Fjarðarpósturinn - 18.01.2007, Page 9
Tvíburarnir
selja í Hanza
Bræðurnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir hafa selt hlut
sinn í Hanza-hópnum ehf. sem
hefur m.a. byggt 4 fjölbýlishús á
Rafha reitnum og stendur að
endurbyggingu DV-hússins og
ný bygg ingu verslunar-og íbúð -
ar húss í miðbænum. Fyrirtækið
er einnig að að reisa 335 íbúðir í
Arnarneshæð og skipuleggja nýtt
íbúðarhverfi á Kársnesinu. Nýr
hluthafi er Merla ehf., félag í
eigu Róberts Melax. Ró bert er
kunnur úr íslensku við skipta lífi
m.a. sem einn stofn anda Lyfju
og núverandi forstjóri Open
Hand í London.
www.fjardarposturinn.is 11Fimmtudagur 18. janúar 2007
Körfubolti
Úrvalsdeild kvenna:
ÍS - Haukar: 44-96
Breiðablik - Haukar: miðv.d.
Bikarkeppni kvenna:
ÍS - Haukar: 44-79
Handbolti
Úrvalsdeild kvenna:
Stjarnan - Haukar: 21-15
Fram - FH: 24-22
Haukar - ÍBV: 35-28
Bikarkeppni kvenna:
Valur - FH: 32-22
Haukar - Stjarnan: miðv.d.
1. deild karla:
ÍBV - FH: 34-30
Höttur - Haukar 2: 20-26
Næstu leikir:
Körfubolti
19. jan. kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - UMFG
(úrvalsdeild karla)
21. jan. kl. 20, Ásvellir
Haukar - Hamar
(úrvalsdeild kvenna)
22. jan. kl. 19.15, Stykkish.
Snæfell - Haukar
(úrvalddeild kvenna)
Handbolti
21. jan. kl. 19, Ásvellir
Haukar 2 - Víkingur/Fjö.
(1. deild karla)
FH stúlkur
fá liðsstyrk
Ragnhildur Rósa Guðmunds -
dóttir hefur gengið til liðs við
FH en hún er ein af bestu
handknattleikskonum landsins.
Það er ljóst að Ragnhildur mun
styrkja lið FH gríðarlega sem
hefur átt erfitt uppdráttar það
sem af er leiktíð.
Ragnhildur lék fyrri hluta
vetrar með Skive FH í Dan -
mörku en þar áður með
Haukum. Ragnhildur er alin
upp hjá FH og hittir þar fyrir
systur sína Arnheiði sem er
nýbyrjuð með FH.
ÍþróttirRagnar
sigraði á
heimsbikar -
móti í
Kaupmanna -
höfn
Ragnar Ingi Sigurðsson,
skylm ingamaður úr FH, vann
gull um helgina á World Cup
móti í Kaupmannahöfn en kepp -
endur voru 35 frá tíu þjóðum.
Eftir tvær umferðir í riðla -
keppni var Ragnar í öðru sæti. Í
16 manna úrslitum keppti Ragn ar
við Teun Plantinga frá Hol landi
og sigraði hann 15-9. Eins fór
leikur í 8 manna úrslitum 15-9 á
móti Pavel Tybl frá Tékk landi.
Ragnar keppti við John Jakelsky
frá Banda ríkj unum í undan -
úrslitum og fór leikurinn 15-12.
Í úrslitum áttust svo við
Ragnar og Tékkinn Jan Dolezal
og vann Ragnar nokkuð sann -
færandi 15-10. Fyrir sigurinn
fékk Ragnar fjögur heims -
bikarstig og hækkaði sig um 25
sæti á Heimslistanum en Ragnar
keppti með höggsverði. Önnur
úrslit urðu þau að Sævar Baldur
frá SFR endaði í 15. sæti, Arnar
Bjarki úr FH í 24. sæti, Haraldur
úr SFR í 19. sæti, Guðjón Ingi úr
FH í 27. sæti, Kristján Hrafn úr
FH í 29. sæti og Ingimar Bjarni
úr FH í 31. sæti.
Einnig var keppt í liðakeppni
og lentu þeir Ragnar, Haraldur,
Guðjón og Sævar í 2. sæti. Í und -
an úrslitum slógu þeir Norður -
landameistara Finna úr keppni en
leik urinn endaði 45-38. Í úr -
slitum kepptu þeir við Þýskaland
sem endaði með sigri Þjóðverja
45-32.
ICETREND
Verslunarmiðstöðinni Firði, 2. hæð
30%
NÝ FATASENDING
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n/
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
0
70
1
30% afsláttur á öllum vörum
— líka á nýjum vörum!