutíu og þriggja
ára gömul kona á hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hún segir rottusögur frá heimaslóðum á
Norðfirði og málar og syngur í kórnum
og áformar að setja á svið leikþátt og
leika aðalhlutverkið.
Guðný hefur ekki lært nema Faðirvorið
og Biblíusögurnar, en hún hefur næma
frásagnargáfu og býr yfir visku
kynslóðanna. „Af hverju má ekki tala
um dauðann,“ segir hún. „Barnabörnin
spyrja mig, Amma: Ertu viss um að þú
verðir hjá Guði?“ „Já, ég er alveg viss
um það.“
Myndin er óður tili lífsins og hvatning til
ungra og aldinna að halda áfram að lifa
og skapa hvernig sem stendur á með
heilsuna.
Myndin er frumsýnd í dag í
Laugarásbíói og á sunnudag verður
Hrafnistufólki boðið að sjá hana en í
næstu viku verður öllum boðið að koma
og sjá myndina og kynnast lífinu í
ellinni.
Sýningarnar verða auglýstar sérstak-
lega.
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Víðistaðakirkja
1. sd. í aðventu 27. nóvember:
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00
Morgunverður í safnaðarheimilinu á eftir.
Aðventukvöld kl. 20:00
Fjölbreytt dagskrá. Fram koma:
Kór Víðistaðasóknar
Barnakór Víðistaðakirkju
Unglingakór Víðistaðakirkju
Sigurður Skagfjörð einsöngvari,
Matthías Stefánsson fiðluleikari og fl.
Ræðumaður: Pétur Georg Markan
guðfræðinemi
Kaffisala Systrafélagsins
í safnaðarheimilinu eftir dagskrá
Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Allir velkomnir
Sóknarprestur
Það lifnaði heldur betur yfir Sjálfstæðis-
flokknum í eldfjörugu prófkjöri. Ég hef gagnrýnt
þessi lokuðu prófkjör og kýs ekki í prófkjörum
nema þátttaka sé án allra skuldbinginga eða
loforða. En fjölmargir af þeim 1250 sem gengu í
Sjálfstæðisflokkinn hafa örugglega ekki látið
inngöngubeiðni í flokkinn aftra sér að styðja sinn
mann enda var óspart smalað.
Niðurstöðurnar voru kannski ekki mjög
óvæntar nema það hversu yfirburðir Haraldar
voru miklir þó svo Valgerður hafi fengið ágæta kosningu í annað
sætið en ýmsir höfðu spáð að sá sem tapaði forystuslagnum gæti
endað í 3. sæti. Rósa Guðbjartsdóttir fékk mikinn stuðning og
kannski sannaðist einu sinni enn hversu gott það er að hafa verið í
fjölmiðlum, ekki síst sjónvarpi. Listi Sjálfstæðisflokksins er senni-
lega mun sterkari nú en oft áður og er ekki að efa að þarna fer
kjarnorkufólk sem tilbúið er að berjast fyrir sínum málsstað, hver
svo sem stefnuskrá flokksins verður.
Brotthvarf Valgerðar kom ekki mjög á óvart eftir yfirlýsingu
hennar í útvarpsviðtali í síðustu viku en þó hefði afsögn verið
líklegri ef hún hefði endað í þriðja sæti. Valgerður hafði mikið fylgi
og brotthvarf hennar veikir listann eitthvað en kemur kannski í veg
fyrir núning á milli efstu manna sem einkenndi flokkinn síðustu ár.
Ásakanir og sögusagnir sem gengu í prófkjörinu voru mönnum
ekki til framdráttar og á stundum með ólíkindum. Enginn hlýtur
brautargengi með því að niðurlægja aðra en oft getur verið erfitt að
hemja kröftuga stuðningsmenn sem vilja til mikils vinna.
Á meðan 885 atkvæði eru á bak við 5. manninn eru ekki nema
177 atkvæði á bak við val 5. manns á lista Samfylkingar. Verður fjör
í vor í kosningunum? Hver veit?
Guðni Gíslason
1. sunnudagur í aðventu, 27. nóvember
Messa kl. 11
Aðventu fagnað.
Mikil og fjölbreytt tónlist: Antonía Hevesi leikur á orgel.
Unglingakórinn syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur við undirleik
Önnu Magnúsdóttur. Sigtryggur Óskar Hrafnkelsson nemandi í
píanóleik við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar leikur As-dúr impromtu
eftir Fr. Schubert og kirkjukorinn flytur auk sálma valin kórverk.
Prestur: Sr. Gunnþór Þ. Ingason.
Lesari: Gunnlaugur Sveinsson.
Kirkjuþjónn: Jóhanna Björnsdóttir
Sunnudagaskólar í Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma.
Tónlist á aðventu
Mánudagskvöld 28. nóv. kl. 20
Þórunn Elín Pétursdóttir, sópran
Þriðjudagskvöld 29. nóv. kl. 20
Jóel Pálsson leikur á saxófón
Antonía Hevesi leikur undir á
tónleikunum. - Enginn aðgangseyrir.
www.hafnarf jardark i rkja. is
Útgefandi: Keilir ehf.
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Ritstjóri og ábm.: Guðni Gíslason
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Umbrot: Hönnunarhúsið, umbrot@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 – Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
Góð afkoma
Langtímaskuldir lækka
um 1,5 milljarð
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarð-
ar sl. fimmtudag var lagt fram 9
mánaða uppgjör Hafnarfjarðar-
bæjar. Niðurstöðurnar eru já-
kvæðar fyrir bæjarfélagið og
gefa fyrirheit um góða afkomu
bæjarins, segir í tilkynningu frá
Hafnarfjarðarbæ.
Rekstrarafkoma á fyrstu níu
mánuðum ársins er jákvæð um
683 milljónir króna sem er um-
talsvert betri árangur en áætlanir
gera ráð fyrir. Bætt afkoma
ásamt auknum fjármunum af
þeirri umfangsmiklu uppbygg-
ingu sem á sér stað í Hafnarfirði
og endurskipulagning langtíma-
lána hefur skapað svigrúm til
verulegrar niðurgreiðslu þeirra,
en þau hafa lækkað um 1,5
milljarð á árinu.
Afkomutölur síðustu 9 mánaða
fylgja eftir góðum árangri á
síðasta ári. Gera má ráð fyrir að
rekstrarniðurstaða Hafnarfjarð-
arbæjar verði jákvæð um rúm-
lega 1.000 milljónir króna á ár-
inu. Það væri í annað sinn í sögu
sveitarfélagsins sem jákvæð
rekstrarniðurstaða færi yfir einn
milljarð króna en reksturinn skil-
aði 1.239 milljónum króna á
síðastliðnu ári.
Garðabær vill
ekki borga
Í framhaldi af umræðu um
svæðið í Molduhrauni sem Hafn-
arfjarðarbær og Garðabær gerðu
samning um ári 1978 sendi
bæjarlögmaður bréf þar sem
óskað var eftir umræðum um
greiðslu vegna lands sem Hafn-
arfjarðarbær lét af hendi til
Garðabæjar en aldrei var form-
lega lokið samningum um það
mál.
Bæjarráð Garðabæjar hafnar
því að endurgjald hafi átt að
koma fyrir spildu sem merkt var
B á korti er fylgdi samningunum.
Þessi afstaða bæjarráðs Garða-
bæjar segir í raun að það túlki
þessa landsspildu sem greiðslu
fyrir breytingu á lögsagnar-
mörkum en við þessa breytingu
varð Setbergshverfið hluti af
Hafnarfirði án þess að Garðabær
hafi látið neitt eignarland af
hendi.
Aldrei hefur verið gefið út
afsal fyrir spildunni og tekur
bæjarráð Garðabæjaru undir
sjónarmið bæjarlögmanns að
tímabært sé að ganga frá slíku.
Jólaþorpið rís
Jólaþorpið verður opnað kl. 12
á laugardaginn en kl. 14 verður
kveikt á jólatréi frá Skógræktar-
félaginu. Þorpið verður opið til
kl. 18 allar helgar til jóla.
Marín, Helga og Berglind.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Raggi litli og jólakötturinn er
nýjasta barnabók Haraldar S.
Magnússonar, múrarameistara
og frjálsíþróttafrömuðar. Bókin
er níunda Ragga-bókin og segir
Haraldur að hann noti samskipti
barna og dýra til að taka á einelti
og samskipti manna.
Raggi litli er á áttunda ári og
og sögusviðið er sveitin og heim-
ili Ragga og samskipti Ragga við
köttinn Blámann.
Bókin er skemmtilega mynd-
skreytt af Karli Jóhanni Karls-
syni og gefur Haraldur bókina
sjálfur út.
Barnabækur Haraldar eru
vandaðar og fallega mynd-
skreyttar.
Haraldur gaf einnig nýlega út
ljóðabókina Einyrkinn en áður
hefur Haraldur gefið út átta
ljóðabækur. Ljóðin eru órímuð
og kemur Haraldur víða við í
ljóðum sínum.
Bókin er 80 síður og fjöldi
ljóðanna er mikill. Höfundur
gefur bókina út sjálfur.
Frjálslyndi flokkurinn
Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins í
Hafnarfirði boðar til opins fundar á
A. Hansen (uppi)
mánudaginn 28. nóvember kl. 20.
Fundarefni:
Bæjarstjórnarkosningarnar framundan
og landsmálin.
Þingmenn flokksins mæta á fundinn.
Áhugasamir velkomnir
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 24. nóvember 2005
Vín mánaðarins
eru frá
Argentínu
Rauðvínið
Trivento Capernet
Melbec
– kr. 1950,-
Hvítvínið
Trivento Viogner
– kr. 1950,-
3ja rétta
helgartilboð
Dansleikur eldri borgara föstudaginn 25. nóvember
Tríó Guðmundar Steingríms. leikur fyrir dansi
—Mikið fjör og mikið gaman — Allir velkomnir.
Munið vef félagsins www.febh.is
Hraunseli, Flatahrauni 3 og hefst kl. 20.30
Félagsmiðstöðin Hraunsel • 555 0142, 555 6142
Verslum í Hafnarfirði!
... þá þarftu ekki að fara lengra!
Fríkirkjan 1. sd. í aðventu, 27. nóvember
Sunnudagaskóli kl. 11
„Við kveikjum einu kerti á“
Góð stund fyrir alla fjölskylduna.
Aðventustund kl. 13
Biblíutextar aðventu og jóla íhugaðir
Kór kirkjunnar og Örn Arnarson leiða söng
ásamt Ernu Blöndal söngkonu.
Æðruleysismessa kl. 20
www.frikirkja.is
Dansleikir
til jóla
Rúnar Þór
leikur fyrir dansi,
föstudags- og
laugardagskvöld.
Jóla-
hlaðborð
Jólamatseðill
www.fjorukrain.is
Ástjarnarsókn í samkomusal Hauka,Ásvöllum
Barnastarf
kirkjunnar er á sunnudögum kl. 11.
Léttar veitingar eftir helgihaldið.
Aðventukvöld Ástjarnarsóknar
í samkomusal Hauka,
sunnudagskvöldið 27. nóvember kl. 20.
Kór sóknarinnar leiðir samsöng undir stjórn Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Gestur og ræðumaður kvöldsins er Jón
Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem „Jónsi í svörtum
fötum“. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir helgihaldið.
Ástjarnarsókn
stendur fyrir fjölbreyttu barna og æskulýðsstarfi á virkum
dögum árið um kring. Við minnum sérstaklega á:
Samverur fyrir 6-9 áratengdar
heilsdagsskólunum í Áslandsskóla og
Hraunvallaskóla.
TTT
(Töff - Töfrandi - Taktfast, fyrir 10 - 12 ára)
á þriðjudögum kl. 17 - 18 í Áslandsskóla.
Klúbbastarf
fyrir unglinga á mánu- og miðvikudögum og opið hús á
föstudögum í tengslum við auglýsta dagskrá
félagsmiðstöðvarinnar Ássins i Áslandsskóla.
sími 565 1213
Bækur Haraldar